Morgunblaðið - 13.09.2011, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011
Hæstvirtur fjár-
málaráðherra, Stein-
grímur J. Sigfússon.
Það er auðvelt að
skilja reiði þína í ljósi
þess, að stefna sú,
sem þú hefur barist
fyrir lengi hefur aldr-
ei hlotið hljómgrunn
hjá þjóðinni, sennilega
vegna þess, að hún
hefur aldrei virkað.
Þess vegna hefur
Sjálfstæðisflokkurinn oftast haft
yfirhöndina, því hann stendur fyrir
stefnu sem virkar.
Þú hefur, ásamt fleirum í þínum
hópi, ákveðið að stefna Geir H.
Haarde fyrir landsdóm. Þótt flestir
séu á þeirri skoðun, að Geir hafi
ekkert til saka unnið og ég tilheyri
þeim hópi, þá er ekki hægt að
koma í veg fyrir það, að grunaðir
menn sæti rannsókn og hljóti dóm
að lokinni rannsókn.
En nú hefur engin alvöru rann-
sókn farið fram, varðandi Geir,
þrátt fyrir að ansi langur tími sé
liðinn frá því að þið ákváðuð að
ákæra hann. Slíkt er vitanlega
óviðunandi, því í réttarríki hafa
sakborningar ákveðna réttarstöðu,
sem ekki er virt í máli forsætisráð-
herrans fyrrverandi.
Hann var aldrei kallaður fyrir
þingnefndina sem fjallaði um hans
mál, það eitt og sér eru ekki góð
vinnubrögð eins og gefur að skilja.
En þetta mál fer sína leið og þá
kemur væntanlega í ljós, hvort
Geir er sýkn eða saklaus.
Nú er það samt þannig, að kom-
ið hefur í ljós, að Geir H. Haarde
tók hárrétta ákvörðun í kjölfar
hrunsins, ásamt fleirum því hann
var ekki einn að verki. Margt
bendir til þess að hann hafi staðið
sig mjög vel að flestu leyti, en við
bíðum bara eftir niðurstöðu dóms-
ins.
En eitt mættir þú læra af góð-
menninu sem þú ákvaðst að ákæra
með sorg í hjarta. Það er að rann-
saka þín verk, til þess að hið sanna
komi í ljós.
Geir setti á fót rannsóknarnefnd
í kjölfar hrunsins, til þess að fara
yfir eigin verk og það átt þú að
gera líka, ef þú ert sá sem þú gefur
þig út fyrir að vera.
Flestir eru sammála því, að skip-
un Svavars Gestssonar í samninga-
nefndina vegna Icesave á sínum
tíma voru mjög stór og alvarleg
mistök. Þjóðin með forsetann í
broddi fylkingar reddaði þér
reyndar fyrir horn í þessu máli, því
ljóst var að stórar upphæðir hefðu
lent á skattgreiðendum ef samn-
ingar þeir sem Svavar Gestsson
gerði, hefðu náð fram að ganga.
Það þarf að rannsaka vinnu-
brögð þín í þessu máli, þú vilt
meina að rétt hafi verið staðið að
málum, en Geir vill líka meina að
hann sé saklaus. Taka ber fram að
ég er sammála Geir, en ég er eng-
inn dómstóll.
Þessi mál þarft þú
að gera upp, þú ert
líka áhugamaður um
hin ýmsu uppgjör og
vilt hafa allt uppi á
borðum.
Svo hefur þú staðið
fyrir því, að hátt í tvö-
hundruð milljarðar
hafa verið settir til að
bjarga fjármálafyr-
irtækjum frá falli.
Margir eru á því að
það hafi verið mistök,
þú segir ákvörðunina
vitanlega hafa verið rétta. Er ekki
best að láta fara fram rannsókn á
þessu máli, eins og varðandi skip-
un Svavars Gestssonar?
Þú fullyrtir að hann myndi landa
stórkostlegum samningi, Svavar
sagði sjálfur að með samþykkt
samningsins væri búið að koma í
veg fyrir allan niðurskurð í heil-
brigðis- og menntamálum. Þú gæt-
ir látið rannsaka hvort þetta hafi
verið rétt hjá þér og Svavari.
Einnig máttu gjarna láta skoða
skjaldborgina sem erlendir vog-
unarsjóðir fengu að njóta góðs af,
það lítur frekar illa út, en sjáum
hvað rannsóknin leiðir í ljós.
Þótt málsmeðferðin í tilfelli
Geirs sé réttarhneyksli, þá hefur
þú stigið ákveðið skref sem þarf að
stíga til fulls.
Nú er komið fordæmi fyrir því,
að stjórnmálamenn þurfi að svara
til saka fyrir sín verk. Til þess að
vera sjálfum þér samkvæmur, þá
þarft þú að ganga alla leið og láta
rannsaka sjálfan þig líka.
En eftir að þessi lánlitla vinstri
stjórn hefur horfið frá völdum, þá
vonast flestir eftir því, að pólitísk
réttarhöld verði ekki framar við-
höfð hér á landi.
Ekki vonast ég eftir því að þú
hljótir refsingu ef kemur í ljós, að
það sem marga grunar, að þú hafir
gert ámælisverð mistök varðandi
Icesave og fjárausturinn í fjár-
málafyrirtækin. Ég vil bara að
sannleikurinn komi í ljós, varla ótt-
ast þú hann?
Eflaust veltir þú fyrir þér, hvers
vegna maður eins og ég, sem kom-
inn er af verkamönnum, sjómönn-
um og bændum langt aftur í ættir
og hefur stundað verkamanna-
vinnu á sjó lengst af, sé sjálfstæð-
ismaður en ekki í þínum flokki.
Þá get ég gert orðin sem Friðrik
mikli lét falla varðandi mennina og
hundinn að mínum og sagt: „Því
meira sem ég kynnist vinstri flokk-
unum, því vænna þykir mér um
Sjálfstæðisflokkinn minn.“
Með vinsemd og virðingu þeirri
sem titli þínum ber að sýna.
Eftir Jón
Ríkarðsson
» Til þess að vera sjálf-
um þér samkvæmur,
þá þarft þú að ganga
alla leið og láta rann-
saka sjálfan þig líka.
Jón Ragnar
Ríkarðsson
Höfundur er sjómaður.
Opið bréf til
hæstvirts fjár-
málaráðherra
Það kom undirrit-
uðum ekkert á óvart að
sjá í Mbl. grein eftir
Harald Briem og Þórólf
Guðnason hinn 20.
ágúst sl. fulla af ósann-
indum, reyndar heitir
greinin þeirra „End-
urteknar rangfærslur
um HPV-bóluefni“.
Þess ber þó að geta að
greinin er ekki bara full
af rangfærslum heldur
hroka, ásökunum, orðhengilshætti og
síðan eru hlutir teknir úr samhengi,
en þetta virðist vera eini mótleikurinn
hjá þeim að láta eins og þeir séu að
leiðrétta eitthvað aftur.
Það verður ekki annað sagt en að
áróðursherferðin fyrir HPV-
bólusetningum sé nú hafin hér á landi,
þar sem embættismenn auk þess hika
ekki við að reyna að koma ósann-
indum upp á fólk. Þrátt fyrir að mikið
af upplýsingum sé til frá heilbrigð-
isfólki og fórnarlömbum varðandi al-
varlegar aukaverkanir, 97 dauðsföll,
8.838 skráðir á bráðamóttöku, 2.231
skráður á sjúkrahúslegur, 4.531 er
náði ekki bata og af þeim 732 er hlutu
varanlega örorku eftir HPV-
bólusetningu skv. VAERS og
(www.sanevax.org ), þá hefði maður
haldið að Haraldur og co tækju það
mjög alvarlega. Nei en svo er ekki,
þar sem aðaláhyggjuefnið virtist vera
sterkar grunsemdir sem undirritaður
nefnir, en sem Haraldur og co. kjósa
að nefna ásakanir. Það er orðið tals-
vert síðan menn heyrðu það frá Bret-
landi að læknar fengju greidd 5,25
pund fyrir hverja svínaflensubólu-
setningu (ktradionetwork.com/health/
doctors-vaccinate-for-profit, og sjá
einnig greinina hjá mercola.com,
WHO Advisor Secretly Pads Pockets
with Big Pharma Money), en hvernig
er það voru menn hér á landi hafðir
útundan?
Þessum mönnum hér finnst það
sniðugt að svara með nákvæmlega
engum tölum eða niðurstöðum. En
það eina sem maður kemur auga á í
þessu sambandi frá þeim er, að:
„… margvíslegir at-
burðir tengjast bólu-
setningum“ ofan á allt
þetta þá sýna þeir manni
þann hroka, þar sem
þeir fullyrða að menn
hafi ekki kynnt sér VA-
ERS-gangnagrunninn,
auk þess sem þessir
embættismenn hér loka
algjörlega augunum fyr-
ir öllum frásögnum fórn-
arlamba sem til staðar
eru á öllu netinu.
Það þykir greinilega
sniðugt að nota orðheng-
ilshátt og þannig koma ósannindum á
fólk. Þegar það kemur hvergi fram í
greininni að CDC og FDA veiti ekki
markaðsleyfi, heldur segir, að VA-
ERS- grunnurinn veiti ekki markaðs-
leyfi (Mbl 15. ágúst sl.), þar sem leyfin
eru veitt hjá stofnunum CDC og FDA
er reka í samstarfi VAERS-
gagnagrunninn, eða eins og kemur
fram: „VAERS- grunnurinn sem rek-
inn er í samstafi CDC og FDA veitir
ekki markaðsleyfi í Evrópu og Banda-
ríkjunum.“ Það er hins vegar þekkt í
Bandaríkjunum að stjórnendur (Re-
gulators) fyrrgreindra stofnana virka
illa. (Vaccine Epidemic, L.K. Habakus
og M. Holland, bls. 137).
Þessum embættismönnum þykir
sniðugt að slíta hluti úr samhengi, en
þannig reyna menn að komast hjá því
að svara gagnrýni vegna umdeildra
tölfræðilegra niðurstaðna, þar sem
forsendurnar á bak við útreikningana
eru dregnar í efa, eða þar sem er vitað
til þess að: „… þriðjaheimsríkin voru
höfð með þrátt fyrir að þau mörg hver
búi ekki yfir pap-skoðunum“ (Mbl. 15.
ágúst sl.) og því séu forsendurnar
rangar með þ.e.a.s. 70%.
Haraldur og félagar taka allri svona
gagnrýni persónulega og ekki fræði-
lega, fullyrða bara að „Vísindarann-
sóknir sýna að bóluefnin koma í veg
fyrir flestar forstigsbreytingar“ en
nákvæmlega ekkert um þessa gagn-
rýni, eða umdeildu tölfræðilegu út-
reikningana á heimsvísu (worldwide)
með hin u.þ.b. 70%.
Það þykir ekki heldur gáfulegt að
kenna öðrum um uppspuna, þegar
uppspuninn liggur hjá þeim sjálfum. Í
bæði bókinni hans dr. Todd og í
ensku leiðbeiningum (package insert
júli 2007) með Gardasil bóluefninu
kemur það fram, að 17 hafi látist af
21.464 þátttakendum og 102 hlotið al-
varlegar aukaverkanir í klínískum
rannsóknum (What the Pharmaceuti-
cal Companies Don’t Want You To
Know About Vaccines, bls. 90-91). Að
sama skapi þykir það ekki gott að láta
sem ummæli, eins og frá hinni þekktu
vísindakonu Diane Harper séu ekki
til, þegar netið er með þessar fullyrð-
ingar frá henni úti um allt, varðandi
það, að bæði HPV-bóluefnin munu
gera lítið gagn, sjá; „Controversial
Drug Will Do Little To Reduce
Cervical Cancer Rates“ eftir Susan
Brinkmann í því sambandi og grein-
ina „HPV Vaccine Near-Useless:
Diane Harper“ á qi-spot.com/2009/10/
30/hpv-vaccine-near-useless-diane-
harper. Ekki nóg með að þessir menn
hafni öllum frásögnum fórnarlamba
eins og t.d. Carley Steele, Rebecca
Ramagge, Paige Brennan, Ashleigh
Cave, Hattie Vickery, Lauren Smith,
Sarah Chandler, Leah Mann, Debbie
Jones og tölum frá heilbrigðisfólki
um 97 dauðsföll 8.838 skráð tilfelli á
bráðamóttöku, 4.531 er náði ekki bata
og af þeim svo 732 er hlutu varanlega
örorku eftir HPV-bólusetningu
(http://www.sanevax.org ) og hvað
eina. En hvernig stendur á því að
þessir embættismenn hér geta ekki
svarað áskorun með það að vera kvik-
myndaðir með að prófa 3 skammta af
HPV-bóluefninu á sjálfum sér, bólu-
efni sem þeir vilja endilega troða inn
á allar 12 ára stúlkur, með allra
handa fullyrðingum um að bóluefnið
sé öruggt, fullkannað og hvað eina?
HPV-bóluefni dauðans alvara
Eftir Þorstein Sch.
Thorsteinsson » Það verður ekki
annað sagt en að
áróðursherferðin fyrir
HPV- bólusetningum sé
nú hafin hér á landi …
Þorsteinn Sch.
Thorsteinsson
Höfundur er formaður Samstarfs-
nefndar trúfélaga fyrir heimsfriði
og er meðlimur í félagi áhugamanna
um bóluefni.
Hver verða næstu
skrefin í kjarabaráttu
eldri borgara? Næsta
skrefið er að afturkalla
kjaraskerðinguna sem
Árni Páll Árnason þá-
verandi félagsmálaráð-
herra lét lögleiða 1. júlí
2009. Þá voru kjör eldri
borgara og öryrkja
skert verulega vegna
kreppunnar en tekið
fram, að um tímabundnar ráðstafanir
væri að ræða. Nú er aðeins farið að
rofa til, hagvöxtur að byrja og staða
ríkisfjármála hefur batnað mikið frá
því bankahrunið skall á. Þess vegna
er tímabært að afturkalla kjaraskerð-
inguna frá 1. júlí 2009.
Voru sviptir grunnlífeyri
almannatrygginga
Skerðing tryggingabóta var stór-
aukin 1. júlí 2009. Frítekjumark
vegna atvinnutekna, sem hafði verið
tæpar 110 þúsund krónur á mánuði,
var fært niður í 40 þúsund krónur á
mánuði. Það var sem sagt ákveðið að
refsa þeim eldri borgurum, sem voru
að reyna að vinna svolítið. Ég efast
um, að ríkið hafi grætt mikið á þess-
ari ráðstöfun. Margir eldri borgarar
hafa hætt að vinna vegna þessa og við
það missir ríkið skatttekjur. Það
hefði verið óhætt að hafa frítekju-
markið óbreytt. Tilfinnanlegast var
þó, að ákveðið var að láta greiðslur úr
lífeyrissjóði hafa aukin
áhrif á útreikning
grunnlífeyris. Við þessa
ráðstöfun missti mikill
fjöldi eldri borgara
grunnlífeyri sinn og
hefur nú engan lífeyri
frá almannatrygg-
ingum. Tekjur 5210
eldri borgara frá al-
mannatryggingum
lækkuðu við þetta. Mér
er til efs, að þessi ráð-
stöfun standist jafnræð-
isreglu stjórnarskrár-
innar. Mikill fjöldi eldri borgara fær
nú ekki krónu frá almannatrygg-
ingum en hefur þó borgað til þeirra
allan sinn starfsferil.
Þegar almannatryggingar voru
stofnaðar var tekið skýrt fram, að
þær ættu að vera fyrir alla án tillits til
stéttar og efnahags. Eftir breytingu
þá, sem Árni Páll gerði 1. júlí 2009,
eru almannatryggingar fyrir ákveðin
hóp fólks en ekki fyrir alla. Það er
verið að breyta tryggingunum í átt til
fátækraframfærslu. Þetta gengur
þvert á upphaflegt markmið al-
mannatrygginga. Sem dæmi um það
hvernig þetta hittir vissan hóp fyrir
má nefna, að þegar 50 þús. króna ein-
greiðsla var ákveðin fyrir launþega
og bótaþega almannatrygginga í ný-
gerðum kjarasamningum var ákveðið
að þeir, sem hefðu ekki grunnlífeyri
fengju ekki heldur þessa eingreiðslu.
Fyrst er þessi hópur strikaður út úr
kerfi almannatrygginga og síðan er
hann sviptur kjarabótum, sem samið
er um, að launþegar og lífeyrisþegar
eigi að fá.
1. júlí 2009 var tekjutryggingin
einnig skert beint, þar eð skerðing-
arhlutfall hennar var hækkað úr
38,35% í 45%. Við þetta lækkuðu
tekjur 18.940 eldri borgara.
Lífeyrissjóður skerði ekki
tryggingabætur
Það verður að afturkalla alla kjara-
skerðinguna frá 2009. En auk þess
þarf að afnema með öllu skerðingu
tryggingabóta vegna greiðslna úr líf-
eyrissjóði. Launþegar, sem greitt
hafa í lífeyrissjóð allan sinn starfs-
feril, eiga að njóta að fullu lífeyris
síns þegar þegar fara á eftirlaun. En
það gera þeir ekki ef tryggingabætur
eru skertar á móti greiðslum úr líf-
eyrissjóði eins og nú er gert. Þessa
skerðingu verður að afnema strax.
Það var aldrei meiningin, þegar líf-
eyrissjóðirnir voru stofnaðir, að þeir
mundu skerða tryggingabætur. Líf-
eyrissjóðirnir áttu að vera viðbót við
lífeyri almannatrygginga.
Lífeyrissjóðsgreiðslur skerði
ekki tryggingabætur
Eftir Björgvin
Guðmundsson » Það er verið að
breyta (almanna-)
tryggingunum í átt til
fátækraframfærslu.
Þetta gengur þvert á
upphaflegt markmið al-
mannatrygginga.
Björgvin Guðmundsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500
www.flis.is • netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Eyrnalokkagöt
sími 551 2725
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100