Morgunblaðið - 09.08.2011, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
Lobsang Sangay, 43 ára fræðimað-
ur við lagadeild Harvard-háskóla,
sór í gær embættiseið forsætisráð-
herra í útlagastjórn Tíbeta. Hann
tók þar með við hlutverki Dalai
Lama sem pólitískur leiðtogi Tíb-
eta. Dalai Lama hafði gegnt því
hlutverki frá því að hann flúði frá
Tíbet árið 1959 en tilkynnti í maí að
hann hygðist afsala sér því. Hann
verður þó áfram andlegur leiðtogi
Tíbeta. Vangaveltur hafa verið um
að Sangay hygðist berjast fyrir
sjálfstæði Tíbets, en hann lagði
áherslu á að hann styddi stefnu
Dalai Lama, hafnaði ofbeldi og vildi
að Tíbet fengi sjálfstjórnarréttindi.
Pólitískur eftirmaður Dalai Lama sver embættiseið forsætisráðherra útlagastjórnar Tíbeta
Boðar
óbreytta
stefnu
Reuters
Sver embættiseið Dalai Lama faðmar Lobsang Sangay, forsætisráðherra útlagastjórnar Tíbeta.
Til átaka kom milli lögreglumanna
og ungmenna í austurhluta London í
gær eftir að óeirðir, sem hófust í
Tottenham á laugardag, breiddust
út til annarra hverfa borgarinnar.
Minnst 161 var handtekinn og 35
lögreglumenn særðust í átökunum
um helgina, þ. á m. þrír lögreglu-
menn sem voru lagðir inn á sjúkra-
hús eftir að bíl var ekið á þá á mikl-
um hraða.
Yfirvöld fjölguðu lögreglumönn-
um á götum borgarinnar í gær til að
koma í veg fyrir frekari óeirðir. Mik-
il umræða hefur verið í Bretlandi um
að samskiptavefir á Netinu hafi ver-
ið notaðir til að kynda undir óeirð-
unum og hvetja til árása. Einn yf-
irmanna lögreglunnar sagði að hún
væri að rannsaka þetta og til greina
kæmi að handtaka fólk sem hefði
notað samskiptasíðuna Twitter til að
hvetja til ofbeldis.
Óeirðirnar blossuðu upp í Totten-
ham eftir að 29 ára maður, Mark
Duggan, var skotinn til bana í að-
gerð lögreglunnar. Fyrstu fregnir
hermdu að skotið hefði verið á lög-
reglumennina en breskir fjölmiðlar
sögðu í gær að fram hefðu komið vís-
bendingar um að það væri ekki rétt.
Nick Clegg, aðstoðarforsætisráð-
herra Bretlands, skoðaði í gær
byggingar sem brunnu þegar
óeirðaseggir kveiktu í húsum og
fóru ránshendi um verslanir. Clegg
lagði áherslu á að ekkert afsakaði
árásir óeirðaseggjanna. „Það ætti að
vera öllum ljóst að það sem við urð-
um vitni að snýst ekki á nokkurn
hátt um dauða Duggans,“ sagði
hann.
Kit Malthouse, aðstoðarborgar-
stjóri London, tók í sama streng og
sagði að óeirðaseggirnir hefðu ekki
verið að mótmæla dauða Duggans
eða miklu atvinnuleysi í Tottenham.
„Þetta var einfaldlega glæpa-
mennska, ekkert annað,“ sagði
hann. bogi@mbl.is
Segja árásirnar
óafsakanlegar
Rannsaka Twitter-notkun óeirðaseggja
2 km
4. ágúst, fimmtudagur
Ferry Lane, Tottenham
Mark Duggan, 29 ára, skotinn til bana
þegar lögreglumenn reyna að handtaka
hann. Atburðarásin er óljós
6. ágúst, laugardagur
Tottenham
Yfir 200 manns safnast saman við
lögreglustöð til að mótmæla
Laugardagskvöld
Óeirðaseggir ráðast á lögreglumenn með
bensínsprengjum, kveikja í lögreglu-
bílum, byggingum og strætisvagni
7. ágúst, sunnudagur
Tottenham
Óeirðir og gripdeildir halda áfram
Árásirnar breiddust út:
Enfield Hópar ungmenna ráðast á
verslanir og lögreglubíl
Chingford Mount Þrír lögreglumenn
særast þegar ekið er á þá
Ponders End/Walthamstow/
Waltham Forest/Oxford Circus
Verslanir rændar og eyðilagðar
Islington Ráðist á lögreglubíl
Brixton Allt að 200 ungmenni ráðast á
lögreglu og fara ránshendi um verslanir
ÓEIRÐIR Í LONDON
Heimildir: BBC, Reuters Ljósmynd: Reuters/Luke MacGregor
Enfield
Ponders End
Tottenham
Islington
Oxford Circus
Brixton
Walthamstow
Waltham
Forest
Chingford Mount
Thames
LO N D O N
Slökkvilið borgarinnar var kallað út
eftir að kveikt var í byggingum
35 lögreglumenn særðust
Yfir 160 handteknir
Slökkviliðsmenn
dæla vatni á
byggingu í
Tottenham
Liðlega sextug
bandarísk sund-
kona, Diana
Nyad, hyggst
verða fyrst
manna til að
synda frá Kúbu
til Flórída í
Bandaríkjunum
án þess að vera í
búri til að verjast
hákörlum. Nyad
hóf sundið í fyrrakvöld og hyggst
synda þessa 168 km löngu leið á um
það bil 60 klukkustundum. Hún ætl-
ar að gera hlé á sundinu til að
drekka í 20 sekúndur á hverjum 45
mínútum og hvíla sig og borða í
tvær mínútur með 90 mínútna milli-
bili. Nyad reyndi að synda yfir
Flórídasund í stálbúri árið 1978
þegar hún var 28 ára en gafst upp
eftir að hafa verið í sjónum í 42
klukkustundir.
Sextug kona reynir
að synda frá Kúbu
til Flórída
Diana Nyad býr sig
undir sundið.
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Júlía Tymosjenko, fyrverandi for-
sætisráðherra Úkraínu, hefur verið
sótt til saka fyrir valdníðslu en hún
er sannfærð um að réttarhöldin séu
af pólitískum rótum runnin, að
markmið stjórnvalda sé að koma í
veg fyrir að hún geti gefið kost á sér í
þing- eða forsetakosningum.
Málsvörn Tymosjenko er mjög
óvenjuleg og felst einkum í því að
hún notar hvert tækifæri sem gefst
til að hæðast að dómaranum í mál-
inu. Dómarinn greip til þess ráðs á
föstudaginn var að láta handtaka
Tymosjenko fyrir að sýna dómstóln-
um óvirðingu.
Tymosjenko hafði þá m.a. kallað
dómarann „skrímsli“ og neitað að
standa upp fyrir honum eða ávarpa
hann með heiðurstitli dómara eins og
venja er við réttarhöld í Úkraínu.
„Þú þarft fyrst að verðskulda heiður-
inn,“ sagði hún.
Tymosjenko hélt sínu striki þegar
réttarhöldunum var fram haldið í
gær eftir að hún hafði dúsað í fang-
elsi í þrjá daga. „Dýrð sé Úkraínu!“
hrópaði hún þegar dómarinn kom
inn í réttarsalinn. „Ég ætla ekki að
standa upp fyrir þér, því að þar með
væri ég að krjúpa fyrir mafíunni.“
„Pólitísk kúgun“
Nokkrir stjórnmálaskýrendur
hafa gagnrýnt Tymosjenko fyrir að
ganga of langt í því að hæðast að
dómstólnum og telja að hún ætti
frekar að einbeita sér að því að sanna
sakleysi sitt. „Báðir aðilar hafa gert
réttarhöldin að skrípaleik,“ hefur
fréttaveitan AP eftir Valerij Chaly,
sérfræðingi hugveitu í Kíev
og fyrrverandi aðstoðar-
utanríkisráðherra.
„Þetta kemur óorði á
réttarkerfið og Úkra-
ínu.“
Tymosjenko segir að
Viktor Janúkovítsj, for-
seti Úkraínu, hafi ákveðið
dómsorðin fyrirfram.
„Þetta eru ekki réttar-
höld, heldur pólitísk kúg-
un að fyrirmælum forseta
Úkraínu,“ segir hún.
Reuters
Umdeild Hundruð stuðningsmanna Júlíu Tymosjenko mótmæltu handtöku hennar í miðborg Kíev í gær.
Pólitískur skrípa-
leikur í réttarsalnum
Júlía Tymosjenko úthúðar og hæðist að dómaranum
Júlía Tymosjenko var ákærð fyr-
ir að hafa misnotað vald sitt
þegar hún undirritaði samning
við Rússland um kaup á jarðgasi
árið 2009 þegar hún var for-
sætisráðherra. Úkraínsk stjórn-
völd segja að kaupverðið hafi
verið of hátt og samningurinn
valdið Úkraínu miklu fjárhags-
legu tjóni.
Tymosjenko var á meðal leið-
toga „rauðgulu byltingarinnar“
sem kom í veg fyrir valdatöku
Viktors Janúkóvítsj eftir
að hann var sakaður um
kosningasvik. Tymo-
sjenko tapaði hins
vegar fyrir Janúkó-
vítsj í forsetakosn-
ingum í fyrra.
Glæpsamlegt
gasverð?
SÖKUÐ UM VALDNÍÐSLU
Júlía Tymoshenko