Morgunblaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
EKKI BORÐA
ÞESSAR SMÁKÖKUR
ÞÆR ERU
ÆTLAÐAR
GESTUM
VILTU AÐ ÉG
FARI ÚT OG BANKI?
MATURINN
ER
TILBÚINN!
ÉG
VIL EKKI
MAT
ÞÁ
STÆKKARÐU
EKKI NEITT
STÆKKA EKKI?
ÉG
HÉLT AÐ
MAÐUR
STÆKKAÐI
BARA VIÐ
AÐ EIGA
AFMÆLI
ÉG ÆTLA AÐ GERA EINS
OG HEILBRIGÐIS-
RÁÐUNEYTIÐ RÁÐLEGGUR
OG SYNGJA „HANN Á
AFMÆLI Í DAG” Á MEÐAN
ÉG ÞVÆ Á MÉR
HENDURNAR
HANN
Á AFMÆLI Í
DAG, HANN Á
AFMÆLI Í
DAG...
HÆTTU!
ÞÚ MÁTT EKKI
SYNGJA ÞETTA LAG,
VIÐ EIGUM
HÖFUNDAR-
RÉTTINN AÐ „HANN
Á AFMÆLI Í DAG”
HVERNIG ER
ER ÞAÐ HÆGT? ÞAÐ
ER ÁLÍKA KJÁNA-
LEGT OG AÐ EIGA
RÉTTINN AÐ „GUÐ
HJÁLPI ÞÉR”...
VIÐ
EIGUM
RÉTTINN AÐ
ÞVÍ LÍKA
OG
RÉTTINN AÐ
„AFSAKIД
...OG UTANLANDSFERÐIN FER TIL...
JOHNSONFJÖLSKYLDUNNAR!
HÚRRA! ÞÁ
ÞAÐ
NÆST DRÖGUM
VIÐ UM HVER FÆR
ÓKEYPIS KÖKU-
SKREYTINGAR-
NÁMSKEIÐ
FRÁ SÓLAR-
LANDAFERÐ
OG YFIR Í
KÖKUR...
...OG ÞAÐ ER
ARDINFJÖLSKYLDAN!
VÁ
ÉG GET
KANNSKI EKKI
HITT ÞIG MEÐ ÞÍNA
OFURKRAFTA...
EN EF
ÞÚ SLEPPIR MÉR
EKKI ÞÁ LÆT ÉG
VAÐA Á ÞENNAN
BÍL!
ÉG HELD NÚ SÍÐUR
KALLINN!
EINS
GOTT AÐ ÉG
ER MEÐ EINA
TIL VARA!
FYRR MÁ
NÚ VERA AÐ
MENN ERU GRÁIR
FYRIR JÁRNUM
HRÓLFUR, ÞAÐ ER
MÆTTUR RÁÐGJAFI FRÁ
TRYGGINGAFÉLAGINU
HVAÐ
VILL
HANN?
HVAÐ
HELDUR ÞÚ?!
HANN RÁÐLEGGUR
OKKUR AÐ GEFA ÞEIM
MEIRI PENINGA
Með ennistopp niður á nasir
Eini sinni þótti sjálfsagt að „raka af“ hestum á
vorin, að klippa ennistopp, fax og tagl. Ekki var
betur séð en hestarnir væru nokkuð ánægðir
með sig á eftir, fengu að heyra að þeir væru fal-
legir, hrósið skilja allir. Þegar Morgunblaðinu
er flett 4. júlí sl. blasir við sorgleg sjón. Þar er
mynd af hestinum Gára frá Auðholtshjáleigu
ásamt eigendum sínum. Þetta er sjálfsagt fal-
legur hestur, en ennistoppurinn nær niður á
nasir og faxið eftir því, þannig að fegurð hans er
falin. En þetta er misþyrming á hestum, að láta
ennistoppinn byrgja þeim sýn. Hvar eru þeir
sem eiga að gæta velferðar búsmalans, þetta
virðist vera einhver heimskuleg tíska, er betra
að hestarnir séu hálfblindir í keppni? Á næst að
binda fyrir augun á knapanum?
Unnur.
Upplýsingar við
Borgarvirki
Kvartað var undan því í
Velvakanda 7. júlí sl. að
engar upplýsingar væru
fyrir ferðamenn um
minjar og sögu við Borg-
arvirki í V-Húnavatns-
sýslu. Fornleifavernd
ríkisins hefur umsjón
með fornleifum landsins
og sér til þess að upplýs-
ingaskilti séu sett við
minjar eða veitir leyfi
fyrir slíkum skiltum.
Eins og fram kemur á heimasíðu Fornleifaverndar ríkisins: www.forn-
leifavernd.is var verið að endurnýja skilti sem hefur verið í Borgarvirki og
var nýja skiltið, sem unnið var í samvinnu og með styrk frá Vegagerðinni,
sett upp nýlega við minjarnar.
Kristín Huld Sigurðardóttir forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins.
Ást er…
… að vera veðurteppt
heima, saman.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Mötuneytið verður op-
ið yfir sumartímann. Hægt er að fá
heitan mat í hádeginu virka daga á
vægu verði. Panta þarf mat með dags
fyrirvara.
Félagsheimilið Gjábakki | Félagsvist
kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Ganga
kl. 10, handavinnustofan opin, hádeg-
ismatur kl. 11.40, kaffi og heimabakað.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Jónshús opið kl. 9.30-16.
Félagsstarf eldri bæjarbúa, Seltjarn-
arnesi | Molasopi og spjall í Króknum
kl. 10.30 og spilað kl. 13.30. Jóga fellur
niður til 19. júlí. Púttvöllur.
Hraunbær 105 | Kaffi og blöð liggja
frammi, púttvöllur er opinn alla daga,
Helga fótafræðingur: sími 698-4938.
Bónusbíll á þriðjud. kl. 12.15. Hár-
greiðslustofan verður opnuð 18. júlí,
tímap. í síma 894-6856.
Hraunsel | Leikfimi í Bjarkarhúsi kl.
11.30, brids kl. 12.30, sumarlokun í
Hraunseli 11. júlí - 8. ágúst.
Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16.
Böðun fyrir hádegi, hádegisverður. Far-
ið verður í Laugardalsgarðinn kl. 13.30
og í kaffi í Kaffi Flóru. Fótaaðgerðir og
hársnyrting.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Bingó fellur
niður í dag.
Í Vísnahorninu í gær var Oddinokkrum lýst sem var
sípissandi og fékk læknis-
greininguna „bráðmiga“ hjá
Hjálmari Freysteinssyni. Helgi
Zimsen taldi nokkur hlunnindi
felast í eiginleika þessum, enda
grænkaði vel undan svona lög-
uðu:
Oddur sem botnleysisbrunnur
bununum gerðist af kunnur.
Á vorin hann lengi
vökvaði engi,
en veturlangt tappaði á tunnur.
Ágúst Marinósson taldi sig sjá í
gegnum þennan kvilla:
Um Hjálmar flest er fróðleikssjór,
þó feilar hér hans vissa.
Oddur drakk sem alki bjór
og alltaf var að pissa.
En Davíð Hjálmar Haraldsson
taldi bráðmiga líklegra, enda
skylt flóðmiga, og skilgreindi fyr-
irbærið nánar:
Vesalings Oddur var alltaf með kvef
og undirvagn fúinn af raka,
skyrhvítur búkur og skarlatsrautt nef
af skorti á þvagstillivaka.
Steingrímur Arason orti á sín-
um tíma:
Mér hefur lífið löngum kennt
að líða þrá og missa.
Koppurinn minn er kominn í tvennt.
Hvar á ég nú að pissa?
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Enn af Oddi bráðmiga
Sumarsólstöðugátan fól í sér fer-
skeytlu í reitum 1-88. Mjög góð
þátttaka var í þessari vinsælu
krossgátu og bárust hátt í 150
lausnir. Í gær var dregið úr rétt-
um lausnum. Vinningshafinn er
Ingibjörg Þorgilsdóttir, Stóra-
gerði 2, Hvolsvelli. Hún hlýtur í
verðlaun hina glæsilegu bók
Ragnars Axelssonar ljósmynd-
ara (RAX), Veiðimenn norðurs-
ins.
Rétt lausn Sumarsólstöðugát-
unnar 2011 er svohljóðandi:
Í sólmánuði rekkar ríða,
roðaglóðin hjörtun baðar.
Í heyönnum þeir hamast víða,
hrein er fegurð tvímánaðar.
St.P.H.
Sumarsólstöðugátan 2011