Morgunblaðið - 08.07.2011, Síða 44
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 189. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Gaf stefnuljós í allar áttir
2. Bon Jovi í Eyjum
3. Stal úr Kringlunni
4. Flykkjast til Noregs
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
„Ég hef aldrei séð annað eins á æv-
inni,“ sagði Arnar Eggert Thoroddsen,
blaðamaður Morgunblaðsins, eftir
tónleika Bjarkar Guðmundsdóttur í
Biophiliu-tónleikaröðinni á listahátíð-
inni Manchester International Festival
í gærkvöldi. „Hún er komin á stall með
Stockhausen og Bítlunum sem frum-
kvöðull. Það er ekki hægt að lýsa því
með orðum hvert hún er að fara, og
ótrúlegt hvernig hún nær að vinna
með alla þessa tækni sem við höfum í
dag, búa til einhverja tónlist sem er
fáránlega „artí“ en aðgengileg um
leið.“
Arnar sagði framsetningu Bjarkar
með ólíkindum og spennan í salnum
var þvílík að hægt hefði verið að skera
hana með hníf. Lesa má nánar um
tónleika Bjarkar í Sunnudagsmogg-
anum sem fylgir með Morgunblaðinu
á morgun.
Fleiri Íslendingum gefst kostur á að
sjá Björk á sviði en í gær var tilkynnt
um sex tónleika hennar í tengslum við
Iceland Airwaves-tónlistarhátíðina í
október nk. Tónleikarnir verða í Silf-
urbergi Hörpu, og salnum breytt í
heim Biophiliu Bjarkar.
„Aldrei séð annað
eins á ævinni“
Veitingahúsið Jómfrúin hefur staðið
fyrir sumartónleikaröð
og er nú komið að
þeim sjöttu í röð-
inni. Þá stígur á
svið tríó Ragnheið-
ar Gröndal og leik-
ur fyrir gesti
utandyra á
Jómfrúartorg-
inu. Tónleikarn-
ir hefjast kl. 15
og standa til kl.
17.
Tríó Ragnheiðar
Gröndal á Jómfrúnni
Á laugardag
Norðaustlæg átt, 5-10 m/s og skýjað norðantil á landinu, en ann-
ars hæg breytileg átt og léttskýjað með köflum. Víða dálitlar skúrir
suðvestantil. Kólnar heldur, einkum na-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Hæg norðlæg eða breytileg átt. Léttskýjað víðast hvar en þoku-
bakkar við sjóinn. Hiti 6 til 18 stig, hlýjast í innsveitum v-lands.
VEÐUR
„Já, það má segja að þetta
séu stærstu verðlaun mín
hingað til. Ég er mjög
ánægð með þetta en ég ætl-
aði mér samt að fá gullið,“
sagði Eygló Ósk Gústafs-
dóttir. Hún hafnaði í 2. sæti
í 200 metra baksundi á Evr-
ópumóti unglinga í Serbíu í
gær. Hún setti auk þess Ís-
landsmet í greininni og
bætti það um 30/1000 úr
sekúndu. Hún var mjög ná-
lægt fyrsta sætinu. »1
Eygló Ósk sættir
sig við silfur
Aron Einar Gunnarsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, skrifar í dag
undir samning við velska félagið Car-
diff City, sem leikur í næstefstu deild
í Englandi. Aron er þar með
á leið í lið sem hefur gert
harða atlögu að sæti í
úrvalsdeildinni á
undanförnum
árum og er
líklegt til að
berjast
um það
áfram á
kom-
andi
tímabili. »1
Aron á leið í toppslag
með Cardiff City
KR-ingar unnu stærsta sigur sinn í
Evrópukeppni frá upphafi í gær þegar
þeir unnu 5:1 sigur á ÍF frá Færeyjum,
og samanlagt 8:2, í fyrstu umferð
Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu.
Næsti andstæðingur er mun sterkari.
ÍBV var hársbreidd frá því að komast
áfram en klúðraði dauðafærum gegn
St. Patrick’s Athletic frá Írlandi og
tapaði 2:1 samanlagt. »2-3
KR af öryggi áfram en
ÍBV naumlega úr leik
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
María Elísabet Pallé
mep@mbl.is
„Þjálfarastarfið er mjög vel borgað
hérna í Dubai, mun betur en heima á
Íslandi. Ég er mjög ánægður, vinn
20 tíma á viku, lifi vel á því og get
líka lagt fyrir,“ segir Þórarinn Reyn-
ir Valgeirsson sem er menntaður
fimleikaþjálfari hjá Fimleika-
sambandi Íslands og hefur starfað
sem slíkur. Einnig er hann menntað-
ur bifvélavirki. Þórarinn er nú
staddur á Íslandi og hjálpar for-
eldrum sínum en þau reka fyrir-
tækið Víkurvagna. „Ef þú ert með
góða menntun þá er ekkert mál að fá
vinnu í Dubai,“ segir Þórarinn. „Það
er tiltölulega ódýrt að lifa og mat-
urinn er á góðu verði.“
Evrópubúar njóta virðingar
Þórarinn segir að um 80% íbúa í
Dubai séu útlendingar en 20% inn-
fæddir. „Stéttaskipting er mikil þar
sem innfæddir arabar eru efst í píra-
mídanum. Á eftir aröbunum koma
Evrópubúar og Bandaríkjamenn.
Indverjar og Pakistanar, til dæmis,
eru neðst í píramídanum og inn-
fæddir koma mjög illa fram við þá,
nánast eins og þræla,“ segir Þór-
arinn. „Maður vissi alveg að maður
væri að fara út í allt annað um-
hverfi.“
Þórarinn segir að það sem hann
tók mest eftir í fyrstu hafi verið
að allir voru í kuflum og
slæðum og ekki var hægt
að sjá andlitið á konunum
„Það var svolítið sjokk-
erandi.“
Þórarinn fékk starf
hjá litlu fimleikafélagi
sem hefur aðeins verið
starfrækt í tvö ár, en
ferðin út kom eiginlega
til fyrir tilviljun. „Kær-
astan mín, Margrét
Björg Jakobsdóttir, fékk
vinnu sem flugfreyja hjá
flugfélagi í Abu Dhabi þegar auglýst
var eftir flugfreyjum á Íslandi,
þannig að ég fór með henni út og hóf
þá að leita mér að vinnu sem þjálfari.
Það gekk strax vel,“ segir Þórarinn.
Eigendur frá Evrópu
„Þetta er mjög fínt, á staðnum eru
sjö þjálfarar en Evrópubúar eiga
staðinn.“ Þórarinn þjálfar stelpur
fjórum sinnum í viku en stráka tvisv-
ar í viku. Þórarinn segir að langflest
börn sem hann þjálfar eigi evrópska
foreldra og mikið sé um að evrópskir
krakkar búi í eitt ár í senn með for-
eldrum sínum í Dubai. Mjög dýrt er
að æfa allar íþróttir á svæðinu.
„Ég gæti fengið vinnu á bifreiða-
verkstæði, en það er ekki vel borg-
að.“
Þjálfar fimleikabörn í Dubai
Bifvélavirki og
fimleikamaður
býr í Abu Dhabi
Ljósmynd/Þórarinn Reynir Valgeirsson
Fimleikar Þórarinn Reynir Valgeirsson fimleikaþjálfari ásamt ungu fimleikafólki í Dubai. Þórarinn og Margrét
kærasta hans stefna á að stofna nýtt fimleikafélag í Abu Dhabi. Hún fékk vinnu sem flugfreyja hjá flugfélagi úti.
Þórarinn Reynir og Margrét
Björg stefna á útrás í Dubai.
„Okkur langar að stofna
fimleikafélag í Abu Dhabi
þar sem ég bý, það er alla
vega markmiðið að ég og
kærastan mín göngum í það
að stofna okkar eigið fim-
leikafélag eftir svona ár.“
Markmiðið segir Þórarinn að
sé jafnvel að reyna að fá
styrk til verkefnisins frá
innfæddum en hann þurfi að
kynna sér málin.
„Við erum að leigja nýja íbúð og
keyptum okkur nýjan bíl.“ Þór-
arinn telur að menntaðir Íslend-
ingar geti allt eins farið til Dubai
að vinna eins og til Noregs.
Þórarinn Reynir og Margrét
Björg hafa líka notað tækifærið og
ferðast. „Við erum búin að ferðast
til Jóhannesarborgar í Suður-
Afríku og til Dyflinnar.“
Vilja stofna fimleikafélag í Dubai
ÍSLENDINGAR STEFNA Á ÚTRÁS Í ABU DHABI
Fimleikaþjálfari
í Abu Dabi