Morgunblaðið - 10.09.2011, Page 42

Morgunblaðið - 10.09.2011, Page 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011 „Elsku Hjödda mín, hugur minn hvarflar svo oft til þín. Orð fá ekki lýst hvernig sú líðan er að þú eigir ekki eftir að koma oftar hingað til mín, eða ég til þín. Þú varst mér mjög náin systir, og er margs að minnast. Er þá helst að telja glaðværð þína, göfug- lyndi og dugnað. Ég vil minnast þeirra daga er við bjuggum við sömu götuna. Varla leið sá dagur að við hitt- umst ekki, ýmist hjá mér eða þér, oft var það þó, að ef þú komst til mín þá sastu þannig að þú sást heim til þín, og varst tilbúin að rjúka ef einhver kom í heimsókn sem var æði oft. Heimili þitt var gestkvæmt og alltaf var pláss fyrir fleiri. Þú varst svo orkumikil, þú settir upp hárgreiðslustofu í eldhúsinu þegar svo bar undir, þú saum- aðir og prjónaðir, þú lærðir að setja á gervineglur og vannst við það allar götur síðan. Þú Hjördís Lovísa Pálmadóttir ✝ Hjördís LovísaPálmadóttir fæddist á Akureyri 26. janúar 1955. Hún lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri 11. ágúst 2011. Útför Hjördísar fór fram frá Ak- ureyrarkirkju 18. ágúst 2011. varst mikil áhuga- manneskja um leik- list og varst ötul í Freyvangsleikhús- inu og fórst í hvaða veðri sem var þangað, vetur eftir vetur, fyrst til að farða leikarana og seinna til að leika og varst oft í aðal- hlutverkinu, og of- an á allt varstu heimsins besta húsmóðir og mamma. Þú lést stóra drauminn þinn rætast síðastliðið haust þegar þið Pétur fóruð til Nashvill Ten- nessee, en þú varst ólæknandi sveitasöngvaunnandi, (og var fátt annað en sveita-tónlist sett á fóninn) og spókaðir þú þig þar innan um aðra slíka, ásamt frægum og minna frægum kántrísöngvurum. Ég gæti haldið lengi áfram, en það sem upp úr stendur er okkar mikli vinskapur og kær- leikur, og það verður mér alltaf efst í huga. Þrátt fyrir þinn ill- víga sjúkdóm síðastliðin ár, bar veikindi þín nú í júlí, brátt að og beiðst þú lægri hlut í þeirri bar- áttu. Nú er stórt sár í hjarta mínu, ég sakna þín svo mikið! Ég bið góðan Guð að blessa og styrkja Pétur, Fanneyju, Halla og fjölskyldur þeirra í sorginni. Einnig bið ég Guð að blessa þig, elsku Hjödda mín, takk fyrir allt! Farðu í Guðs friði. Ó, blessuð stund, er hátt í himinsölum minn hjartans vin ég aftur fæ að sjá og við um okkar ævi saman tölum, sem eins og skuggi þá er liðin hjá. (Matthías Jochumsson.) Kveðja, þín systir og vinkona, Elísabet. Elsku Hjödda mín, það er erfitt að átta sig á því að þú ert farin úr þessu tilverustigi á allt annað tilverustig . En ég trúi því að það til- verustig sé bæði betra og fal- legra en það jarðneska. Ég trú því líka að þar blómstrir þú eins og þú sann- arlega gerðir í okkar lífi, innan um allt það góða og fallega fólk sem Guð hefur kallað til sín. Sagt er að Guð taki til sín alla þá sem hann elskar oft langt fyrir aldur fram og sannarlega er hægt að trúa því en við sem erum þér næst og elskum þig af öllu hjarta erum ekki sátt við þá ákvörðun og verðum aldrei. Þegar ég lít til baka minnist ég þess hversu ánægjulegt það var og mikill heiður fyrir okkur Þórunni, Hjödda mín, þegar þú mættir óvænt í jólahlaðborðið til okkur um árið með Öldu systur okkar og Vidda, en Þar varst þú hrókur alls fagnaðar og munum við seint gleyma þeim fallega degi. Elsku Hjödda, flogin ertu frá okkur eftir erfiða baráttu við ill- vígan sjúkdóm, en þvílík bar- áttukona sem þú varst. Þannig varstu ávallt, hress, opin, félagslynd og skemmtileg. Gott var að eiga við þig spjall hvar og hvenær sem var um allt sem skipti máli, hverju sinni. Alltaf var gott að leita til þín um ráð og úrræðagóð varstu með eindæmum. Manni leið alltaf vel í þinni návist. Hnyttin varstu, Hjödda mín, og maður heyrði marga góða frasa eftir þér hafða en sá eftirminnilegasti var þegar þú hafðir á orði eftir brúðkaupið ykkar Péturs: „Aldrei skal ég gifta mig aftur í mígandi rign- ingu.“ Þú varst alltaf boðin og búin til góðra verka, fjölskyldukona varstu mikil og svo sannarlega elskaðir þú gullmolana þína Fanneyju og Halla alveg út af lífinu og ekki má gleyma fal- legum barnabörnunum sem þú og Pétur eignuðust. Verndi þig englar, elskan mín, þá augun fögru lykjast þín; líði þeir kringum hvílu hljótt á hvítum vængjum um miðja nótt. Nei, nei það varla óhætt er englum að trúa fyrir þér; engill ert þú og englum þá of vel kann þig að lítast á. (Steingrímur Thorsteinsson.) Elsku Pétur, Fanney, Halli, Hafsteinn, Silja og barnabörn við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Megi Guð og englar fylgja ykkur í sorginni á þessum erf- iðum tímum. Hreinn, Þórunn og börn. ✝ GunnhildurSnorradóttir fæddist á Flateyri við Önundarfjörð 19. ágúst 1922. Hún andaðist í Davis í Kaliforníu 9. ágúst 2011. Gunnhildur var dóttir hjónanna Guðrúnar Jóhann- esdóttur, f. 24.10. 1885, d. 17.1. 1947 og manns hennar, Snorra Sig- fússonar, f. 31.8. 1884, d. 13.4. 1978, fyrrum skólastjóra á Flat- eyri og á Akureyri, síðar náms- stjóra á Norðurlandi. Systkini Gunnhildar voru Örn, f. 1912, d. 1985, Haukur, f. 1916, d. 1958, Jóhannes, f. 1917, d. 2006, Anna Sigrún, f. 1920, d. 2009 og Snorri, f. 1930. Gunnhildur fluttist með for- eldrum sínum frá Flateyri til Akureyrar árið 1930. Þar lauk hún stúdentsprófi árið 1942 og hélt til náms í Bandaríkjunum þá um haustið. Í fyrstu innrit- 1950. Foreldrar Lymans voru hjónin Edward Eric Lorensen, f. 1884, d. 1968, og Marie Jeanette Hasty, f.1900, d. 1960. Lyman og Gunnhildur settust fyrst að um skamma hríð í Rye í New York en fluttust snemma til Orinda við San Francisco-flóann í Kali- forníu. Þar bjuggu þau fram í háa elli. Þau eignuðust þrjár dætur, Önnu Gudrunu, lands- lagsarkitekt , f. 18.2. 1952, Ing- rid Marie, hjúkrunarfræðing, f. 26.9. 1953 og Gildu Jane, lækni, f. 12.4. 1956. Synir Gudrunar og Robert Baxter eru Loren Moore, f. 2.6. 1984 og Gavin Lyman, f. 5.10. 1990. Dætur Ingrid og Charles Mills eru Loa Lorensen, f. 9.8. 1980 og Greta Gunn- hildur, f. 2.6. 1984. Loa á Simon Charles Hubert, f. 14.3. 2008, með Phillippe Gouffier. Dóttir Gildu og Paul Matson er Rosa Grace Edda Mallorson, f. 31.8. 1997. Hún er jarðsett í Weeping Water í Nebraska, fæðingarbæ Lymans eiginmanns hennar. aðist Gunnhildur í American Univers- ity í Washington og lauk þaðan BA prófi í uppeld- isfræði árið 1946 og MS námi frá Cor- nell University í sömu grein. Gunn- hildur kom heim að afloknu há- skólanámi til starfa um eins árs skeið við gáfnapróf á vegum dr. Matt- híasar Jónassonar sálfræðings og háskólaprófessors. Árið 1969 lauk Gunnhildur prófi í bóka- safnsfræðum frá University of California í Berkley. Gunn- hildur var bókavörður við Mart- inez Junior High School 1969- 1979. Þar kenndi hún bóka- safnsfræði. Gunnhildur var skipuð ræðismaður Íslands í San Francisco og Berkeley 1989 og gegndi því starfi til 1997. Gunnhildur giftist manni sín- um, dr. Lyman Lorensen, f. 26.9. 1923, í Akureyrarkirkju 2.9. Við kynntumst Gunnhildi Snorradóttur Lorensen, sem lézt 9. ágúst síðastliðinn, þegar við fluttum til Kaliforníu fyrir hart- nær 30 árum. Hilda var hún köll- uð alla jafna. Frændfólk okkar á Íslandi þekkti Hildu og lagði fyr- ir að knýja dyra hjá henni. Hilda hafði þá búið í Bandaríkjunum í 40 ár, lengst af á San Francisco- svæðinu. Það var okkar lán, því hún tók okkur afar vel og veitti okkur ómetanlegan stuðning við að festa rætur á nýjum og ókunnum slóðum. Hún var hauk- ur í okkar horni alla tíð. Hilda hélt utan til náms í upp- hafi seinni heimsstyrjaldar og ílentist. Við framhaldsnám í Cor- nell-háskóla í New York kynntist hún Lyman Lorensen, bóndasyni frá Nebraska, sem lék dixieland jazz á básúnu í frístundum. Þau urðu hjón og áttu þrjár dætur. Lyman varð farsæll vísindamað- ur við tilraunastofnun orkumála- ráðuneytis Bandaríkjanna í Berkeley og Livermore. Þrátt fyrir langa búsetu er- lendis ræktaði Hilda stöðugt tengslin við Ísland – hún var rammíslenskur heimsborgari. Hún var vel menntuð, fyrst til stúdentsprófs í heimabæ sínum Akureyri og seinna úr háskóla- námi í Washington, New York og Kaliforníu. Það var þess vegna menningarblær á öllu í kringum hana, heimilið bar þess merki og sömuleiðis allt sem hún tók sér fyrir hendur. Hún talaði og skrif- aði kjarnyrt mál og var alltaf jafn ánægjulegt að heyra hana standa vörð um Ísland og ís- lenska þjóð í fortíð og nútíð. Hún var jafnan mjög vel að sér um ís- lensk málefni og var forvitin um það sem var helzt í fréttum á gamla landinu. Naut hún þar mikils frændgarðs á Íslandi og ekki hvað sízt systur sinnar Önnu, sem skildi hismið frá kjarnanum um íslenzk dægurmál eins og henni var einni lagið. Frændræknin var Hildu í blóð borin og aldrei fór milli mála, hversu vænt henni þótti um sitt fólk og hvað hún var stolt af því öllu í blíðu og stríðu. Það var því framúrskarandi vel valið, þegar Hilda var gerð að ræðismanni Íslands í San Franc- isco 1989, eina konan sem gegnt hefur því starfi. Hún hafði einatt verið virk í stjórn Íslendinga- félagsins í Norður-Kaliforníu, þar sem róðurinn var oft þungur. Hún var sérstaklega atorkumikil og ráðagóð á þeim vettvangi sem og öðrum. Hún varð enda dáður og virtur ræðismaður, glæsilegur fulltrúi þjóðarinnar bæði heima og heiman. Fyrir rúmum 10 árum tóku veikindi að herja á Hildu, hún varð að mestu bundin við hjóla- stól og átti erfitt með að tjá sig. Hún var alltaf hörð í horn að taka, föst fyrir og hélt fast við sinn keip í orði og æði – veikindin voru henni því greinileg von- brigði. En hún hélt reisn engu að síður og með Lyman ávallt sér við hlið bar hún byrðar sínar með einstökum þokka til dauðadags. Gunnhildur var einstök kona, sem gott var að þekkja. Það er sjónarsviptir að henni en eftir lifa minningarnar um svipmikinn Íslending. Helga Þorvarðardóttir og Magnús Þrándur Þórðarson. Gunnhildur Snorradóttir Lorensen Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar Guðríðarkirkja auglýsir sal til leigu: Fyrir erfidrykkjur, brúðkaup, fermingar, fundarsalur. Uppl. S. 577 7770 og 663 7143 eða kirkjuvördur@grafarholt. www.gudridarkirkja.is ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG GUNNARSDÓTTIR, Ofanleiti 17, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn 30. ágúst. Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 13. september kl. 15.00. Hanna B. Herbertsdóttir, Þorsteinn Karlsson, Herdís K. Herbertsdóttir, Sturla Stefánsson, Gunnar Herbertsson, Margrét Árnadóttir og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, GUÐMUNDUR ALBERT ELÍASSON fv. kaupmaður á Suðureyri, lést á dvalarheimilinu Hrafnistu Hafnarfirði fimmtudaginn 8. september. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 14. september kl. 11.00. Ingibjörg Jónasdóttir, Ellert Guðmundsson, Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir, Ágúst Ágústsson, Ingibjörg Aþena Ellertsdóttir, Kolka Hvönn Ágústsdóttir, Ragnheiður Elíasdóttir. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VALGEIR ÁSBJARNARSON, Brekkugötu 38, Akureyri, lést mánudaginn 5. september. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 19. september kl. 13.30. Ásta Axelsdóttir, Axel Valgeirsson, Hanna Guðrún Magnúsdóttir, Ásbjörn Árni Valgeirsson, Harpa Hrafnsdóttir, Kristjana Valgeirsdóttir, Ríkarður G. Hafdal, Gunnlaug Valgeirsdóttir, Ríkharður Eiríksson, afa- og langafabörn. ✝ Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi, JÓN GUÐMUNDSSON netagerðarmaður, Kjarrmóum 16, Garðabæ, lést á hjartadeild Landspítalans við Hring- braut mánudaginn 5. september. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 14. september kl. 15.00. Guðbjörg Sigríður Jónsdóttir, Loftur Bjarni Gíslason, Helga Björg Loftsdóttir, Jón Bjarni Loftsson, Ísak Máni Loftsson, Óli Arelíus Einarsson. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SVEINBJÖRG EIRÍKSDÓTTIR, Frostafold 14, Reykjavík, lést fimmtudaginn 8. september. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Ósk Lárusdóttir, Þorsteinn Alexandersson, Logi Guðjónsson, Valgerður Ragnarsdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, MARÍA GUNNARSDÓTTIR, Maja, sjúkraliði, lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn 7. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Þórður Kristinn Guðmundsson, Ívar Örn Þórðarson, Sigríður Vigdís Þórðardóttir, Guðríður Kristín Þórðardóttir, Sölvi Hall, Halla Guðbjörg Þórðardóttir, Sigurjón Veigar Þórðarson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.