Morgunblaðið - 08.07.2011, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2011
Alltaf ódýrast
á netinu
Þú færð alltaf
hagstæðara verð
á flugfelag.is
Þjórsárdalur ber þess merki að eiga
erfiðan nágranna, því Hekla hefur
margoft leikið bæði byggð og gróður
þar illa. Nánast öll byggð í dalnum
eyddist í fyrsta stóra gosinu eftir
landnám, árið 1104.
Vikur og hraun setja svip sinn á
landslagið en í dag er dalurinn hins-
vegar vel gróinn og fegurðin einstök í
samspili hrauns, gróðurs og fossa.
Gjáin í Þjórsárdal er til dæmis
dásamleg vin í jaðri hálendisins og
einstök upplifun að ganga um þar
sem tært vatnið fossar fram af iðjagrænum brekkum inn um úfna hraun-
kletta. Í mynni dalsins liggur Þjórsárdalsskógur þar sem liggja stígar og
skógarvegir sem gaman er að ganga um. Heimsókn í Þjóðveldisbæinn gefur
forvitnilega innsýn í húsakynni Íslendinga til forna og að sama skapi áhuga-
vert að skoða fyrirmynd hans, fornbýlið Stöng sem Hekla lagði í rúst.
Þjórsárdalurinn geymir margar perlur og þar er hægt að una sér daglangt
og gistimöguleikar eru ýmsir, m.a. tjaldsvæði í sjálfum dalnum. Þjórsárstofa
í Árnesi veitir allar upplýsingar um ferðalög og þjónustu í Þjórsárdal.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Háifoss Innst í Þjórsárdal fellur einn hæsti foss landsins, réttnefndur Háifoss, um 122 metra milli þröngra kletta.
Fossinn er sérstaklega fallegur í síðdegissólinni. Frá Háafossi er frábært útsýni út yfir allan Þjórsárdalinn.
Einstakar perlur
í Þjórsárdalnum
Tröllaskaginn er stórbrotið svæði á
Norðvesturlandi þar sem ný tæki-
færi til ferðamennsku sköpuðust eft-
ir opnun Héðinsfjarðarganga, í októ-
ber 2010. Göngin tengja Siglufjörð
og Ólafsjörð, með viðkomu í eyðifirð-
inum fagra Héðinsfirði.
Með tilkomu ganganna hefur opn-
ast nýr hringvegur um Tröllaskag-
ann, sem er um 249 kílómetra langur
út frá þjóðvegi 1 og býður upp á
skemmtilegt ferðalag þar sem fjöl-
margt er að sjá og gera á leiðinni.
Frá Skagafirðinum liggur leiðin
um Sturlungaslóðir að Hjaltadal,
þar sem keyra má heim að Hólum,
einum merkasta sögu - og menning-
arstað landsins. Næsti viðkomu-
staður á leið út skagann er einn elsti
verslunarstaður landsins, Hofsós.
Þar er að finna fjölda gamalla húsa,
að ógleymdu Vesturfarasetrinu.
Sundlaugin á Hofsósi þykir líka ein
sú myndrænasta á landinu.
Næstur er Siglufjörður, nyrsti
kaupstaður á Íslandi. Óvíða eru
tengslin við undirstöðuatvinnuveg
Íslendinga nánari en í þessari fyrr-
um höfuðborg síldveiðanna í N-
Atlantshafi og tilvalið að rifja þau
ævintýri upp með heimsókn í Síld-
arminjasafnið. Frá Héðinsfirði voru
samgöngur erfiðar og byggð lagðist
þar í eyði á síðustu öld. Um fjörðinn
liggja fagrar gönguleiðir sem krefj-
ast ekki lengur mikillar fyrirhafnar
eftir að göngin opnuðu.
Bæjarstæði Ólafsfjarðar er sér-
staklega fallegt inn á milli 1000
metra hárra fjalla. Bæði þar og í ná-
grannabænum Dalvík er fjölbreytta
afþreyingu að finna, s.s. golf og
hvalaskoðun, sjóstangaveiði og fjall-
göngur. Frá Árskógssandi, í Dalvík-
urbyggð, eru svo daglegar siglingar
út í Hrísey á Eyjafirði. Þá eru
ónefndar allar litlu perlurnar sem
leyna á sér á ferð um Tröllaskagann.
Tröllaskagahringurinn
Héðinsfjarðargöng
Grunnkort: LMÍ
Siglufjörður
Ólafsfjörður
Dalvík
Hólar
Sauðárkrókur
Akureyri
Hrísey
82
76
1
Hofsós
Morgunblaðið/Einar Falur
Siglufjörður Séð út á fjörðinn frá Síldarminjasafninu sem er stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins.
Paradísin á Tröllaskaga
opnari en nokkru sinni
Skannaðu kóðann
til að sjá heima-
síðu Þjórsárstofu
Þjórsárstofa
Hjálparfoss Vin í eyðimörkinni.
Tvöfaldi fossinn í Hjálp er svipmikill.
Þjórsárstofa
Þjóðveldisbærinn Í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar var ákveðið
að gera eftirlíkingu af þjóðveldisbæ. Rústirnar að Stöng voru fyrirmynd.
Þjórsárstofa
Búrfell Svæðið umhverfis Búrfell
hefur mikið verið grætt upp.
Þjórsárstofa
Gjárfoss Gjá í Þjórsárdal er einstök
náttúruperla sem seint gleymist.
Þjórsárdalur
Helgarferðin | Áhugaverðir áfangastaðir