Morgunblaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 10
Nú þegar haustið er komið og vetur á
næsta leiti eru margir sem skrá sig á
alls konar námskeið og þá oft með
hreyfingu í huga. Hvers konar dans er
skemmtileg leið til að stunda líkams-
rækt og salsadans er einn þeirra sem
hafa verið mjög vinsælir hér á landi.
Fyrir þá sem eru á leið í salsa eða
hafa nú þegar brennandi áhuga á
suðrænu sveiflunni er um að gera að
skoða vefsíðun salsaweb.com.
Þar má finna ótalmargt áhugavert
sem tengist salsa, til dæmis er hægt
að lesa um sögu salsadansins, alls
konar viðtöl og greinar, myndbönd
sem mikið er hægt að læra af, hlusta
eða kaupa salsatónlist, hægt er að
senda inn fyrirspurnir og meira að
segja er hægt að leita eftir salsa-
dansfélaga. Á síðunni er líka hlekkur
fyrir blogg um salsa. Að ógleymdum
dagsetningum og upplýsingum um
salsahátíðir um víða veröld.
Vefsíðan www.salsaweb.com
Allt um sjóðheitan salsadans
Heitt Salsadans er ekki
aðeins skemmtilegur, hann
er líka frábær líkamsrækt.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011
Samstöðuhópur gegn misrétti
v/kynferðisafbrotamála!
Gagnasöfnun hafin!
„Hefur barnið þitt fengið að njóta vafans?“
1. Hefur Rannsóknarlögregla fellt niður þitt mál?
2. Hefur Ríkissaksóknari fellt niður þitt mál?
3. Hefur þú orðið fyrir vonbrigðum með rannsókn
málsins?
4. Hefur þú orðið fyrir vonbrigðum gagnvart þeim lögum
er lúta að kynferðisafbrotamálum?
5. Hefur þú orðið fyrir vonbrigðum með dóminn.
6. Hefur þú orðið var/vör við að eitthvað eftirlit sé með
manni sem lokið hefur afplánun?
Hafir þú/þið svör við ofantöldum spurningum, endilega hafið
samband!
Facebook síða „Samstöðuhópur gegn misrétti..“ í skilaboð.
Skrifið mér á netfangið: kristinsn@simnet.is og/eða
Pósthólf 8915 - 108 Reykjavík - merkt: „Samstöðuhópur“
Heimasíða: www.kristinsnaefells.com
Kær kveðja, Kristín Snæfells Arnþórsdóttir
F U L L U M T R Ú N A Ð I H E I T I Ð !
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við vorum beðin um að takaþetta spennandi verkefniað okkur og mitt matráðs-hjarta gat ekki staðist það.
Mér finnst líka gaman að leggja eitt-
hvað til samfélagsins. Við gefum 250
börnum að borða hvern virkan dag,“
segir Valentína Björnsdóttir sem hef-
ur tekið að sér ásamt manni sínum að
sjá um heitan og einstaklega hollan
mat í hádeginu fyrir nemendur Ísaks-
skóla og Landakotsskóla.
„Ég hef oft hugsað um það hvað
þessi ástríða mín hefur leitt mig inn á
margar óvæntar brautir. Mér finnst
svo gaman að gefa fólki að borða og
skapa stemningu í kringum það. Ég
var bara lítil stelpa þegar ég fór að
steikja hamborgara ofan í vinkonur
mínar, mér til ánægju. Og svo er ég
svo heppin hvað ég er vel gift, mað-
urinn minn, Karl Eiríksson, er rosa-
lega góður kokkur.“
Bökum sjálf allt brauðið
Valentína og Karl eru eigendur
tveggja fyrirtækja, veitingastaðarins
Krúsku og Móður náttúru, sem býður
upp á tilbúna holla grænmetisrétti.
Það voru því hæg heimatökin að taka
að sér skólamáltíðirnar.
„Við erum með góða aðstöðu þar
sem Móðir náttúra er til húsa og þar
matreiðir maðurinn minn skólamat-
inn, allt eftir mínum fyrirmælum. Síð-
an er maturinn sendur tilbúinn í
skólana. Karl er matreiðslumaður að
mennt og hann tekur hlutverkið mjög
alvarlega. Við sitjum yfir morgun-
kaffinu og ræðum hvað við eigum að
gefa börnunum okkar 250 að borða
þann daginn. Matseðill barnanna
Gefur 250 krökkum
að borða á dag
Hún segir það vandasamt verkefni að gefa börnum að borða og að það skipti
hana miklu máli að standa sig vel í því stóra hlutverki að gefa börnunum í Ísaks-
skóla og Landakotsskóla að borða á hverjum virkum degi. Hollusta og ferskleiki
eru í fyrirrúmi og hún kaupir beint af grænmetisbændum og bakar brauðið sjálf.
Gaman Þau voru kát með matinn sinn, Halldór Tristan Jónsson og
Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir sem eru í 6. bekk MBD í Ísaksskóla.
Glaður Róbert Dennis Solomon í 6. MBD sýndi fúslega fiskibolluna sína.Í kvöld geta aðdáendur hinnar gömlu
góðu hljómsveitar Geirfuglanna held-
ur betur glaðst, því meðlimir hennar
ætla að koma saman og spila í Iðnó á
svokölluðu Bókaballi.
Næsta víst er að þar verður mikið
stuð og full ástæða til að hvetja fólk
til að fara og sletta úr klaufum og
liðka dansliðina. Bókaballið er eins
og nafnið gefur til kynna á vegum
Bókmenntahátíðar í Reykjavík. Húsið
verður opnað klukkan tíu og hljóm-
sveitin byrjar að slá taktinn klukkan
ellefu.
Og svokallaður Bókabar verður op-
inn.
Fyrir þá sem vilja fyrst fá sér að
borða og eiga nóg bensín á kroppn-
um fyrir dansinn er hægt að bóka
kvöldverð í Iðnó kl. 20.
Endilega …
Morgunblaðið/Kristinn
Æringi Freyr Eyjólfsson útvarpsmaður er einn af meðlimum hljómsveitarinnar.
… dansið með Geirfuglunum
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Nú þegar tími berja-, sveppa- og
jurtatínslu stendur yfir er gott að
kynna sér eftirfarandi reglur frá
Umhverfisstofnun um nýtingu al-
mennings á þessari auðlind:
Sérstakt ákvæði er í náttúru-
verndarlögum um heimild almenn-
ings til að tína ber, sveppi og jurtir.
Þar kemur fram að öllum er heimil
tínsla utan eignarlanda, þ.e. í þjóð-
lendum. Innan eignarlanda er tínsla
hins vegar háð leyfi landeiganda. Þó
er öllum heimilt að tína í eignar-
löndum ber, sveppi eða jurtir til
neyslu á vettvangi. Sú regla gildir
einnig um fjörugróður.
Mikilvægt er að hafa í huga að
virða ber áður greindar reglur um
umferð um land þegar haldið er til
tínslu.
Sýna ber eiganda lands og nytja-
rétthöfum fyllstu tillitssemi og hlíta
tilmælum þeirra um umgengni við
landið og fylgja slóðum og stígum
þar sem það á við. Ákveðnar reglur
gilda um umferð manna eftir því
hver ferðamátinn er, þ.e. hvort farið
er akandi, ríðandi, gangandi, um
vötn eða hvort ferðin er á eigin veg-
um eða skipulögð hópferð.
Gangandi: För um þjóðlendur er al-
mennt heimil. Heimilt er án sérstaks
leyfis landeiganda að fara um órækt-
að eignarland gangandi, á skíðum,
skautum og óvélknúnum sleðum.
Landeigandi má þó takmarka um-
ferð um afgirt eignarland í byggð.
Skylt er að hafa hlið eða stiga á girð-
ingu ef girt er fyrir forna þjóðleið
eða skipulagðan stíg. Ferðir um
ræktað eignarland og dvöl þar er
háð samþykki eiganda eða rétthafa.
Umferð á reiðhjólum: Sömu reglur og
um gangandi umferð en sérstök
áhersla er á að fylgja ber skipulögð-
um vegum og stígum.
Ríðandi umferð: Sömu reglur gilda
að mestu og um gangandi umferð.
Fylgja ber skipulögðum reið-
stígum eins og kostur er. Þegar farið
er um hálendi þarf að vera með nægt
fóður meðferðis.
Bannað er að reka hrossastóð yfir
gróið land þannig að hætta sé á nátt-
úruspjöllum og þegar farið er um
markaðar slóðir skal ekki teyma
fleiri hross en svo að þau rúmist inn-
an slóðar og reka verður hross í lest
á slíkum slóðum.
Vélknúin ökutæki: Akstur utan vega
er stranglega bannaður og refsi-
verður. Vegur skilgreinist sem var-
anlegur vegur, gata, götuslóði, stíg-
ur, húsasund, brú, torg,
bifreiðastæði eða þess háttar, sem
notað er að staðaldri til umferðar.
Undantekning frá þessu er að heim-
ilt er að aka á jöklum og snævi þak-
inni og frosinni jörð svo fremi sem
ekki sé hætta á náttúruspjöllum.
Morgunblaðið/Einar Falur
Í berjamó Allir sem reynt hafa vita hversu gaman er að fara í berjamó.
Við berja- og sveppatínslu
þarf að hafa ýmislegt í huga