Morgunblaðið - 10.09.2011, Síða 38

Morgunblaðið - 10.09.2011, Síða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011 Nú þegar elskulegur bróðir minn Birgir er dáinn sækja á mig minningar. Þá sérstaklega úr frumbernsku þegar eldri systk- inin voru öll komin í skóla þá varð það hlutverk Birgis að hafa ofan af fyrir mér sem var yngst. Og það gerði hann svo sannarlega. Ég hugsa um þegar við krupum á bekk við borðstofugluggann og hann kenndi mér að anda á frost- rósirnar svo það þiðnaði smá- blettur til að horfa út í stórhríð- ina. Það var eins og ævintýri. Við fórum líka í leiki eins og fela hlut og róa. Birgir hafði smitandi, dillandi hlátur. Þegar hann fór að hlæja fór ég líka að hlæja og þá veltist hann um af hlátri og við hlógum og hlógum og ég vissi aldrei af hverju hann byrjaði að hlæja. Þetta var svo gaman. Hann þreyttist aldrei á að renna sér á sleða. Hann sagði: Gulla haltu þér fast, tók svo tilhlaup og brun- aði niður Nönnustíginn og hróp- aði: Frá, frá, Stígur lögga stend- ur aftan á. – og allir viku til hliðar. Hann hljóp líka með mig upp brekkuna því það var fljót- legra en að taka mig af og ganga upp eftir. Það varð að flýta sér strax í næstu ferð. Einstakir for- ystuhæfileikar hans og keppnis- skap fylgdu honum frá vöggu til hinsta dags. Birgir var uppfinningasamur og sístarfandi og við áttum bú í hraunbolla á bak við Sjónarhól þar sem hann bjó til borð og fleira. Þar voru kindur og hross sem hann sinnti meðan ég bakaði. Svo sagði hann namm namm og þóttist borða kökurnar. Það voru óskrifuð lög að fara ekki lengra að heiman en að við heyrðum þegar mamma bankaði með gift- ingarhringnum í gluggann. Þá var einfalt gler í gluggum og það heyrðist vel um nágrennið. En stundum gleymdi hann sér og fór með mig niður á bryggju sem var stranglega bannað. Þar fór hann að dorga með öngul og spotta en ég hímdi við bryggjuna og þorði ekki. Hélt ég myndi detta milli fjalanna í sjóinn. Við máttum heldur ekki fara upp fyrir Tungu. Auðvitað fór hann með mig þang- að á gömlu öskuhaugana þar sem hann hoppaði á gömlum báta- skrúfum og fór í stangarstökk og fleira meðan ég tíndi falleg gler- brot í búið. Birgir Björnsson ✝ Ágúst EinarBirgir Björns- son fæddist 22.2. 1935 á Sjónarhóli í Hafnarfirði. Hann lést á heimili sínu í Hafnarfirði 2. sept- ember 2011. Birgir var jarð- sunginn frá Víði- staðakirkju í Hafn- arfirði 8. september 2011. Þegar ég byrjaði í skóla vorum við allt- af samferða að heiman og heim og í frímínútunum var hann aldrei langt undan því ef ég varð fyrir áreitni, stríðni eða einhver togaði í flétturnar mínar var hann strax kominn vígalegur og til í tuskið þó að það væru stærri strákar. Hann þekkti ekki hræðslu og var vel sjóaður af eldri bræðrum sínum heima. Já, það var gott að eiga Birgi bróður þó að honum fyndist þegar hér var komið að hann hefði einkaleyfi á að stríða mér og toga í flétturnar. Birgir var gæfumaður í hjóna- bandi og þegar við hófum búskap og eignuðumst börn í sama hverfi urðu heimilin samtvinnuð og börnin eins og systkini. Þau kær- leiksbönd hafa aldrei rofnað. Birgir lagði sig fram um að halda merki foreldra okkar á lofti og það gleður mig að stofnaður hafi verið styrktarsjóður í hans nafni fyrir unglingastarf FH. Blessuð sé minning hans. Guðlaug Berglind Björnsdóttir. Með fráfalli Birgis Björnsson- ar sjá Hafnfirðingar nú á eftir einum af þeim mönnum sem gerðu handboltanum í Hafnar- firði ómetanlegt gagn. Hann var einkar vel fallinn til forystu. Var sem dæmi til þess tekið þegar hann, sérstaklega sterklegur maðurinn kom hlaupandi inn á völlinn í broddi fylkingar sem fyrirliði á einum mesta blóma- tíma handboltaliðs FH. Liðið fylgdi fyrirliða sínum ekki bara í kröftugri innkomu á völlinn held- ur var haft að leiðarljósi að sigra. Já, að sigra það voru einkunnar- orð fyrirliðans. Við handboltastelpurnar feng- um sem betur fer að kynnast per- sónunni Birgi og viðhorfum hans og metnaði. Hann varð þjálfari okkar og með fordæmi sínu og framkomu náði hann að leiða fram þá viljafestu og sigurvilja sem öllum einstaklingum og lið- um er nauðsynlegur til árangurs. Fyrir þetta verð ég Birgi ævin- lega þakklát. Ingu og fjölskyldu sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Sylvía Hallsteinsdóttir. Við viljum minnast Bigga Björns með fáeinum orðum. Biggi var mikill íþróttamaður og hreystimenni sem átti glæstan handboltaferil með FH og ís- lenska landsliðinu, bæði sem leik- maður og þjálfari. Hann var mik- ill leiðtogi innan sem utan vallar og starfaði mikið fyrir FH, enda alla tíð mikill FH-ingur. Seinna var hann fenginn til að stýra íþróttahúsinu í Kaplakrika sem hann gerði af mikilli rögg- semi. Bigga verður sárt saknað í Kaplakrika. Við sendum aðstandendum okkar samúðarkveðjur. Örn Hallsteinsson Hallsteinn Arnarson Valur Örn Arnarson. Ekki þarf að fara mörgum orð- um um vinsældir handknattleiks- ins á Íslandi. Fátt sameinar ís- lenska þjóð meira og betur en þegar „strákarnir okkar“ eru að keppa á stórmótum og margir ís- lenskir handknattleiksmenn eru óneitanlega orðnir að goðsögn- um. Nú er einn þeirra manna er skópu þessa sögu fallinn í valinn. Birgir Björnsson FH-ingur lést 2. september sl. eftir stutta en snarpa orrustu á þeim leikvangi þar sem hann gat ekki ráðið ferð- inni, eins og hann gerði svo oft á handknattleiksvöllunum. Birgir var einn þeirra sem ruddu handknattleiknum braut í íslenskri þjóðarsál. Þegar hann lagði skóna á hilluna átti hann langan og glæsilegan feril að baki bæði með FH og landsliðinu. Hann var sannarlega einn af „strákunum okkar“ sem allir hrifust af enda ótrúlega fjölhæfur leikmaður, í senn fimur og sterk- ur og gekk að hverjum leik af eld- móði og kunnáttu en jafnframt af heiðarleika og drengskap. Hann þróaði með sér sérstakan skotstíl sem oft kom andstæðingum hans á leikvellinum í opna skjöldu, kastaði sér niður og skaut föstum skotum á milli varnarmanna, skotum sem oftar en ekki sungu í netinu. En Birgir var ekki aðeins frá- bær leikmaður heldur líka góður og uppörvandi félagi. Það var engin tilviljun að hann var um langt árabil fyrirliði FH-liðsins og í það hlutverk var hann einnig valinn hjá íslenska landsliðinu m.a. á fyrsta heimsmeistara- mótinu sem Íslendingar tóku þátt í árið 1958 og svo aftur á mótinu 1961. Á því móti má segja að brautin hafi verið rudd þar sem Íslendingar skipuðu sér þá í fremstu röð sem þeir hafa svo verið lengst af síðan. Með meistaraflokki FH lék Birgir í um tuttugu ár, samtals fimm hundruð leiki. Það met verður seint slegið, jafnvel þótt lið leiki nú miklu fleiri leiki en fyrrum. Þegar hann hætti keppni hóf hann þjálfun með glæsilegum árangri, lengst af hjá FH og einn- ig á Akureyri þar sem hann lagði undirstöðu að veldi norðan- manna. Og á erfiðum tíma var Birgi falið að þjálfa íslenska landsliðið sem hann rækti af kostgæfni auk þess sem hann sat í landsliðsnefnd HSÍ um tíma. Birgir var íþróttamaður af Guðs náð. Hann gat náð langt í hvaða íþróttagrein sem var. Fim- leikamaður var hann á yngri ár- um og góður kylfingur þegar ald- urinn færðist yfir. Handknattleiksíþróttin á Ís- landi þakkar Birgi Björnssyni fyrir það óeigingjarna starf sem hann vann henni og þau spor sem hann markaði bæði innan vallar og utan. Við minnumst hans sem góðs drengs og ylur þeirra minn- inga er huggun harmi gegn nú þegar hann er genginn. Guð blessi Birgi á þeim leikvelli sem hann er nú stiginn út á og veiti Ingu, eftirlifandi konu hans, og börnum þeirra þremur Magnúsi, Sólveigu og Laufeyju svo og öll- um afkomendum þeirra og hans nánustu ættingjum og vinum styrk og huggun. Kveðja frá Handknattleiks- sambandi Íslands Knútur G. Hauksson formaður, Einar Þorvarðarson framkvæmdastjóri. Kæri vinur. Við hjónin vorum svo heppin að kynnast þér ung að árum í gegnum handboltaíþróttina og að halda vinskap við ykkur hjónin æ síðan. Eftir æfingar komstu oft heim í mat til okkar Sigrúnar og þar var mikið spjallað um leiki, æfingarnar og keppnisferðir. Síð- ar áttum við skemmtilega tíma í kringum landsliðið í handbolta. En þér nægði ekki að vera leik- maður, slíkur var áhuginn og ákafinn og byrjaðir því ungur að þjálfa handbolta, samhliða fullri vinnu, eigin æfingum og keppn- um. Sá langi ferill þinn hófst á Akranesi. Við hjónin minnumst þess oft þegar þú komst í heim- sókn til okkar nokkrum vikum eftir að þú hófst þar þjálfun og lýstir af aðdáun þessari heillandi stúlku sem þú hafðir kynnst þar. Þar var komin inn í líf þitt hún Inga Magnúsdóttir, þín eigin- kona, barnsmóðir, eilífi vinur þinn og okkar hjóna. Þú varst frábær íþróttamaður og vannst alla meistaratitla með FH í handbolta sem hægt var að vinna, úti og inni. Og ferillinn var ekki síður merkilegur fyrir það hve langur hann var eða allt til 38 ára aldurs, sem var einstakt á þeim tíma. Þú varst leiðtoginn, innan sem utan vallar, og ákafur baráttumaður. Félagsmál FH voru þér hugleikin alla ævi og þar hafðir þú Ingu þína þér við hlið. Fyrir utan handboltann áttum við einnig margar gleðistundir. Við keyptum saman okkar fyrstu veiðistöng og fórum saman í okk- ar fyrstu golfferð erlendis. Einn- ig fórum við margar minnisstæð- ir veiðiferðir hér innanlands. Okkur hjónum er sérstaklega minnisstæð ein veiðiferð við Foss á Síðu, þar sem þú hafðir verið ungur í sveit. Ein ljósmynd, úr þeirri ferð, sýnir þig láréttan taka heljarstökk aftur á bak í öll- um veiðiskrúðanum. Þú vílaðir ekki allt fyrir þér. Eftir handboltann tók golf- íþróttin við. Þar tókuð þið Inga til hendinni líka og urðuð bæði for- menn Golfklúbbsins Keilis. Við áttum saman margar góðar stundir í golfferðum um Ísland og önnur lönd. Minnisstæðust er þó ferðin sem við fórum saman til Kaliforníu fyrir þremur árum og sú stund er við stóðum við flötina á átjándu holu á Pebble Beach, golfvellinum fræga, og dáðumst að fegurðinni þar allt í kring. Hvíl í friði og takk fyrir allt sem þú gafst svo óeigingjarnt af þér til allra þinna samferða- manna. Við hjónin sendum Ingu og fjölskyldu þinni einlæga samúð- arkveðju okkar. Pétur Antonsson og Sigrún Jónsdóttir. „Hann er rosalega mikill FH- ingur hann Biggi, það er bara enginn harðari“ – sagði Gunnar Ari, elsti drengurinn minn þegar hann kom heim skælbrosandi eft- ir að hafa spilað nokkra pútt- hringi í Hraunkoti með þeim bræðrum Boða og Birgi heitnum Björnssyni. Aldursbilið var auka- atriði. Þeir bræður buðu Gunnari Ara reglulega að vera með, drengnum til mikillar ánægju sem þótti ekki ónýtt að vera vitni í viðureignum bræðranna. Veitti víst ekki af því þær gátu verið fjörugar. Fyrir mig að koma til Hafn- arfjarðar inn í gallharða FH- fjöl- skyldu er erfitt að tala um hver er eindregnasti stuðningsmaður fé- lagsins. Þar eru margir góðir kallaðir en að öllum öðrum ólöst- uðum þá tel ég Birgir hafi risið þar hæst á stalli. Birgir var orðinn goðsögn í lif- anda lífi. Ást hans og elska gagn- vart félaginu birtist á margvís- legan hátt. Hann lifði og hrærðist fyrir félagið og lagði sannanlega sitt af mörkum til að FH yrði að þeim óumdeilda íþróttarisa sem það er í dag. Birgir var einn af þeim framsýnu og galvösku FH- ingum sem árum og áratugum saman börðust af einurð fyrir uppbyggingu íþróttasvæðisins í Kaplakrika. Sú barátta var far- sæl fyrir íþróttaunnendur og hafnfirskt samfélag. Einnig naut golfklúbburinn Keilir síðar þess að hafa Birgi innan sinnan raða en mér er minnisstætt þegar hann fór með mig um völlinn fyrir rúmu ári og greindi mér af mikl- um eldmóð frá draumi um fram- tíðarskipan þessa glæsilega golf- vallar okkar Hafnfirðinga. Birgir hafði ómældan áhuga á fólki, ekki síst unga fólkinu sem hann þekkti vel eins og fjölskyld- ur þeirra. Virðing hans fyrir ungu fólki var mikil og hún var gagnkvæm. Birgir var sannkall- aður brúarsmiður milli kynslóða og mikil fyrirmynd. Það var merkileg stund og eftirminnileg, fyrir Kristján og eflaust fleiri FH-stráka á sjöunda áratugnum sem svokallaðir lukkupollar, að fá að mæta heim á Reykjavíkurveg til sjálfs Bigga, fyrirliða FH. Það var toppurinn þann veturinn. Eftir langan og árangursríkan feril með landsliðinu og FH, bæði sem leikmaður og þjálfari varð Birgir í lok 9. áratugarins for- stöðumaður Kaplakrika, kjarna og miðstöðvar okkar FH-inga. Því starfi sinnti hann af alúð og opnaði það fyrir ungum sem öldnum. Um leið og krökkum var gert ljóst að þau þyrftu að um- gangast svæðið og húsið af virð- ingu fundu þau einnig hversu vel- komin þau voru. Og ekki var verra að þetta voru jú allt FH- ingar. Þau voru geislandi heiðurs- hjónin Inga og Birgir þegar þau birtust hönd í hönd, hvort sem það var í Krikanum, á Keili, í Hafnarborg eða Sjálfstæðishús- inu. Ást þeirra var falleg, allt að því snertanleg. Einlægur áhugi á fólki, fjölskyldu og samfélagi skein í gegn. Að finna hlýju og stuðning hvernig sem viðraði var ómetanlegt. Nú þegar Birgir er fallinn frá situr eftir söknuður og eftirsjá en þó fyrst og fremst þakklæti fyrir að hafa kynnst þessum minnisstæða höfðingja og heiðursmanni. Við Kristján sendum Ingu, börnum þeirra og öllum aðstand- endum innilegar samúðarkveðj- ur. Megi hið eilífa ljós lýsa Birgi Björnssyni. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Sæll meistari. Ég á eftir að sakna þess að heyra þig heilsa með þessari kveðju þegar við hittumst. Kveðja sem hefur fylgt þér og fé- lögum þínum í FH í áratugi sem tilkomin var vegna afreka ykkar á handboltavellinum. Þú varst nefnilega afreksmaður. Og fyrir- mynd okkar ungu drengjanna þegar við stigum okkar fyrstu skref í handboltanum. Þú varst góð fyrirmynd. Ég á líka eftir að sakna þíns þétta og ákveðna handtaks sem var svo lýsandi fyrir þig og þinn karakter. Ég á einnig eftir að sakna mik- ið samtala okkar um handboltann og golfið og FH. Og ég á eftir að sakna þess að sjá þig ekki í pöllunum á leikjum 3. flokks FH en ég veit þú fylgir okkur áfram og hvetur til dáða. Ég man, sem lítill pjakkur, eft- ir þér stappandi stálinu í þína menn fyrir handboltaleiki. Þú varst nefnilega ótvíræður leiðtogi í þínu liði. Og það þurfti sterk bein í það hlutverk, slíkir voru snillingarnir í þessu magnaða gullaldarliði okkar FH-inga. En það fór aldrei á milli mála hver leiðtoginn var. Ég man líka þegar þú lékst, fyrstur manna, 500. leikinn fyrir FH í troðfullri Strandgötunni þar sem Hafnfirðingar hylltu þig. Sem þú svo sannarlega áttir skil- ið. Ég man líka, 20 árum síðar, þegar þú færðir mér skjöldinn góða og bauðst mig velkominn í 500 leikja klúbbinn sem meðlim nr. 2. Það þótti mér mikið vænt um. Ég man eftir okkur ungu strákunum í FH þegar við mætt- um á Sævanginn þar sem þið Geir Hallsteins voruð að byggja og vantaði aðstoð. Þá mættu menn þegar meistararnir kölluðu. Og fengu kók og prins póló fyrir. Þú stjórnaðir verkinu af mikilli ákveðni. En ekki hvað? Ég man eftir þér á aðalfundum Keilis og FH. Að sjálfsögðu við fundarstjórn. En ekki hvað? Ég man ótalmargt fleira enda afrekaskrá þín með eindæmum. Fyrst og fremst man ég þó eftir þér sjálfum. Fyrst og fremst ákveðnum en ljúfum manni. Skemmtilegum og heillandi með góða nærveru. Mér þótti afar vænt um kveðj- una frá þér um daginn og að sjálf- sögðu mun ég hugsa vel um drenginn þinn. Mér þykir afar leitt að geta ekki fylgt þér síðustu skrefin en eins og þú veist er ég staddur í golfferð erlendis ásamt öðrum fé- lögum FH-meistara. Ég færi þér góðar kveðjur frá þeim öllum. Við munum hugsa til þín. Elsku Inga og fjölskylda. Ég og fjölskylda mín vottum ykkur öllum mína dýpstu samúð og biðj- um Guð að styrkja ykkur og styðja. Vertu sæll, meistari, Guðjón Árnason. Kveðja frá Golfklúbbnum Keili Í dag kveðjum við Keilisfélag- ar einn af okkar bestu félögum Birgi Björnsson. Birgir var far- sæll formaður Keilis árin 1969- 1970, einnig var Birgir starfs- maður klúbbsins um skeið þar til hann lét af störfum af eigin ósk fyrir aldurs sakir. Á meðan Birgir starfaði fyrir klúbbinn stóð hann sínar vaktir af miklum dugnaði og var snyrti- mennskan í hávegum höfð svo eftir var tekið. Birgir var hvers manns hug- ljúfi og einstakur félagi sem bar hag klúbbsins ávallt fyrir brjósti. Þau hjón Birgir og Inga unnu ómælt starf fyrir klúbbinn sem við þökkum nú af heilum hug. Guð blessi minningu góðs drengs. Við sendum Ingu, börnum og barnabörnum innilegar samúðar- kveðjur. Fyrir hönd félaga í Golf- klúbbnum Keili, Guðmundur Haraldsson. ✝ Við þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför hjartkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, SIGRÍÐAR INGUNNAR ÓLAFSDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Eir, áður Hæðargarði 33, Reykjavík, sem andaðist þriðjudaginn 23. ágúst. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 2B á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir góða umönnun og hlýju. Signý Þ. Óskarsdóttir, Ólafur H. Óskarsson, Ingibjörg Björnsdóttir, Anna H. Óskarsdóttir, Þorgrímur Ólafsson, Þráinn Sigurbjörnsson, Skarphéðinn P. Óskarsson,Valgerður G. Björnsdóttir, Vigdís S. Ólafsdóttir, Jónas M. Ólafsson, Guðrún B. Guðlaugsdóttir, Sigurrós Ólafsdóttir, Aðalheiður Sigurjónsdóttir, Skapti S. Ólafsson, Kolbrún G. Gunnarsdóttir, Ólöf J. Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐBJARGAR GÍSLADÓTTUR frá Selnesi, Gullsmára 5, Kópavogi. Sérstakar þakkir til allra þeirra sem önnuðust hana í veikindum hennar. Ingibjörg Óskarsdóttir, Helgi Óskar Óskarsson, Kristín Þorkelsdóttir, Þröstur Óskarsson, Guðrún Margrét Karlsdóttir, Svala Óskarsdóttir, Bjarni Sævar Geirsson, barnabörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.