Morgunblaðið - 10.09.2011, Síða 11
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Ástríða Valentína hnoðar hér brauðdeig en hún er með stórt matráðshjarta og finnst gaman að gefa fólki að borða.
samanstendur af venjulegum íslensk-
um heimilismat með smá „tvisti“.
Einn daginn er kannski nýsoðin ýsa
með kartöflum beint frá bónda með
bræddu smjöri og rúgbrauði en
næsta dag gæti verið baunaréttur.
Við höfum þetta fjölbreytt og leggj-
um áherslu á ferskleika og hollustu,
kaupum til dæmis beint af grænmet-
isbændum og bökum sjálf allt brauð
sem við bjóðum upp á.“
Þetta er stórt hlutverk
Valentína sá í nokkur ár um að
elda ofan í börnin í leikskólanum
Laufásborg með áherslu á hollustu.
„Að elda mat fyrir leikskólakrakka er
yndislegt. Þetta er svo þakklátt starf
og nálægðin við börnin er gefandi.
Mér finnst svo fallegt að geta byggt á
reynslunni úr leikskólanum og því er
matseðillinn í Ísaksskóla og Landa-
koti svipaður þeim sem ég var með á
Laufásborg. Það er vandasamt verk-
efni að gefa börnum að borða og þetta
skiptir mig miklu máli. Þetta er stórt
hlutverk. Mörg þessara barna fá
kannski aðeins þessa einu heitu mál-
tíð á dag.“
Önnur dínamík í skólanum
Valentína segir að það sé goð-
sögn að börn vilji ekki borða hollan
mat. „Mín reynsla, bæði sem móðir
og matráðskona í leikskóla, er sú að
þó að barn borði ekki endilega gul-
rætur í dag þá merkir það ekki að það
vilji ekki borða þær á morgun. Við
eigum ekki að taka það bókstaflega
þegar börn fullyrða að þau vilji ekki
eitthvað, stundum eru þetta tiktúrur
dagsins. Börn borða oft með góðri
lyst eitthvað í leikskólanum sem þau
líta ekki við heima hjá sér. Það er
önnur dínamík í gangi í skólanum, en
staðreyndin er sú að matur er mikið
stjórnunartæki hjá börnum þegar
heim er komið. Þau eru alltaf að seil-
ast eftir völdum og þau finna inn á
veikleika okkar foreldranna með því
að vera með matarsérvisku eða fyrir-
tekt.“
Börn þróa líka stundum með sér
fordóma gagnvart mat með aldrinum,
hætta að vilja eitthvað sem þeim
fannst gott þegar þau voru yngri.
„Ég hef þá trú að slíkt rjátlist af,
þetta er ein tegund af unglingaveiki.
Krakkar sem eru góðu vanir og alast
upp við góðan mat búa að því alla tíð
og þó þau taki upp á því tímabundið
að vilja ekki hitt og þetta, þá sækja
þau aftur í það um leið og þau komast
til vits og ára. Við sem foreldrar eig-
um því ekki að gefast upp í því að gefa
þeim hollan mat. Og við eigum ekki
að gera mikið mál úr því þó að krakk-
ar vilji ekki eitthvað sem boðið er upp
á. Matmálstíminn ætti að vera gæða-
stund fyrir fjölskylduna því í erli
dagsins gefst oft ekki mikill tími til
samveru.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011
„Ég verða að vinna á Heimsljósinu,
sem verður um helgina, en það er há-
tíð heildrænnar heilsu og fer hún
fram í Lágafellsskóla í Mosfellssbæ,
bæði í dag og á morgun,“ segir Vig-
dís Steinþórsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur en hún ásamt Guðmundi Kon-
ráðssyni stofnaði mannræktarfélag í
fyrra og hélt þá samsvarandi hátíð
sem mæltist það vel fyrir að ákveðið
var að endurtaka leikinn. „Við gerum
þetta til að leyfa fólki að sjá hversu
margt er í boði til að bæta heilsuna
og hvernig fólk getur sótt sér ým-
islegt til að læra að hjálpa sér sjálft.
Það verður nóg að gera hjá mér við
að sjá um að allt fari rétt fram. Fólk
getur komið upp í Lágafellsskóla og
valið hvaða fyrirlestra það vill hlusta
á af þeim rúmlega tuttugu sem eru í
boði. Þarna verður líka margt fólk að
kynna vörur eða námskeið og svo er
hægt að fara í prufutíma í alls konar
meðferðum. Til dæmis í nuddi, fá
ráðleggingar um feng-shui, heilun,
miðlun, fá tarotlestur, dáleiðslu, Bo-
wen-tækni, höfuðbeina- og spjald-
hryggjarmeðferð og ótal margt
fleira. Við verðum
líka með kokk
sem ætlar að
framreiða heilsu-
mat fyrir okkur í
hádeginu og
skapa kaffi-
húsastemningu
yfir daginn með
einhverju heilsu-
samlegu. Við
verðum með tónlistaratriði klukkan
þrjú báða dagana, Hrafnhildur Ýr
ætlar að syngja í dag og Þorri ætlar
að spila fyrir okkur á gítar. Á morgun
verður það Hilmar Örn og stúlkna-
kórinn Karíturnar en Svavar Knútur
ætlar að syngja með þeim. Á morg-
un, sunnudag, verður hópheilun eftir
klukkan fimm, opið fyrir alla og
ókeypis. Annars stendur hátíðin frá
kl. 11-17 báða dagana og kostar
1.000 krónur inn á helgina og fyrir
þann miða getur fólk komið á hvaða
fyrirlestur sem er og getur skráð sig
í prufutíma í einhverri meðferð. Við
erum 65 manns sem gefum vinnuna
okkar á þessari hátíð.“
Hvað ætlar þú að gera í dag?
Morgunblaðið/Kristinn
Söngur Svavar Knútur kemur fram á hátíðinni um helgina með Karítunum.
Vigdís Steinþórs
Ætlar að sjá um Heimsljós