Morgunblaðið - 10.09.2011, Síða 43

Morgunblaðið - 10.09.2011, Síða 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011 ✝ Gunnar Hall-dórsson var fæddur að Gunn- arsstöðum í Þist- ilfirði 15. febrúar 1933. Hann lést 31. ágúst 2011. Foreldrar hans voru hjónin Þur- íður Árnadóttir, f. 29.10. 1888, d. 22.7. 1982, frá Gunn- arsstöðum, og Hall- dór Ólason, f. 7.9. 1895, d. 28.7. 1975, f. að Brekku í Hvalvatns- firði. Gunnar var næstyngstur í hópi sjö systkina. Systkini hans eru: a) Arnbjörg, f. 4. febrúar 1922, d. 19. febrúar 2011, eig- inmaður hennar var Höskuldur Guðlaugsson, f. 22. júlí 1911, d. 8. júní 1999, þau áttu 4 börn b) Óli, f. 1. ágúst 1923, d. 2. maí 1987, eiginkona hans var Hólm- október 1947, sambýlismaður hennar er Stefán Jakobsson, f. 18. október 1954, hún á 1 barn. Ævistarf Gunnars var við bú- störf. Gunnar og bróðir hans Óli bjuggu félagsbúi á Gunn- arsstöðum og ræktuðu bæði sauðfé og mjólkurkýr auk þess sem alltaf voru reiðfær hross á bænum. Ræktunarstarf þeirra bræðra í búfjárrækt var lands- þekkt og verðlaunað. Gunnar var afskaplega glöggur á skepnur og hélt vel um bústofn sinn. Hann var náttúrubarn, elskaði landið sitt og þekkti hverja þúfu og hól í nágrenni sínu. Eftir lát Óla bróður síns bjó hann áfram félagsbúi með ekkju Óla, Hólmfríði Kristdórs- dóttur. Gunnar bjó alla tíð að Gunn- arsstöðum allt til ársins 2008 er hann flutti ásamt Hólmfríði mágkonu sinni á Dvalarheimilið Naust á Þórshöfn, þar sem hann bjó til dánardags. Útför Gunnars fer fram frá Svalbarðskirkju í dag, 10. sept- ember 2011, og hefst athöfnin kl. 14. fríður Kristdórs- dóttir, f. 6. júní 1926. c) Árni, f. 21. júlí 1925, d. 21. apríl 1997. d) Hall- dóra, f. 13. febrúar 1928, eiginmaður hennar er Þórólfur Þorgrímsson, f. 30. desember 1928, þau eiga 7 börn. e) Guðný, f. 2. mars 1930, eiginmaður hennar er Snæbjörn Pétursson, f. 31. ágúst 1928, þau eiga 5 börn f) Brynhildur, f. 20. ágúst 1936, eiginmaður hennar var Vilhjálmur Guðmundsson, f. 1. mars 1913, d. 18. ágúst 1980, þau eiga 3 börn. Auk þeirra systkina voru alin upp af Þuríði og Halldóri Hermann Jóhanns- son, f. 25. september 1941, hann á 3 börn og Sigrún Jóns, f. 29. Nú er Gunnar nafni á Gunn- arsstöðum farinn á fund feðra sinna og vildi ég minnast hans í nokkrum orðum. Búskapur á Gunnarsstöðum var hans líf og yndi og öll ræktun var honum hugleikin, hvort sem það var jörðin eða hjörðin. Hann var mjög glöggur á líðan skepnanna sinna og var honum einnig umhugað að eiga úrvals- gripi. Hann var verðlaunaður fyr- ir sauðfjárrækt og nautgripa- rækt, frá honum kom eitt besta kynbótanaut landsins, Þistill frá Gunnarsstöðum, var hann ákaf- lega stoltur af því. En það sem gladdi hann mest og hann var stoltastur af var melgresið sem hann sáði á Gunnarsstaðasandi. Hann var fjárglöggur, og þekkti kindur sínar allar með nafni og samdi hann rit með 2000 ærnöfnum árið 2000. Hann var mjög glöggur á nátt- úruna, grös, blómjurtir, fugla og fénað. Hann var einnig mjög ljóðelsk- ur og kunni ógrynni ljóða og hafði gaman að deila með öðrum. Oft var gaman í eldhúsinu á Gunn- arsstöðum þegar þeir bræður Óli og Gunnar voru í ljóðaham og ekki spillti fyrir hvað afi og amma voru með á nótunum. En eitt var það sem honum vannst ekki tími til að klára, að rækta verðlaunahest. Hann hafði mikið yndi af hestum og folöldum, sá hann oft í þeim „stjörnufák“. Ég var ellefu ára þegar Óli frændi hringdi í Dóru systur sína og bað um ’62 árgerðina í sveitina, var ég öll sumur meira og minna á Gunnarsstöðum meðan Gunnar var með búskap. Oft þegar við vorum búnir að puða í böggum fram á kvöld sagði hann stundum „við skulum leggja á hesta“ og svo var farið á bak og lúinn var fljótur að líða úr manni. Þó að Gunnar væri hættur að búa kom ég samt áfram í sveitina mína. Ég og Árni bróðir plöntuðum skógi á Gunnarsstöðum sem hann hafði mikið yndi af. Ennfremur hjálpuðum við honum að koma upp garði við húsið. Þar sátum við oft frændur og áttum góðar stundir. Í lokin vildi ég þakka nafna fyrir allt sem hann gerði fyrir mig og allt sem við áttum saman. Farðu vel, frændi og vinur. Gunnar Þórólfsson. Heim til Þistil- fagra -fjarðar, svífur hugurinn. Svo orti Óli móðurbróðir minn. Þistilfjörður bernsku minnar var reyndar ekkert sérlega fagur. Þangað fórum við fjölskyldan á sumrum, í minningunni oftast í norðansúld og kulda, ég þjakaður af bílveiki alla leiðina. Enda lá leiðin um krókótta, niðurgrafna og vonda vegi. En í Þistilfirði bjó hins vegar ekkert venjulegt fólk, þar bjuggu stórbændur og miklir andans jöfrar og báru móður- bræður mínir höfuð og herðar yf- ir aðra í því efni, að mínu mati. Aðdáun mín á þeim var tak- markalaus og allt sem þeir gerðu og sögðu var merkilegt og tekið alvarlega. Mér hlotnaðist að fá að dvelja eitt vor á Gunnarsstöðum um 10 ára aldur. Það var mér verðmætt. Mér fannst tíminn lengi að líða en sennilega hafa þetta ekki verið nema 2-3 vikur. Þetta vor voru afi og amma enn á lífi og amma fór að mestu með búsforráð innan húss, alltaf svo blíð, þessi gamla fín- gerða kona, afi var alvörugefinn, las mikið og fúlskeggjaður. Ég tók þátt í vorstörfunum, sem voru öðruvísi en í minni sveit, miklu merkilegri. Árni var þá enn heima, sinnti sínu. Fyrir hádeg- isfréttir í ríkisútvarpinu var alltaf spilaður fugl dagins og þekku þeir bræður þá iðulega, þeir vissu allt. Gunnar annaðist mjólkur- flutninga sveitarinnar til Þórs- hafnar og sá um öll verk heima fyrir. Óli vasaðist í félagsmálum, dýralækningum og yfirleitt öllu því sem þurfti að gera af bæ. Hann gat allt. Einn daginn skrapp hann í Leirhöfn og kom til baka með hyrnda kú, kýr voru hans líf og yndi. Það var gott veð- ur þessar vikur og ég sættist að fullu við Þistilfjörðinn. Mamma kom svo og sótti mig, þó þannig að Óli keyrði okkur heim en í sömu ferð var farið með Árna, hann var að flytja á Sólborg. Gunnar Halldórsson var töffari með báða fætur á jörðinni. Hann var alþýðumenntaður maður, og bóndi af guðs náð. Sauðfé og hest- ar voru hans uppáhaldsskepnur og var hann afar næmur á þarfir og hegðun búsmala síns. Hann og þeir bræður báðir stunduðu ræktunarstarf, bæði í sauðfé og nautgripum svo eftir hefur verið tekið og verið verðlaunað. Þegar hann svo hætti með kýrnar og sneri sér að hrossum, var enn unnið til verðlauna. Hann gætti hjarðar sinnar vel. Á Gunnarsstöðum 2 hafa verið margir sumarpiltar, átti Gunnar í þeim margan uppáhaldslaukinn, fylgdist hann með þeim á lífsins leið, dáðist að þeim og lá ekki á því. Hann var enda barngóður og vinsæll meðal þeirra. Ég hitti Gunnar síðast sl. vor er ég fór með foreldra mína í Þist- ilfjörð í tilefni demantsbrúðkaups þeirra. Þá bauð ég Gunnari í bíl- túr yfir Hófaskarð til að sýna honum leiðina. Því miður fer hann þá ferð með mér flatur, það var ekki ætlunin. Við gleymum því miður of oft að lifa fyrir líðandi stund, alltaf að bíða eftir rétta tækifærinu, en hvaða tækifæri er rétt? Við kveðjum í dag, með virð- ingu og þökk, heiðursmann og mikinn bónda, sem stoltur getur litið um öxl og séð ávöxt erfiðis síns. Nú fær hann að beita hjörð sinni á ótakmörkuð beitlönd hvar geta, leikið lömb í kringum lítinn smaladreng.“ Pétur Snæbjörnsson. Því fækkar óðum fólkinu heima í sveitinni minni í Þistilfirði sem var í blóma lífsins á bernsku- og æskuárum mínum þar nyrðra. Söknuður og eftirsjá fyllir hug- ann í hvert sinn sem við sjáum á bak ættingjum, vinum eða sam- ferðafólki á lífsleiðinni. Nú síðast í ágúst lést á Dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn vinur og frændi, Gunnar Halldórsson bóndi á Gunnarsstöðum, 78 ára að aldri. Um miðbik síðustu aldar var mikill framfarahugur með þjóð- inni. Ný tækni ruddi sér til rúms og bændur voru í óðaönn að vél- væðast og tileinka sér nýjungar sem bæði léttu störfin og bættu kjörin. Um þær mundir tóku bræðurnir Óli og Gunnar Hall- dórssynir við búi foreldra sinna á Gunnarsstöðum II. Um sama leyti tóku Sigfús Aðalbergur Jó- hannsson og Sigríður Jóhannes- dóttir við búi á Gunnarsstöðum I. Hér var valinn maður í hverju rúmi og ferskir vindar léku um þetta fólk og umsvif þess. Mér er í minni hve þeir Gunnarsstaða- menn voru jafnan glaðbeittir og ótrauðir á hverju sem gekk og áhugasamir um menn og málefni. En þótt véltæknin væri gengin í garð var þó enn gripið til þarfasta þjónsins til útreiða og í göngum og smalamennskum. Ég sé þá fyrir mér enn þann dag í dag, Gunnar á Skjóna, Óla á Ljót og Adda á Faxa. Í minningunni er sólskin í Þistilfirði og vaskir menn á ferð, vel ríðandi og síður en svo „hljóðir og hógværir“. Þeim bræðrum búnaðist vel enda harðduglegir og áhuga- samir. Þeir höfðu nokkuð skýra verkaskiptingu sem var þannig að Óli var meira út á við, sinnti kennslu, félagsmálum o.fl. en Gunnar helgaði sig búskapnum heima við. Hann var áhugasamur um allar skepnur og var í essinu sínu á vorin þegar ungviðið var að koma í heiminn. Hann var af- burða verkmaður og vann jafnan langan vinnudag því að nóg voru verkefnin. Hann varð maður véla- aldar og var laginn að stjórna og fást við þær vélar og tæki sem nota þurfti við búskapinn. Um tíma vann hann sem jarðýtustjóri hjá Ræktunarsambandinu og naut þess að beita afli þessarar stórvirku vélar. Gunnar fór að mestu á mis við skólagöngu fyrir utan barnaskól- ann í sveitinni. Hins vegar þyrsti hann í fróðleik og svalaði þeim þorsta með þrotlausum bóklestri. Hann var ljóðelskur með afbrigð- um og kunni „íslensku klassíkina“ að miklu leyti. Þar fyrir utan fylgdist hann með yngri skáldum og var vel viðræðuhæfur á þeim vettvangi. Þá kunni Gunnar ógrynni af lausavísum, vissi til- efni þeirra og þekkti til höfunda flestra. Hann hafði næmt eyra fyrir hrynjandi og ljóðstöfum og flutti hvert ljóð með réttum áherslum og blæbrigðum. Það fór ekki framhjá manni hve hann naut þess að fara með vel ort ljóð. Þar var hann á heimavelli. Um 1980 byggðu þeir Gunnar og Óli þrjátíu og tveggja kúa fjós og hófu rekstur myndarlegs kúa- bús á Gunnarsstöðum. Árið 1987 lést Óli en Gunnar hélt áfram bú- skapnum til ársins 1997. Síðustu árin dvaldi hann á Dvalarheim- ilinu Nausti á Þórshöfn, þá orðinn tæpur á heilsu. Fundir okkar í milli strjáluðust með árunum en nú á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti fyrir góð kynni og trygga vináttu sem aldrei bar skugga á. Ég sendi systrum hans, fjölskyldum þeirra, svo og frænd- liði, sveitungum og vinum hug- heilar samúðarkveðjur og bið þeim guðsblessunar. Óttar Einarsson Gunnar Halldórsson Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 551 3485/896 8284 (24 tíma vakt) Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri - S. 892 8947 ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR frá Ísafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 4. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 12. september kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á vökudeild Landspítalans. Gísli Guðbrandsson, Ólafur Vignir Sigurðsson, Inga Fanney Jónasdóttir, Guðmundur Hafsteinn Sigurðsson, Ásdís Tryggvadóttir, Anna Filippía Sigurðardóttir, Stefán Bjarni Gíslason, Ulrika Fransson, María Sigríður Gísladóttir, Guðbjörg Ólafía Gísladóttir, Gylfi Skarphéðinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JÓNÍNA MARGRÉT GÍSLADÓTTIR, áður til heimilis í Sóltúni 11, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstu- daginn 2. september. Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju mánudaginn 12. september kl. 13.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Félag Alzheimerssjúklinga, www.alzheimer.is. Grímur H. Brandsson, Sigríður Ágústsdóttir, Tómas J. Brandsson, Karen Jónsdóttir, Ágústa Brandsdóttir Hummel, Werner Hummel, Guðbrandur G. Brandsson, Arnheiður Vala Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, FRIÐRIKS PÉTURS VALDIMARSSONAR, Tunguvegi 4, Njarðvík. Ólafía Friðriksdóttir, Birgir Vilhjálmsson, Þórunn Friðriksdóttir, Ragnar Halldórsson, Oddbjörg Friðriksdóttir, Erlendur Borgþórsson, Anna Hulda Friðriksdóttir, Árni Klemenz Eiðsson, Sigrún Alda Jensdóttir, Snorri Snorrason, afa- og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og hlýhug við andlát og útför frænku okkar og vinkonu, ÁSLAUGAR HAFLIÐADÓTTUR lyfjafræðings, Bjarkargötu 12, Reykjavík. Hjördís, Jóhanna, Anna Jóna og Óskar Óskarsbörn og fjölskyldur, Svanhildur Magnúsdóttir og fjölskylda. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, MARTIN J. BEVANS, lést í Tallahassee, Flórída, 28. nóvember 2010. Minningar- og kveðjuathöfn verður haldin í St. Jósefskirkju í Hafnarfirði mánudaginn 12. september kl. 14.00. Guðfinna Mathíesen og fjölskylda. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVAVAR HARÐARSON bifreiðarstjóri, Fróðasundi 3, Akureyri, sem lést á lyfjadeild Sjúkrahússins á Akur- eyri föstudaginn 2. september, verður jarðsunginn frá Akureyrar- kirkju þriðjudaginn 13. september kl. 13.30. Brynhildur Pálsdóttir, Gunnar Hörður Svavarsson, Sigrún Rósa Kjartansdóttir, Páll Svavarsson, Helga Björg Guðmundsdóttir, Ingunn Ósk Svavarsdóttir, Sigurður Ingi Friðriksson og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GEIR ÓSKARSSON bifvélavirki, Stífluseli 2, Reykjavík, andaðist í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 6. september. Útförin fer fram frá Seljakirkju miðvikudaginn 14. september kl. 15.00. Bjarndís Jónsdóttir, Hrefna Geirsdóttir, Birgir Pétursson, Magnea Júlía Geirsdóttir, Einar Már Gunnlaugsson, Jón Bjarni Geirsson, Ragna Jóhanna Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.