Morgunblaðið - 10.09.2011, Blaðsíða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2011
... aðdáendur dásam-
lega týndir í heil-
næmustu rokksköddun sem
er að finna hér á landi. 50
»
Útvarpsleikhúsið flytur Furðuverk-
ið eftir danska leikskáldið Christian
Lollike í íslenskri þýðingu Hjalta
Rögnvaldssonar á sunnudag kl.
14.00 á Rás 1. Í leikritinu veltir Lol-
like fyrir sér þeirri staðhæfingu
þýska tónskáldsins Stockhausen að
um fullkomið listaverk hafi verið að
ræða þegar flugvélarnar flugu á tví-
turnana tvo í New York 11. sept-
ember 2001, en eftir honum var haft:
„Flugvélarnar sem skullu inn í
World Trade Centre, 11. september
2001, eru stærsta og endanlegasta
listaverk allra tíma.“
Christian Lollike veltir upp ýms-
um flötum á atburðunum, eins og
tvískinnungi fjölmiðla sem etja fólk
út í blygðunarkennda og jafnvel of-
beldisfulla hegðun í raunveru-
leikaþáttum; fjölmiðla sem nærast á
skelfingu, blóði og niðurlægingu.
Leikritið er flutt í tilefni þess að
10 ár eru liðin frá þessum atburðum.
Leikstjórinn Inge Faarborg, og
leikendur Friðrik Friðriksson,
Kristján Franklín Magnús, Álfrún
Helga Örnólfsdóttir og Erla Ruth
Harðardóttir.
Furðuverk Danski leikritshöfund-
urinn Cristian Lollike.
Furðuverk
í Útvarps-
leikhúsinu
Danskt leikrit í
danskri leikstjórn
Nú stendur í Hafnarborg sýn-
ing listamannatvíeykisins
Hugsteypunnar sem skipað er
þeim Ingunni Fjólu Ingþórs-
dóttur og Þórdísi Jóhann-
esdóttur. Sýningin hefur yf-
irskriftina „Í bili“ sem vísar til
hins sögulega fyrirbæris
furðustofu eða Wunderkamm-
er sem talið er marka upphaf
safna nútímans og markmið
hennar er að skapa vettvang
fyrir gagnrýna umræðu um þekkingarsköpun og
hlutverk listasafna í því samhengi. Á sunnudag kl.
15.00 ræða þær Ingunn Fjóla og Þórdís um sýn-
inguna og hugmyndirnar að baki henni.
Myndlist
Listamannsspjall
Hugsteypunnar
Ingunn og Þórdís =
Hugsteypan.
Á morgun kl. 16.00 halda
finnski fiðluleikarinn Pasi
Eerikäinen og Jón Sigurðsson
píanóleikari tónleika í Selinu á
Stokkalæk en þeir leika á alls
níu tónleikum á Íslandi og í
Finnlandi í september. Á efnis-
skránni eru fiðlusónötur eftir
Richard Strauss og Johannes
Brahms, Valo eftir finnska tón-
skáldið Jaakko Kuuisto og
Systur í Garðshorni eftir Jón
Nordal.
Veitingar verða bornar fram á tónleikunum.
Miðapantanir eru í síma 864-5870. Selið á Stokka-
læk er á Rangárvöllum en næsti bær er Keldur.
Tónlist
Rómantík á
Stokkalæk
Richard
Strauss
Uppheimar hafa gefið út skáld-
söguna Mannorð eftir Bjarna
Bjarnason. Mannorð er níunda
skáldsaga Bjarna sem hefur
hlotið fjölda viðurkenninga og
verðlauna fyrir verk sín.
Í Mannorði er sagt frá fjár-
glæframanninum Starkaði
Leví, sem hefur farið huldu
höfði frá bankahruni, úthróp-
aður og eftirlýstur fyrir sinn
hlut í íslenska efnahagsundr-
inu. Niðurstaða hans er sú að eina leiðin fyrir
hann til að öðlast aftur þátttökurétt í samfélaginu
sé að verða sér úti um nýtt mannorð – hvað sem
það kostar.
Bækur
Hvað kostar
nýtt mannorð?
Kápa
Mannorðs.
Leikfélagið Sýnir frumsýnir í Gafl-
araleikhúsinu í dag nýja leikgerð af
riddarasögunni um Tristram og Ís-
önd, óbærilega ást þeirra hvort til
annars og grimm örlög sem stíuðu
þeim í sundur. Askur Kristjánsson
og Guðný Lára Árnadóttir fara með
hlutverk elskendanna, en leikstjóri
er Ármann Guðmundsson sem sem-
ur einnig leikgerðina ásamt Guðrúnu
Sóleyju Sigurðardóttur. Verkið verð-
ur aðeins sýnt fimm sinnum.
Sagan af Tristram og Ísönd er ein
þekkasta ástarsaga miðalda en hún
segir frá riddaranum Tristram sem
fengið er það verkefni að vinna ástir
Ísandar Írlandsprinsessu fyrir hönd
frænda síns, Markis Englandskon-
ungs. Þau Tristram og Ísönd fella
hugi saman og forboðið ástarsam-
band þeirra hefst, þrátt fyrir að Ís-
önd giftist Markis.
Upphaflega stóð til að sýna verkið
utan dyra í Elliðaárdalnum í sumar,
en horfið var frá því og ákveðið að
flytja sýninguna inn. Ljósahönnuður
er Benedikt Þór Axelsson, búninga
hannar Dýrleif Jónsdóttir, leikmuni
gerir Jón Örn Bergsson og hannar
hann einnig leikmynd ásamt Ár-
manni Guðmundssyni. Tónlistin í
verkinu er samin af leikhópnum, leik-
stjóra og Birni Thorarensen.
Eins og getið er verður verkið
frumsýnt í kvöld, en síðan verður það
sýnt þriðjudaginn 13. september,
föstudaginn 16., laugardaginn 17. og
svo loks sunnudaginn 18. september.
Sýningar hefjast kl. 20.00 öll kvöldin.
Ármann Guðmundsson hefur leik-
stýrt hátt á annan tug leikrita hjá
áhugleikfélögum víða um land. Hann
hefur líka skrifað á þriðja tug leikrita
sem sýnd hafa verið bæði í atvinnu-
og áhugaleikhúsi og jafnframt samið
tónlist fyrir mörg þeirra. Guðrún
Sóley Sigurðardóttir hefur m.a. sam-
ið leikrit fyrir Leikfélag Hafn-
arfjarðar og sigrað í örleikrita-
samkeppni Þjóðleikhússins.
Leikfélagið Sýnir var stofnað af
áhugaleikurum sem sóttu fyrsta ár
Leiklistarskóla Bandalags íslenskra
leikara árið 1997. Félagið hefur sett
upp á annan tug verka með sérstaka
áherslu á útileiksýningar og farið í
leikferðir út á land. Á meðal verka
sem félagið hefur sett upp eru
Draumur á Jónsmessunótt, Máv-
urinn og Stútungasaga.
Óbærileg ást og
grimm örlög
Leikfélagið Sýnir sýnir nýja leik-
gerð af sögunni um Tristram og Ísönd
Ástir Askur Kristjánsson og Guðný Lára Árnadóttir í hlutverkum sínum.
Margrét Áskelsdóttir
margretaskels@gmail.com
Reykjavík Dance Festival hóf göngu
sína árið 2002. Á hátíðinni gefst
sjálfstætt starfandi danshöfundum,
dönsurum og danshópum tækifæri
til þess að sýna verk sín og mynda
samtal við aðra innan vettvangsins.
Á hátíðinni má sjá allt frá hefð-
bundnum dansverkum yfir í mjög til-
raunakenndar sýningar. Að þessu
sinni verða frumflutt 14 íslensk
dansverk og hér verður leitast við að
gefa innsýn í hátíðina því ekki gefst
rúm til að fjalla um öll verkin.
Hátíðin var sett síðastliðinn
mánudag með dagskrá dansstutt-
mynda sem sýndar voru í Bíó Para-
dís. Hreyfing og dans komu við sögu
í öllum myndunum en viðfangsefni
og framsetning var af ólíkum toga. Í
fyrsta skipti var nú myndlist-
armönnum boðin bein þátttaka á há-
tíðinni og röð innsetninga og vid-
eoverka er til sýnis í Bíó Paradís,
Tjarnarbíó, Dansverkstæðinu og
Kex Hostel. Þar að auki voru fluttir
tónlistargjörningar.
Undanfarin ár hafa myndlist-
armenn, tónlistarmenn, tónskáld og
hönnuðir unnið í nánu samstarfi við
danshöfunda hátíðarinnar að gerð
verkanna, en í ár sömdu tveir mynd-
listarmenn dansverk í samstarfi við
dansara og fólk úr öðrum list-
greinum. Þetta voru þau Bjargey
Ólafsdóttir með verkið Nú Nú og
Snorri Ásmundsson og Sigrún
Gunnarsdóttir með dansgjörninginn
INVERSUS.
Á miðvikudag var opnun sýning-
ardagskrárinnar. Verkið Tanz var
fyrsta sviðsverk hátíðarinnar. Verk-
ið var unnið af danslistahópnum
Trans, en hann skipa Ásrún Magna-
dóttir, Berglind Pétursdóttir, Kara
Hergils, María Þórdís Ólafsdóttir,
Þorbjörn G. Kolbrúnarson og Aude
Busson. Sviðsmyndin er mjög ein-
föld, aftast á sviðinu er stórt tjald
sem varpað er á hljóðlausum vid-
eoupptökum af dönsurunum í vinnu-
ferli dansverks. Á gólfinu er plötu-
spilari, tölva og aðrar græjur
plötusnúðsins sem er sjálfur inni á
sviðinu mestan hluta verksins. Að
öðru leyti skapa dansdúkurinn og
veggir salarins sjálfa sviðsmyndina.
Sviðsheimur, myndheimur og hljóð-
heimur vinna vel saman og takast á
við spurninguna ,,Hvað er dans?“
Verk Samsuðunnar og co, What a
Feeling tekst einnig á við spurn-
ingar sem tengjast forminu, en á allt
annan hátt en verkið Tanz. Sam-
suðan og co, vann verk sitt út frá
dansaranum sjálfum, aðstæðum sem
gera honum oft ekki kleift að tjá það
sem honum er hugleiknast. Dans-
arar verksins eru þrír. Saga Sigurð-
ardóttir, Berglind Pétursdóttir og
Cameron Corbett. Hver dansari seg-
ir nokkur orð og dansar ,,uppáhalds"
dansinn sinn, sem var saminn með
bréfaskriftum og skype- æfingum og
Mikil og fjöl-
breytileg gróska
Morgunblaðið/Golli
Fjölbreytni Rýmisverkið Court 0.9144m í portinu við hlið Tjarnarbíós sem
Raven vann sýndi fram á þá miklu breidd sem danslistin býr yfir.
Fjórtán íslensk dansverk frumflutt
sagður byggjast á draumum og
þrám hvers dansara fyrir sig. Þessi
uppsetning vekur margar spurn-
ingar um hvað það er sem dansarinn
þráir heitast að gera og hvort áhorf-
endur fái einhverntímann að sjá al-
vöru einlægni í dansverki.
Verk Margrétar Söru Guðjóns-
dóttur; Dedication fjallaði að miklu
leyti einnig um hlutverk dansarans
og það hvernig tjáning á sviði getur
leitt til sterks sambands á milli þess
sem sýnir og þess sem horfir. De-
dication er enn í vinnslu og verður
spennandi að sjá hvernig hugmyndin
og prufukeyrslan leiðir verkið áfram
í sína endanlegu mynd.
Lára Stefánsdóttir undir merkj-
um Pars Pro Toto, flutti öllu hefð-
bundnara dansverk, sem flokka má
sem hugmyndaverk, þar sem áhorf-
endur sköpuðu sögur í huganum
þegar þeir horfðu á fallegar hreyf-
ingar dansaranna.
Danslistahópurinn Raven vann
rýmisverk í portinu við hlið Tjarn-
arbíós. Verkið nefndist Court
0.9144m. Áhorfendur kynntust ólík-
um persónum sem spruttu upp innan
og utan dyra. Verkið var vel unnið og
sýndi einkum fram á þá miklu breidd
sem danslistin býr yfir.
Fjölbreytileiki Reykjavík Dance
Festival gerir það að verkum að allir
eiga að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Því hvet ég alla til þess að nýta
tækifærið og kynna sér þá miklu og
fjölbreytilegu grósku sem er meðal
sjálfstætt starfandi danshöfunda og
dansara.