Morgunblaðið - 10.09.2011, Side 40

Morgunblaðið - 10.09.2011, Side 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011 Á aðeins átta vik- um hafa tvær góðar vinkonur okkar horfið úr hópnum, sem haldið hefur saman í áratugi og gengið undir nafninu „Tækni- legi saumaklúbburinn“. Í þessum vinahópi var Kristjana bæði lífið og sálin og kjörin skjalfestur heiðursfélagi og það ekki að ástæðulausu. Alltaf lagði hún gott til málanna, hennar létta lund, bjartsýni og jákvæðni hvatti okkur hinar og uppörvaði. Ótrúleg var þrautseigja hennar og æðruleysi í miklum veikind- um. Hún gaf mikið af sér, en hún fékk líka mikið til baka. Við, vina- hópur hennar, minnumst allra skemmtilegu ferðalaganna og stundanna saman og við brosum gegnum tárin, því það hefði Kristjana viljað. Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. (Hallgrímur Pétursson.) Elsku Magga og fjölskyldu sendum við samúðarkveðjur. F.h. hópsins, Vilborg Gestsdóttir. Elsku Kristjana, Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Kristjana Gísladóttir ✝ KristjanaGísladóttir fæddist 1. október 1945. Hún lést 29. ágúst 2011. Kristjana var jarðsungin 8. sept- ember 2011. Ég er heppin að hafa átt þig að og þakka fyrir þann tíma sem ég átti með þér. Elsku frænka, ég hugga mig við það að hafa fengið að sjá þig rétt áður en þú kvaddir okkur. Þú lást sof- andi en eitthvað fékk mig til að vekja þig og mikið er ég glöð með það í dag. Þrátt fyrir veikindi þín geislaði af þér og já- kvæðnin og góða skapið var að sjálfsögðu til staðar. Það er sárt að kveðja konu sem ég og eflaust margir aðrir vorum búin að ákveða að myndi lifa að eilífu. Ég á ófáar minningar um þig sem ég mun varðveita alla tíð. Þú hefur verið mér góð fyrir- mynd og verður áfram. Hvíldu í friði, elsku frænka. Íris Telma Jónsdóttir. Í dag kveðjum við Kristjönu, okkar yndislegu föðursystur og mágkonu. Það er skrítin tilhugs- un að fá ekki að sjá hana aftur, vera með henni eða bregða á leik með einhverju óvæntu og skemmtilegu. Kristjana elskaði lífið og sam- ferðafólkið sitt, það fengum við fjölskyldan hennar svo sannar- lega að kynnast. Hún var ein- hvern veginn alltaf til staðar fyrir alla, alltaf tilbúin að hjálpa til eða hlusta ef maður þurfti á því að halda. Við fengum sérstaklega að kynnast umhyggju hennar og hlýju þegar faðir okkar/eigin- maður lést, en þá opnaði hún heimili sitt fyrir okkur. Eftir það passaði Kristjana alltaf vel upp á að við værum með í öllu sem varðaði fjölskylduna. Maður upp- lifði sig alltaf eins og maður væri einstakur þegar maður var hjá henni og minningin um faðmlögin hennar á eftir að ylja okkur um ókomin ár. Kristjana var potturinn og pannan í því að halda allri stór- fjölskyldunni saman og á hún meðal annars heiðurinn af því að haldin eru árleg jólaböll í ættinni. Hún var líka dugleg að skipu- leggja summabústaðaferðir og aðra hittinga og var hún byrjuð að skipuleggja systkinaferð til Flórída á næsta ári. Það er ekki hægt að minnast Kristjönu án þess að tala um veikindi hennar og þær raunir sem hún mátti ganga í gegnum en einhvern veginn kom hún því alltaf þannig fyrir að hún var fyrst og fremst að njóta lífsins. Hún kenndi okkur líka að meta það góða sem lífið hefur upp á að bjóða. Við verðum alltaf þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman og munum ávallt geyma minn- inguna um yndislega frænku og mágkonu í hjarta okkar. Elsku Magnús, Borghildur, Gísli, Kristín, Pétur og Hildur Una, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Kristín, Sigþór og Elfa Dögg Marteinsbörn, Guðbjörg og fjölskyldur. Elsku Kristjana frænka Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Ástarþakkir fyrir ástina, stuðninginn og samverustundirn- ar allar. Falleg minning þín mun lifa með okkur ávallt. Brynjar frændi, Bára og börnin. Þegar sorgin knýr dyra eru það ljúfu minningarnar sem ylja okkur og styrkja. Og þannig er það núna þegar við kveðjum allt- of fljótt „stóru frænkuna“ í lífi okkar, hana Kristjönu. Hún var svo sannarlega stóra frænkan í bakaraættinni sem fylgdist með okkur öllum, styrkti ættarböndin með ýmsum uppákomum, var alltaf til staðar þegar eitthvað stóð til og fús til að hjálpa hvar sem hún gat. Kristjana var mjög brosmild, glaðlynd og glæsileg kona sem við dáðumst að og litum upp til. Hún var fyrirmynd okkar í svo mörgu og einstakur gleðigjafi hvar sem hún var. Við minnumst hennar og þökkum fyrir svo óendanlega margar góðar stund- ir í gegnum tíðina. Fyrir söng hennar og gleði sem ávallt fylgdi henni og við munum alltaf varð- veita í hjörtum okkar. Það er svo margs að minnast sem ekki verð- ur gert í þessum fáu orðum en minning hennar mun lifa með okkur. Kristjana upplifði sár og erfið veikindi sem hún barðist hetju- lega við og missti aldrei móðinn. Hún er og verður hetjan sem við getum öll tekið til fyrirmyndar og eftirbreytni. Við kveðjum elsku Kristjönu með þakklæti fyrir að hafa átt hana að og fengið að vera henni samferða. Hugur okkar er hjá Magnúsi, Borghildi, Gísla Þór, Kristínu, Pétri Má og Hildi Unu. Jóna frænka og börn. Í örfáum orðum langar okkur að minnast Kristjönu, mömmu Gísla, æskuvinar okkar. Allar þær góðu minningar sem við eig- um frá kynnum okkar við þessa einstöku konu, koma nú upp í hugann og sýna okkur hversu mikils virði hún var okkur og hversu mikil áhrif hún hafði á okkur félagana á mótunarárum okkar. Heimili Kristjönu og Magga var okkur alla tíð opið og ófáar stundirnar sem við áttum við eld- húsborðið og spjölluðum saman. Hlýja, kærleikur, húmor og um- hyggja voru einkennandi fyrir hana. Fordómaleysi og skilning á þörfum og athafnasemi ungra drengja átti Kristjana í ríkum mæli. Kristjönu varð sjaldan svarafátt og oftar en ekki veitti hún okkur svör við hinum ýmsu spurningum sem brenna á ung- um drengjum. Hispursleysi hennar var slíkt að auðvelt var að bera borð fyrir hana hluti sem okkur þótti jafnvel var erfitt að viðra við eigin foreldra. Að þessu leiti var hún okkar stoð og stytta. Kristjana var sú manngerð sem býr ekki til vandamál heldur leysir þau á sinn hátt og hafði ein- stakt lag á að taka á móti hverju og hverjum sem var með opinn faðminn. Þrátt fyrir minnkandi sam- veru eftir því sem árin liðu hefur Kristjana alltaf skipað stóran sess hjá okkur öllum og mun gera um ókomna tíð. Það er ótalmargt í fari Kristjönu sem við getum og viljum taka okkur til eftirbreytni sem fullorðnir einstaklingar og fyrirmyndir. Minningin um hana er kær og órjúfanlegur hluti æsku- og uppvaxtarára okkar. Hvíl í friði. Ólafur, Haukur og Valdimar. Elsku Kristjana, Þú varst alltaf svo létt í lund, og gaman var að eiga með þér gleðistund. Í gegnum ár og tíð, varstu alltaf svo heillandi, góð og blíð. Þitt helsta einkenni er hversu einstök þú varst, með þínu stóra hjarta svo mikið þú gafst. Þín skrautskrift var skrifuð með glæsibrag og kökurnar sem þú gerðir, ekki má gleyma að minnast á það. Á ættarmótum þú leyfðir okkur frænk- um að láta ljós okkar skína, þú áttir ekki í vanda að nálgast ættingja þína. Þú sannarlega hélst ættinni saman með allri þinni gleði og gaman. Þín lífsgleði er okkur öllum til fyrirmyndar. Elsku Kristjana hvíldu í friði, í hjörtum okkar minning þín ávallt lifir. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til fjölskyldunnar. Ástarkveðjur, Linda, Ása Karen, Anton og Stefán. Nú þegar komið er að kveðju- stund langar okkur að minnast Kristjönu frænku okkar í örfáum orðum. Við höfum þekkt Krist- jönu frá því við fyrst munum eftir okkur og má svo sannarlega segja að Kristjana hafi verið í miklu uppáhaldi enda stór hluti af okkar lífi þar sem við bjuggum í sama húsi og hún og hennar fjöl- skylda í vel á annan áratug. Á uppvaxtarárum barnanna var mikill samgangur og margt skemmtilegt aðhafst. Við eigum margar dýrmætar minningar frá þessum árum sem við geymum í hjörtum okkar. Kristjana var mikill gleðigjafi, lífsglöð og hafði einstakt lag á að sjá alltaf björtu hliðarnar á lífinu og tilverunni. Það var sérstaklega gaman að hitta Kristjönu, hún sýndi okkur alltaf mikinn áhuga og hafði gam- an af að fylgjast með hverju því sem við tókum okkur fyrir hend- ur. Alltaf hafði hún líka frá ein- hverju skemmtilegu að segja og oftar en ekki fylgdi hennar smit- andi hlátur. Á hverju ári hefur stórfjöl- skyldan, Bakaraættin, haft þann sið að hittast á jólaballi og var það ekki síst fyrir tilstilli Krist- jönu frænku að það varð að veru- leika. Kristjana stjórnaði jóla- böllunum af sinni alkunnu snilld, kynnti nýja fjölskyldumeðlimi og sagði frá því helsta sem dreif á daga ættarinnar. Á fyrstu jóla- böllunum var fátt um börn í fjöl- skyldunni og hvatti Kristjana til þess að fjölskyldan bætti úr því enda hafði hún mjög gaman af börnum. Árangurinn lét ekki á sér standa og fjölgaði meðlimum ættarinnar til muna árin á eftir. Við kveðjum Kristjönu frænku okkar með söknuði en fyrst og fremst kæru þakklæti fyrir sam- fylgdina og allar góðu stundirnar. Við erum rík af góðum minning- um. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V.Briem) Elsku Maggi, Bogga, Gísli, Kristín, Pétur Már og Hildur Una. Við sendum ykkur hug- heilar samúðarkveðjur og megi Guð blessa ykkur í sorginni og gefa ykkur styrk á erfiðum tím- um. Aðalheiður, Valdimar, Hall- dóra Klara og Margrét. Það er með þakklæti og virð- ingu sem ég minnist Kristjönu nú þegar komið er að kveðjustund. Kynni okkar hófust á námskeiði í framsögu seint á áttunda áratug síðustu aldar en þá vorum við nokkrar sjálfstæðiskonur í Vor- boðanum að bæta við hæfni okk- ar í ræðumennsku. Framsögurn- ar sem fluttar voru á námskeiðinu vöktu mikla kátínu og voru okkur hlátursefni í gegn- um tíðina. Kristjana var glæsileg, elskuleg, trygglynd og umfram allt jákvæð kona. Hún átti við langvarandi veikindi að stríða en hennar góðu eiginleikar voru henni mikill styrkur í amstri dagsins við þjónustustörf í Spari- sjóði Hafnarfjarðar sem og í öll- um þeim verkefnum sem hún tók að sér. Í einkalífi var gæfan henni hliðholl og bjó hún fjölskyldu sinni fallegt heimili enda fagur- keri. Kristjana starfaði um árabil með Sjálfstæðisflokknum í Hafn- arfirði þar sem henni voru falin trúnaðarstörf innan flokksins sem og á vegum bæjarmála en hún átti sæti í heilbrigðisnefnd og sinnti störfum varamanns í barnaverndarnefnd um árabil. Það er mér mikil ánægja að hafa fengið tækifæri til að vera samferða Kristjönu Gísladóttur og eiga með henni skemmtilegar og gefandi samverustundir. Sjálfstæðisflokkurinn naut krafta hennar en það stjórnmála- afl sem sá flokkur er verður meira aðlaðandi með fólk sem Kristjönu innanborðs. Elsku Magnús og fjölskylda, ég votta ykkur innilega samúð, blessuð og varðveitt sé minning Kristjönu Gísladóttur. Valgerður Sigurðardóttir. Ég hef lesið það í bókum um lífið eftir dauðann að maður breytist í engil á himnum þegar maður deyr. Þegar Guð telur þörf á þá sendir hann sína allrabestu engla til jarðarinnar til að hjálpa fólki og vera því kærleiksrík fyr- irmynd. Þessu trúi ég alveg því ég þekkti einn svona engil en það var hún Kristjana. Fyrir 35 árum, þá aðeins þrí- tug, veiktist hún alvarlega af mjög sjaldgæfum, alvarlegum og ættgengum sjúkdómi. Margoft á þessum árum hefur hún barist fyrir lífi sínu og alltaf haft betur þar til nú. Að vísu var hún ekki ein í baráttunni því Guð sendi annan engil til jarðarinnar til að styrkja hana og styðja í barátt- unni, en það er hann Maggi. Sam- band þeirra var svo fallegt og ein- stakt að slíkt er vandfundið hér á jörðu. Að fá að þekkja og um- gangast slíkar manneskjur eru náttúrlega forréttindi og maður er miklu, miklu ríkari eftir. Nú er sorg í ranni hjá mörgum og ég votta elsku Magga mínum, börnunum þeirra, tengdadóttur og barnabörnum dýpstu samúð okkar hjónanna og bið þeim öll- um Guðs blessunar. Já, hún Kristjana var engu lík. Einstök Guðsgjöf. Hafðu þökk fyrir allt og allt elsku engillinn minn. Hildur Guðbrandsdóttir. Til minningar um mína bestu vinkonu, Keitý. Líkt og rósin litur fölnar lýtur höfði, dofnar sinn. Brestur kjarkur, blómið sölnar, beygist bak og hugurinn. (Kristjana J. Jónsdóttir). Minning mín um þig verður alltaf björt og hlý. Erla. Góð vinkona kveður eftir langa og erfiða baráttu við sjaldgæfan sjúkdóm. Einkennandi fyrir Kristjönu var hvað hún tók sínum veikindum af mikilli þolinmæði og jafnaðargeði, alltaf var grunnt á gleðibrosi og hlýju í hennar þrautum. Fyrstu kynni mín af Kristjönu voru þegar hún kom með ömmu sinni og nöfnu til að aðstoða á æskuheimili mínu í Hafnarfirði, en Kristjana ólst upp að verulegu leyti hjá ömmu sinni. Ég man Kristjönu á sínum yngri árum sem glaðværa fallega unga stúlku. Amma hennar Kristjana var einstök kona, sérstaklega hvað varðar gæsku og hjarta- hlýju. Þeir voru ekki margir fer- metrarnir í litla húsinu þeirra í vesturbæ Hafnarfjarðar, en þar var þeim mun meiri hjartahlýja og góðvild. Kristjana yngri fór þannig vel nestuð út í lífið frá ömmu sinni og bar því vitni í hverju því sem hún tók sér fyrir hendur. Það var eins og svo oft, að eftir unglingsárin hverfa menn í ýms- ar áttir og endurnýjuð kynni okk- ar verða fyrst eftir að Kristjana hefur fundið sér lífsförunautinn Magnús og stofnað heimili með tveimur yndislegum börnum. Þar var til staðar hin gamla góða Kristjana með sitt fallega bros og góðu nærveru. Við viljum þakka Kristjönu fyrir samfylgdina á liðnum árum og kveðjum með sorg einstaklega hugrakka konu og treystum því að hún hafi nú hlotið lækningu meina sinna. Við vottum Magnúsi, börnum og barnabörnum innilega samúð okkar. Guðrún og Hersir. Kveðja frá litlu frænku. Þú. Sál þín svo hlý sem blóm í blíðum æskuróm. Við sátum saman í gegnum tíð, ég man ávallt hvað þú varst blíð. Þú þinn kærleika sýndir og kættir kátt, mér sárnar að kveðja brátt. En áttum saman fortíð bjarta en mundu að þú lifir í okkar hjarta. Elsku frænka, Guð geymi þig. Tinna Dröfn. Elsku Kristjana frænka eða „uppáhalds frænka „eins og ég kallaði þig alltaf, það er með miklum söknuði sem ég skrifa hér nokkur orð til þín. Þvílík gleði og hamingja það var alltaf að hitta þig … fullt af knúsi og kossum. Það var alltaf opið hús hjá þér og allir velkomn- ir til þín og ef það var eitthvað sem mann vantaði hjálp við þá varstu alltaf reiðubúin að að- stoða. Það er mér minnisstætt og dýrmætt hvað þú fylgdist vel með dansinum hjá mér í gegnum árin og það var ósjaldan sem þú komst að horfa á mig keppa. Þú varst foringinn í fjölskyld- unni. Þú varst fyrirmyndin okk- ar. Þær eru ógleymanlegar stundirnar á jólaböllunum með öllum ættliðum fjölskyldunnar þar sem þú varst ávallt fremst í flokki, alltaf hress og í góðu skapi og stjórnaðir jólaballinu með ein- stakri snilld. Á bakaraættar- mótinu okkar sumarið 2010 varst þú í essinu þínu líka, með skipu- lagninguna á hreinu eins og allt- af, með alla fjölskylduna í kring- um þig og áttum frábærar stundir saman sem munu aldrei gleymast í minni mínu. Elsku besta Kristjana frænka, hvíl í friði. Bestu þakkir fyrir mig og mína fjölskyldu. Við munum öll sakna þín mikið. Þinn frændi Víðir. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, systir og mágkona, ELÍNBORG JÓNA RAFNSDÓTTIR skrifstofumaður, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi miðvikudaginn 7. september. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 16. september kl. 13.00. Rafn Marteinsson, Kristín Jónsdóttir, Ásthildur Rafnsdóttir, Jón Atli Rafnsson, Ágúst Jónsson, Birna Geirsdóttir, Sigurborg Sveinbjörnsdóttir, Jón K. Guðbergsson, Anna Jenný Rafnsdóttir, Gylfi Ingólfsson, Ásdís Lára Rafnsdóttir, Edda Maggý Rafnsdóttir, Þórarinn Kópsson, Aðalheiður Arna Rafnsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.