Morgunblaðið - 08.07.2011, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2011
Í samræmi við ráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunar hefur verið ákveðið
að banna alla loðnuveiði innan ís-
lenskrar lögsögu á yfirstandandi
sumri, frá 6. júlí til 30. september.
Þá hefur ráðherra úthlutað
norskum, færeyskum og græn-
lenskum skipum samtals 82.698
lestum af heimildum til loðnuveiða.
Hinn 1. október nk. verður svo
327.000 tonna loðnuheimildum, sem
eru 50% af upphafsúthlutun, út-
hlutað til íslenskra skipa.
Loðnuveiðibann
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Prentmet í Reykjavík hefur fengið
vottun norræna umhverfismerk-
isins Svansins til staðfestingar á
góðum árangri í umhverfismálum.
Prentmet hefur frá stofnun lagt
sig fram við að minnka neikvæð
umhverfisáhrif með skipulagðri
endurvinnslu og öðrum áherslum
sem styðja umhverfisvernd.
„Svansvottun prentsmiðjunnar
tryggir að Prentmet er í fremstu
röð hvað varðar lágmörkun nei-
kvæðra áhrifa á umhverfi og
heilsu,“ segir í tilkynningu.
Svandís Svavarsdóttir umhverf-
isráðherra afhenti Guðmundi
Ragnari Guðmundssyni og Ingi-
björgu Steinunni Ingjaldsdóttur,
eigendum og forsvarsmönnum
Prentmets, Svansleyfið í húsnæði
fyrirtækisins. Í ræðu ráðherra
kom fram að Svanurinn hefur náð
góðri fótfestu í prentiðnaði en
Prentmet er sjötta íslenska prent-
smiðjan sem hlýtur Svansvottun.
Prentmet hlýtur sautjánda Svans-
leyfið sem gefur hefur verið út á
Íslandi.
Prentmet hefur fengið vottun norræna
umhverfismerkisins Svansins
Álfagarðurinn í Hellisgerði í Hafn-
arfirði verður opinn helgina 9.-10.
júlí kl. 12:00-16:00.
Þar stendur nú yfir sýning á
listaverkum eftir nokkra listamenn
sem tengjast Hellisgerði sterkum
böndum. Tveir þeirra eru afkom-
endur síðasta íbúa Oddrúnarbæjar í
Hellisgerði, Oddrúnar Oddsdóttur
sem húsið heitir eftir. Kristbergur
Pétursson myndlistarmaður sýnir
málverk og málaðar flöskur og
Oddrún Pétursdóttir myndlistar-
maður sem sýnir málverk með
blandaðri tækni. Saman sýna þau
einnig ljósmyndir frá tíma ömmu
sinnar í Oddrúnarbæ. Þóra Breið-
fjörð leirlistarkona sýnir álfa-
tebolla og huldusteina úr keramik,
Guðrún Bjarnadóttir gullsmiður
sýnir álfaskartgripi sína og Ragn-
hildur Jónsdóttir sýnir sauma-
málverk og myndir úr álfabók sem
er í prentun.
Laugardaginn 9. júli kl. 13:00
mun sjáandinn Ragnhildur Jóns-
dóttir fara í álfagöngu um Hellis-
gerði þar sem hún kynnir og lýsir
álfum og huldufólki sem þar býr.
Morgunblaðið/Golli
Álfaganga og lista-
verk í Hellisgerði
María Heimisdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri
fjármálasviðs í nýju stjórnskipulagi Landspítala frá og
með 1. júlí sl. að því er kemur fram í tilkynningu.
María lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Ís-
lands árið 1990 og MBA-námi frá University of Con-
necticut árið 1997 og síðan doktorsnámi í lýðheilsufræð-
um frá University of Massachusetts árið 2002. María
starfaði hjá Íslenskri erfðagreiningu frá 1999-2002 þeg-
ar hún hóf störf á Landspítala. Hún sinnti sérverkefnum
fyrir framkvæmdastjóra lækninga og framkvæmda-
stjóra fjármála 2003-2006 og var sviðsstjóri hag- og upp-
lýsingarsviðs 2006-2009 og síðan yfirlæknir hagdeildar
2009-2010 og var settur framkvæmdastjóri fjármálasviðs 2010-2011.
María er klínískur lektor við læknadeild Háskóla Íslands og hefur birt
vísindagreinar í erlendum fræðiritum og sinnt akademískum leiðbeinenda-
og prófdómarastöðum og stundað kennslu í læknadeild HÍ.
Nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs LSH
María Heimisdóttir
Á sunnudag nk. verður fjall-
göngumessa á Ingólfsfjalli. Lagt
verður af stað frá malargryfjunum
kl. 15 og gengið í rólegheitum upp
fjallið. Lesnir verða viðeigandi ritn-
ingartextar áður en lagt er af stað
og svo tvisvar á leiðinni upp. Þegar
upp er komið verður stutt helgi-
stund með hugvekju, bæn og söng.
Prestur í fjallgöngumessunni verð-
ur séra Óskar Hafsteinn Óskarsson.
Allir eru velkomnir.
Um nýbreytni í helgihaldinu er
að ræða en þar sem svo margir
leggja leið sína á fjallið í viku
hverri þótti við hæfi að bjóða fólki
að slá tvær flugur í einu höggi með
því að fara á fjallið og ná sunnu-
dagsmessunni um leið.
Fjallgöngumessa
STUTT
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Hún er grálúsug þessi,“ sagði
Rögnvaldur Guðmundsson þegar
hann hafði strandað silfurbjartri og
sterkri hrygnu neðst í veiðistaðnum
Silungabakka í Víðidalsá í gær-
morgun. „Hún tók alveg þarna efst,“
sagði Rögnvaldur, benti upp streng-
inn og bætti við að hann hefði séð
þar að minnsta kosti fimm laxa til.
Síðan brá hann málbandi á þykka
hrygnuna, sem reyndist 85 cm löng.
Eins og margir veiðimenn sem
blaðamaður hitti í norðankuldanum
á Norðurlandi síðustu daga, sagði
Rögnvaldur laxveiðina vera tregari
nú en á sama tíma síðustu ár. Þá var
veiðin líka frábær. Samkvæmt veiði-
tölum Landssambands veiðifélaga
hafði í fyrradag verið landað 37 löx-
um í Víðidalsá og Fitjá en á sama
tíma í fyrra höfðu veiðst 200.
Þegar ég hitti Rögnvald voru lax-
ar að stökkva víða á neðsta laxa-
svæðinu og hann kvartaði ekki; þótt
hollið væri bara búið að ná 12 þá var
hann með sex þeirra. Tvo smálaxa
en hina væna, þar á meðal einn sem
hann landaði á Neðri-Laufásbreiðu
og mældist 101 cm, eða 20,5 pund.
„Svo kom ég hingað upp að Sil-
ungabakka og setti klukkan 21.10 í
stóran hæng sem var farinn að taka
lit. Ég missti hann 55 mínútum síðar
og þá hafði hann rétt úr tveimur
krókum á þríkrækjunni. Hann var
mun stærri en þessi 101 cm,“ sagði
Rögnvaldur sem hefur landað á ann-
an tug fiska yfir 20 pund í Víðidal.
Hann gekk síðan aftur efst í
strenginn, kastaði hits-túpu og strax
var annað vænn á; sá reyndist 88
cm.
Í Hnausastreng í Vatnsdalsá voru
norskir feðgar við veiðar í gær, Jan
Erik og Martin Nilsen. Þeir voru
ánægðir með lífið, nýkomnir úr ánni
Gaula í Noregi þar sem þeir fengu
ekki fisk við vikuveiðar en hinsvegar
strax tvo stóra laxa á fyrstu vaktinni
í Vatnsdal. „Strákurinn er með
veiðidellu, ég kem hingað til að
fylgjast með honum veiða,“ sagði
faðirinn þegar hann hafði landað
sínum fyrsta laxi í gær, eftir að hafa
elt fiskinn frá Skriðuvaði niður í
Hnausastreng, 88 cm hrygnu. Son-
urinn var þá kominn með fjóra og
allt fallega laxa á bilinu 84 til 91 cm.
„Það eru ótrúlega fallegir og
sterkir fiskar hér,“ sagði hann.
Í fyrradag höfðu veiðst 55 í
Vatnsdalsá en 130 á sama tíma í
fyrra.
Á þriðjudag hitti blaðamaður
menn við Blöndu sem voru að ljúka
tveggja daga veiði og voru komnir
með 45 laxa. „Það hefur gengið
mjög vel, enda er fullt af nýjum fiski
hér og allir vænir. Sá stærsti 18
pund,“ sagði einn þeirra.
Morgunblaðið/Einar Falur
Draumaveiði Unglingurinn Martin Nilsen, 15 ára, var ánægður þegar hann hafði landað 85 cm laxi í Vatnsdalsá.
Færri laxar en stórir
Rögnvaldur Guðmundsson landaði 101 cm laxi í Víðidalsá
og togaðist á við annan „mun stærri“ í tæpa klukkustund
„Ráðherra ferðamála er mjög ánægð
með skýrsluna, en þess ber að gæta
að hún er fyrst og fremst verkfæra-
kista sem nýtist í úttektir og aðgerð-
ir til að auka öryggi á ferðamanna-
stöðum. Þannig er skýrslan
mikilvægt innlegg til þess að tryggja
samþættingu öryggismála í allri
uppbyggingu og framkvæmdum á
ferðamannastöðum og vinna þannig
á faglegum grunni að því að tryggja
öryggi ferðamanna,“ segir Ólöf Ýrr
Atladóttir ferðamálastjóri um niður-
stöður vinnuhóps er skoðaði öryggis-
mál á ferðamannastöðum. Auka á
fjármagn til framkvæmda á ferða-
mannastöðum og náttúruverndar-
svæðum með tilkomu Framkvæmda-
sjóðs ferðamannastaða og með því
fjármagni sem aflað verður með
gistináttagjaldi.
Ráðherrar ferðamála og umhverf-
ismála óskuðu á vordögum 2010 eftir
því að Ferðamálastofa og Umhverf-
isstofnun legðu fram minnisblað um
öryggismál á ferðamannastöðum.
Vinnuhópur var þá settur á laggirn-
ar sem ætlað var að fjalla um helstu
þætti áhættustýringar og setja fram
drög að stefnumörkun um öryggis-
mál á ferðamannastöðum. Í hópnum
voru Gunnar Stefánsson frá Lands-
björg, Ólafur Arnar Jónsson frá Um-
hverfisstofnun og Sveinn Rúnar
Traustason frá Ferðamálastofu. Af-
rakstur starfs hópsins er skýrsla
sem ber nafnið „Öryggi á ferða-
mannastöðum – Stefna til 2010“.
Meginniðurstaða skýrslunnar er að
gera þarf átak í öryggismálum ferða-
mannastaða hér á landi. Í stefnunni
er sett fram tillaga um skiptingu
ábyrgðar, leiðir til að efla öryggi
ferðamanna og skiptingu landsins í
svæði með tilliti til þjónustu og að-
gengis. mep@mbl.is
Skilningur og þrýsting-
ur hefur aukist mikið
Stefna um öryggi á ferðamannastöðum til 2015 tilbúin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umhverfismál Útbúa þarf leiðbeiningar um öryggismál ferðamannastaða
og gerð öryggisáætlana.
Öryggismál
» Gott samstarf á milli Lands-
bjargar, Umhverfisstofnunar
og Ferðamálastofu
» Skýrslan skapar grundvöll
til skipulegrar vinnu
» Ráðherra ferðamála mun
skipa stjórn Framkvæmda-
sjóðs ferðamannastaða