Morgunblaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2011
Það er löngum vitað aðHelgi Björnsson er með-’etta. Hann kann að slá áþjóðarstrenginn í brjóst-
um okkar, heldur þjóðlega tónleika
á 17. júní og hefur nú sent frá sér
sinn þriðja hestamanna- og sveita-
sæludisk er nefn-
ist Ég vil fara
upp í sveit.
Fyrsti disk-
urinn kom út fyr-
ir Landsmót
hestamanna árið
2008, sá næsti
kom út í fyrrasumar en þá átti að
halda landsmót sem var hætt við
vegna hestapestarinnar. Í staðinn
var landsmótið haldið nú í sumar og
skellti Helgi bara í þriðju plötuna.
Plöturnar þrjár hafa selst gríð-
arlega vel og heyrðist Helgi hljóma
víða úr tjöldum og bílum á Lands-
móti hestamanna í ár, enda viðeig-
andi tónlist á slíkum samkomum.
Lögin á nýjustu plötunni eru
flest íslenskar dægurperlur sem
eru gjarnan sungnar í hestaferðum
og í réttum. Þarna er svosem eng-
inn frumleiki en lagavalið er gott. Á
disknum má finna lög eins og
„Sprettur“, „Ég er kominn heim“
sem er gríðarlega vel sungið af
Helga, „Ég skal bíða þín“, „Vetr-
arnótt“ og „Angelía“. Einnig eru
fjörugri lög eins og „Það er svo
geggjað“ (að geta hneggjað) og
„Tætum og tryllum“.
Það er svosem lítið meira um
þennan disk að segja nema að laga-
valið er íslenskt og gott, söngur
Helga er frábær og hljóðfæraleikur
Reiðmanna vindanna er til fyr-
irmyndar. Mér finnst eiginlega
Helgi syngja betur með hverjum
diski og gerir það virkilega vel á
þessum.
Ég vil fara upp í sveit er af-
skaplega hentugur diskur fyrir
hestafólk og þá sem vilja þægileg
og kunn lög í bílinn á ferðalaginu
um landið eða í traktorinn þegar
verið er í heyskap. Einnig er disk-
urinn tilvalinn til að setja á fóninn
og bjóða makanum upp í smá-
snúning.
Það eru líklega margir sem vilja
fara upp í sveit þegar þeir hlusta á
þennan disk enda skapar hann ljúfa
og góða stemningu. Helgi er bara
með’etta.
Hneggjaður Helgi
Morgunblaðið/Kristinn
Reiðmaður Helgi Björnsson syngur vel á nýjustu sveitaplötu sinni.
Geisladiskur
Helgi Björns & reiðmenn vindanna –
Ég vil fara upp í sveit
bbbmn
Hljóðfæraleikur: Einar Valur Scheving,
Jakob Smári Magnússon, Kjartan Valde-
marsson, Stefán Már Magnússon, Matt-
hías Stefánsson.
Sena 2011.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
TÓNLIST
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
MIÐASALA Á SAMBIO.IS
TRANSFORMERS 3 3D kl. 5 - 8 - 9 12
BEASTLY kl. 7 - 10:20 10
SUPER 8 kl. 5:50 - 8 12
KUNG FU PANDA 2 3D Ísl. tali kl. 5 L
TRANSFORMERS 3 3D kl. 5 - 8 - 11:10* 12
SUPER 8 kl. 6 - 8 -10:20 12
TRANSFORMERS 3D kl. 5 -8 - 11:10 12
ZOOKEEPER kl. 5:50 - 8 - 10:10 L
/ KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
TRANSFORMERS kl. 5 - 8 12
KUNG FU PANDA 2 kl. 6 L
BRIDESMAIDS kl. 8 12
SUPER 8 kl. 10:30 12
/ SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI,
OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
750 kr. á allar sýningar merktar með appelsínuguluSPARBÍÓ
VANESSA HUDGENS
ALEX PETTYFER
NEIL PATRICK HARRIS
FRÁBÆR MYND
SEM KEMUR
SKEMMTILEGA
Á ÓVART
NÚTÍMA ÚTGÁFA
AF BEAUTY AND THE BEAST
HHH
EF ÞÚ HAFÐIR GAMAN
AF TWILIGHT
MYNDUNUM
MUNT ÞÚ FALLA
FYRIR BEASTLY
- S.F. CHRONICLE
HHH
- MIAMI HERALD
- ORLANDO SENTINEL
HHH FRÁBÆRFJÖLSKYLDU-OGGAMANMYND
MEÐJIMCARREYÍFANTAFORMI
SUMAR-
SMELLUR
INN
Í ÁR!
-
I
Í !
EIN BESTA ÆVINTÝRA/SPENNUMYND ÁRSINS
HHHHH
-ENTERTAINMENT
WEEKLY
- JIMMYO,
JOBLO.COM
HHHH
- QUICKFLIX
HHHH 100/100
- TIME
HHHH
- FRÉTTABLAÐIÐ
HHHH
- KVIKMYNDIR.IS/
SÉÐ OG HEYRT
HHHH
- K.H.K. - MORGUNBLAÐIÐ
HHHH
- P.H. BOXOFFICE MAGAZINE
SÝND Í EGILSHÖLL
H POWERSÝNING
Hið stöðuga fall í sölu á plötum í
Bandaríkjunum hefur haldist alveg
frá því árið 2004. Á hverju ári hefur
salan minnkað frá árinu áður þar til
í ár að hún varð einu prósenti meiri
en fyrstu sex mánuði síðasta árs.
Adele er þar fremst á meðal jafn-
ingja með yfir 2,5 milljónir eintaka
seldar í Bandaríkjunum. Fyrsta
platan hennar hefur líka farið aftur
af stað og selst í 314 þúsund eintök-
um. Á topp fimm eru listamenn
einsog Lady Gaga, Mumford &
Sons, Jason Aldean og Bruno Mars.
Adele Henni hefur gengið mjög vel að selja plötur.
Sala á plötum eykst
Lee Hall sem skrifaði hið vinsæla
verk Billy Elliot hefur skrifað söng-
leik sem hefur valdið deilum í Bret-
landi. Lee Hall varð við beiðni eða
boði um að breyta orðinu queer í
gay, en bæði merkja það sama;
hommi. En einhverra hluta vegna
fór notkun orðsins queer svo illa í
barnaskólakennara að hann sópaði
krökkunum út af sýningunni. Eftir
að setningunni var breytt hefur
skólinn gefið út þá yfirlýsingu að
hann muni ekki halda krökkum frá
söngleiknum. Skólayfirvöld hafa
verið sökuð um hommafóbíu vegna
viðbragða sinna. Í yfirlýsingu frá
Hall virðist hann fagna sigri og
hann lítur þannig á málið að reynt
hafi verið að ritskoða hann. Það
virðist því hafa verið þrýst á eitt-
hvað fleira en breytingu á þessu
eina orði. En bæði skólayfirvöld og
höfundurinn líta á þetta sem sigur
fyrir sig og þá hljóta allir að vera
hamingjusamir.
Má segja hommi í söngleik?
Söngleikurinn Billy Elliot var
með hommum án þess að úr því
yrðu vandræði.