Morgunblaðið - 09.08.2011, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2011
Róbert Benedikt Róbertsson
robert@mbl.is
Ljósmyndarinn Mary Ellen Mark hefur verið
hér á landi síðastliðnar þrjár vikur vegna ljós-
myndanámskeiðs á hennar vegum. Námskeiðið
fór fram í Myndlistarskóla Reykjavíkur og lauk
í gær með nemendasýningu í Þjóðmenning-
arhúsinu. Kennarar á námskeiðinu voru þau
hjónin Mary Ellen Mark og Martin Bell ásamt
ljósmyndaranum Einari Fal Ingólfssyni.
„Þetta er að fyrirmynd námskeiða sem ég hef
haldið í Oaxaca í Mexíkó á hverju ári síðastliðin
18 ár,“ segir Mary Ellen. „Á morgnana er
einkakennsla þar sem farið er yfir það sem
nemendur hafa gert daginn áður. Svo fá þau
verkefni sem þau vinna yfir daginn og á kvöldin
eru fyrirlestrar,“ segir Mary.
Mary er mikill Íslandsvinur og er þetta ekki í
fyrsta skipti sem þau hjónin heimsækja Ísland.
„Ætli þetta sé ekki tíunda skiptið sem ég
kem til Íslands. Ég elska Ísland og það er rosa-
lega gott að vinna hérna. Við hjónin erum ást-
fangin af landi og þjóð og höfum unnið mörg
verkefni hér og haldið sýningar. Ísland er
draumaland ljósmyndarans, ekki bara vegna
landslagsins heldur einnig út af mannlífinu, en
námskeiðið er að stærstum hluta byggt upp á
því að taka myndir af fólki og mannlífi,“ segir
Mary að lokum.
Á toppnum í 50 ár
Mary er einn virtasti heimildamynda-
ljósmyndari samtímans og hefur hreppt allar
helstu viðurkenningar sem ljósmyndara á
þessu sviði getur hlotnast. Um aldamótin var
hún t.d. valin mikilvægasti kvenljósmyndari
heims af lesendum American Photo, eins
stærsta ljósmyndatímarits Bandaríkjanna. Þá
hefur hún gefið út vel á annan tug bóka með
eigin myndum og myndröðum og verk hennar
hafa verið sýnd í sýningarsölum um allan heim.
Á stórmerkilegum ferli hennar, sem spannar
tæp 50 ár, hefur hún unnið fyrir mörg heims-
þekkt tímarit á borð við Life, Rolling Stone,
The New Yorker og Vanity Fair.
„Þetta er eins og ef Eric Clapton héldi gít-
arnámskeið á Íslandi,“ segir Einar Falur Ing-
ólfsson ljósmyndari og kennari á námskeiðinu.
„Mary Ellen er einn virtasti ljósmyndari sam-
tímans og að margra mati einn allra fremsti
ljósmyndari heims. Hún er mikill Íslandsvinur
og hefur unnið að mörgum verkefnum hér-
lendis, m.a. stóru verkefni sem bar yfirskriftina
Undrabörn og var í samvinnu við Þjóðminja-
safnið.
Hana hefur lengi langað til að halda nám-
skeið hér á landi, en hún heldur tvö til þrjú
námskeið á hverju ári út um allan heim. Það
varð úr og hefur undirbúingur staðið í tæpt ár,“
segir Einar. Einar segir jafnframt að mikill
áhugi hafi verið fyrir námskeiðinu frá öðrum
löndum, en aðeins einn Íslendingur hafi setið
það.
Með kjarkinn að vopni
Nemendurnir komu víðsvegar að og voru á
öllum aldri, sá yngsti 19 ára og sá elsti á áttræð-
isaldri. Hin íslenskættaða Særún Noren er ein
þeirra sem sóttu námskeiðið.
„Reynsla mín af námskeiðinu hefur breytt
mér sem ljósmyndara að því leyti að ég hef öðl-
ast meiri kjark,“ segir Særún. „Áður fyrr lenti
ég stundum í því að hika, en námskeiðið hefur
ýtt manni áfram og maður hefur eiginlega neytt
sjálfan sig til þess að taka myndina. Ég held
einmitt að kjarkurinn og ákafinn sé stór hluti
þess að Mary Ellen er einn fremsti ljósmyndari
heims. Hún er ekki hrædd við að mynda fólk við
ólíkar aðstæður, hvort sem myndefnið er Móðir
Teresa eða þeir sem lifa á jaðri samfélagsins.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áhugasöm F.h. Einar Falur Ingólfsson, Martin Bell og Mary Ellen Mark. Mary heldur 2-3 námskeið á ári, en þetta er í fyrsta skipti sem hún heldur námskeið hérlendis.
Eins og ef Clapton héldi
gítarnámskeið á Íslandi
Ljósmyndarinn Mary Ellen Mark var með ljósmyndanámskeið í Myndlistarskóla Reykjavíkur
Martin Bell, eiginmaður Mary Ellen
Mark, er breskur kvikmyndagerð-
armaður og hefur starfað lengi við
heimildamyndgerð. Hann hefur hlotið
margar viðurkenningar á því sviði og
þar ber helst að nefna Óskars-
verðlaunatilnefningu fyrir myndina
Streetwise árið 1984.
Martin vann lengi vel fyrir breska rík-
issjónvarpið BBC sem tökumaður, en
hellti sér fljótlega út í kvikmyndagerð.
Hann hefur unnið að nokkrum verk-
efnum hér á landi og gerði m.a. heim-
ildarmyndina Alexander sem fjallar um
líf Alexanders Viðars Pálssonar, nem-
anda í Öskjuhlíðarskóla, og var sú mynd
sýnd í sjónvarpinu hér síðasta vetur.
Martin Bell er
margverðlaunaður
EIGINMAÐUR MARY ELLEN MARK
Ljósmynd/Ina BernsteinLjósmynd/Molly Bermann Ljósmynd/Lisen StilbeckLjósmynd/Ariko Inaoka