Morgunblaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 10
Fjólublá Litur sem fer henni vel. Falleg Hvítur kjóll frá Erdem og rauður hattur. Góð samsetning. Róbert B. Róbertsson robert@mbl.is Þetta er eitthvað sem okkurhefur allar langað til aðgera í langan tíma. Hjúkr-unarfræðin tengist þessu auðvitað á allan hátt, þ.e. að annast fólk, hjálpa því og veita rétta með- ferð,“ segir Unnur Ágústa Guð- mundsdóttir, ein átta hjúkr- unarfræðinema sem héldu til Kenýa í hjálparstarf. Stelpurnar sóttu um að komast í ferðina hjá Provide Int- ernational og fengu jákvætt svar. Provide International er stofnun sem hefur það markmið að gefa lækna- og hjúkrunarfræðinemum tækifæri til að vinna við hjálparstörf í Kenýa. „Við vorum í 3 vikur í hjálp- arstarfinu. Í hreinskilni sagt er það ekki nægilega langur tími til þess að gera almennilegt gagn. Við vorum rétt að komast inn í hlutina og skilja hvernig allt gengur fyrir sig þegar tíminn okkar var búinn. Samtökin sem við unnum fyrir fara með umsjón með heilsugæslum í fátækrahverf- unum í Nairobi. Við vorum til dæmis að vinna í Mathare, Korogocho og Kayole. Við vorum átta sem fórum í þessa ferð og því var okkur oftast skipt niður á nokkrar heilsugæslur og þar fengumst við við mismunandi hluti á hverjum degi,“ segir Unnur Ágústa. Skelfilegur aðbúnaður Stelpurnar tóku meðal annars nokkrar vaktir á Pumwani, sem er stærsti fæðingarspítali í Afríku sunn- an Sahara-eyðimerkurinnar. Á Pu- mawani fara á bilinu 50-60 fæðingar fram daglega. Unnur segir að hún muni seint kvarta undan íslenska heilbrigðiskerfinu eftir að hafa séð aðbúnaðinn í Kenýa. „Aðbúnaður er langt frá því að vera góður og lágu konurnar naktar í rytjulegum rúmum með engin sængurföt. Það er ekkert sem skilur rúmin að þannig að kon- urnar liggja við hliðina á ókunnugum konum sem eru í sömu aðstöðu og þær. Konurnar fá ekki neinar deyf- ingar eða verkjalyf og ef það eru mik- il læti í þeim þegar þær fá hríðir, eru þær slegnar utan undir eða á lærin. Ef það voru erfiðleikar hjá barninu að komast út og það þurfti að klippa konurnar var það gert með bitlausum skærum og voru öskrin í samræmi við það. Við fengum allar að taka á móti barni og gekk það vel hjá okkur öllum, en þessi lífsreynsla á eftir að sitja í okkur lengi,“ segir Unnur og bætir við að margar kvennana hafi verið HIV-smitaðar. Í Kenýa búa um 39 milljónir manna og um 7% þeirra eru smitaðir af HIV-veirunni eða um 2,5 milljónir og 150.000 manns deyja þar árlega úr sjúkdómum tengdum alnæmi. Fátækrahverfin Stelpurnar unnu reglulega á heilsugæslustöðvunum í Nairobi og fengu stundum það verkefni að fara í fátækrahverfin í heimavitjanir. „Þeg- Fóru með öryggis- verði í heimavitjanir Hjúkrunarfræðineminn Unnur Ágústa Guðmundsdóttir fór í maí ásamt sjö öðrum skólasystrum sínum til Nairobi í Kenía til að taka þátt í hjálp- arstarfi á vegum Provide International í þrjár vikur. Á biðstofunni Unnur Ágústa fyrstu vikuna í Korogocho. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2011 Yara er bloggari og blaðamaður frá Amsterdam í Hollandi. Hún heldur úti tískublogginu This chick’s got style á slóðinni: www.thischicksgotstyle.- blogspot.com. Virðist bloggið hafa verið til síðan í ársbyrjun 2009. Yara skrifar einnig fyrir Elle-tísku- tímaritið, er lærlingur þar og er lík- lega vel að því starfi komin miðað við bloggið hennar. Yara er 22 ára. Hún er 163 cm á hæð, í tvíburamerkinu auk þess að vera tvíburi. Hún hefur mjög flottan fatastíl, er kvenleg, nokkuð hefð- bundin en nær samt að halda sínum sérkennum. Bloggið er vel skrifað og það er ljóst að Yara er vel með á nótunum þegar að tísku kemur. Færslurnar eru fjölbreyttar og flottar myndir fylgja. Yara er líka á Twitter og virðist eiga sér marga fylgjendur þar, allstaðar að úr heiminum. Vefsíðan www.thischicksgotstyle.blogspot.com Ljósmynd/Yara Stelpustíll Yara fjallar um nýja rauða kjólinn sinn í nýrri færslu. Þessi stelpa hefur stíl Þeir sem ætla ekki að drífa sig út úr bænum strax eftir vinnu í dag geta skellt sér á tvenna tónleika í miðbæ höfuðborgarinnar. Hljómsveitin Rökkurró heldur síð- degistónleika í verslun 12 tóna við Skólavörðustíg kl. 17.30. Á tónleik- unum kynnir hljómsveitin nýjar út- gáfur af lögum sínum. Í kvöld verða svo hljómsveitirnar Orphic Oxtra, Valdimar og Of Mon- sters and Men með tónleika á Fak- torý. Húsið er opnað kl. 22 og tónleik- arnir hefjast kl. 23. Aðgangseyrir er 1000 kr. og ágóðinn rennur í upptöku á annarri plötu Orphic Oxtra. Endilega … … skellið ykkur á tónleika Morgunblaðið/hag Rökkurró Með síðdegistónleika. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Hertogahjónin af Cambridge ljúka níu daga heimsókn sinni til Kan- ada í dag. Kanadaferðin er fyrsta opinbera heimsókn þeirra eftir brúðkaupið. Elísabet drottning, amma Vilhjálms prins, er þjóð- höfðingi Kanada. Það var mikil pressa á Kate að mæta með almennilegan fataskáp til Kanada og virðist henni oftast hafa tekist vel til eins og sjá má af meðfylgjandi myndum sem eru all- ar teknar á opinberum athöfnum í heimsókninni. Má ætla að blátt og hvítt séu uppáhaldslitirnir hennar og þröngir kjólar í hnésídd verði einkennisklæðnaður hinnar verð- andi drottningar. ingveldur@mbl.is Tíska Klæðnaður Kate í Kanada Í Kanada Hnésíður blúndu- kjóll sem fer henni vel. Sumarleg Kate heilsar fólki í viðeigandi ljósum kjól. Hertogaynja Flott í blárri dragt og blúndublússu. Kate Í Alexander McQueen prjó- nakjól. Vantar þrýstnari vöxt. Reuters Einfaldur Grár Catherine Walker kjóll.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.