Morgunblaðið - 13.09.2011, Page 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011
C.P.’s þjónusta. Annast bókhalds-,
eftirlits- og innheimtustörf. Hafið
samband í síma 893 7733.
Bókhald og reikningsskil
Ársreikningar, bókhald, laun,
ráðgjöf og stofnun félaga.
Reynsla, þekking, traust.
Viðskiptaþjónustan,
Dalvegi 16d, Kópavogi.
vth.is / arni@vth.is / s. 517 0100.
Við bjóðum alla bókhalds-
þjónustu.
Traust og gagnkvæmur trúnaður.
www/fsbokhald.is.
Fyrirtæki og samningar ehf,
Suðurlandsbarut 46,
108 Reykjavík. S. 5526688
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897-9809.
Byggingavörur
GLUGGA OG HURÐASMÍÐI
Smíða glugga, hurðir og opnan-
lega glugga í öll hús úr völdu efni.
Stuttur afgreiðslu frestur. Sann-
gjarnt verð.
EÐALGLUGGAR OG HURÐIR
sími 899-4958.
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Húsvagnageymslan Þorlákshöfn
Eigum nokkur laus pláss í vetur.
Upplýsingar í síma 893 3347.
Ferðavagnageymsla Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi,
hjólhýsi, báta og fleira í upphituðu
rými. Gott verð.S: 612-6130
E-mail solbakki.311@gmail.com.
Gónhóll Eyrarbakka
Geymslur og gisting
Geymdu gullin þín í Gónhól.
Uppl., geymsla, s. 771-1936.
Uppl., gisting, s. 771-1940.
Pantanir og skráning
mttp://www.gonholl.is
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 m²
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is,
Leó, sími 897 5300.
Geymslur
Til sölu
Evrur til sölu
3% yfir seðlagengi.
Sími 857 6711.
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Óska eftir Bílaþjónusta
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu. Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is - s. 551 6488.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Hjólhýsi
A Liner Cabin A2 hjólhýsi. Kemur
á götuna 2010. Ísskápur, örbylgju-
ofn, eldavél, vifta og wc. Hús fyrir
veiðimenn og fjallafara. Verð 2.520
þús. Upplýsingar í símum 893 7065
og 567 0333.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Kaupi gamla mynt og seðla
Kaupi gömul mynt- og seðlasöfn. Met
og geri tilboð á staðnum. Áralöng
reynsla. Kaupi einnig minnispeninga
og orður. Gull- og silfurpeninga.
Sigurður, s. 821 5991.
DC TIG/MMA rafsuðuvélar -
2 í einni
Tig/MMA 200 pinnasuðuvélar á
lager, barkar fylgja. Afburðaverð.
Eigum MIG-vélar og pinnasuður og fl.
Auto dark og Shine rafsuðuhjálmar.
www.holt1.is - S. 435 6662.
Vélar & tæki
✝ Svavar Harð-arson fæddist á
Ytri-Varðgjá í
Eyjafjarðarsveit 30
apríl 1952. Hann
lést á lyfjadeild
Sjúkrahússins á Ak-
ureyri 2. september
2011.
Foreldrar hans
voru Hörður
Tryggvason og El-
ínborg María Ein-
arsdóttir. Svavar átti eina hálf-
systur, Rósu Harðardóttur, og
þrjú alsystkini, Tryggva, Sigríði
og Birnu.
Svavar ólst upp á Ytri-
Varðgjá og gekk í Barnaskólann
á Laugalandi. Hann vann ýmis
störf á uppvaxtarárum sínum, þó
aðallega sveitastörfin heima við.
Páll, f. 1975, í sambúð með
Helgu Björgu Guðmundsdóttur,
f. 1969, hennar börn úr fyrra
hjónabandi: Ingibjörg, f. 1989
og Edda, f. 1994. 3) Ingunn Ósk,
1978, gift Sigurði Inga Friðriks-
syni, f. 1972, saman eiga þau Há-
kon Val, f. 2004 og Vigdísi
Önnu, f. 2010.
Svavar vann við skipalöndun
þegar búskapur þeirra hjóna
hefst. 1974 er hann hinsvegar
lánaður í einn mánuð sem bíl-
stjóri í Brauðgerð KEA sem
teygðist í 25 ára farsælt starf.
Fjölskyldan flutti 13. júní 1981 í
Fróðasund 3 þar sem þau hjónin
hafa búið síðan. Eftir að Brauð-
gerð KEA var lögð niður vann
Svavar í nokkur ár á Skinnaiðn-
aðinum. Síðustu sjö árin vann
hann á Plastiðjunni Bjargi í
kertagerðinni í góðra vina hópi.
Útför Svavars fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 13. sept-
ember 2011, kl. 13.30.
Hann kynntist
eiginkonu sinni,
Brynhildi Páls-
dóttur frá Aðalbóli í
Hrafnkelsdal, árið
1972 og giftu þau
sig 25. júlí 1973.
Þeirra fyrsta heim-
ili var í Ægisgötu
16, þau fluttu þar
inn 3. desember
1973. Þar eignuðust
þau sín þrjú börn. 1)
Gunnar Hörður, f. 1974, giftur
Sigrúnu Rósu Kjartansdóttur, f.
1973, hans börn úr fyrra hjóna-
bandi eru Jón Svavar, f. 1998 og
Sigrún Brynja, f. 2004; börn Sig-
rúnar úr fyrra hjónabandi: Óð-
inn, f. 1991, Logi, f. 1993, Kjart-
an, f. 1995, Viktoría Sól, f. 1997
og Benjamín Árni, f. 2002. 2)
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Svavar Harðarson hóf vinnu á
Plastiðjunni Bjargi – Iðjulundi
fyrir sjö árum síðan. Hann var
með slæmt mein í öxl og þurfti að
þjálfa upp starfsþrek að nýju.
Innan skamms tíma var Svavar
orðinn fastur starfsmaður sem
sinnti þeim verkum sem þurfti að
vinna á stórum vinnustað. Hann
gekk til verka af vandvirkni, sam-
viskusemi og trúmennsku, vildi
leysa hvers manns vanda og var
góður félagi allra.
Hans er nú sárt saknað af
vinnufélögum. Reyndar neitum
við enn að trúa að hann komi ekki
í vinnu sína meir. Þrátt fyrir veik-
indi og lyfjameðferð undanfarið
ár hefur hann mætt til starfa
flesta daga og við vinnufélagarnir
höfum fylgst með baráttu hans við
hinn illvíga sjúkdóm.
Trúmennska Svavars, sam-
viskusemi og samhygð er okkur
öllum góð fyrirmynd. Við þökkum
kynnin og samstarfið.
Innilegar samúðarkveðjur
sendum við til eiginkonu og fjöl-
skyldu Svavars.
Fyrir hönd samstarfsfólks
Ólöf Leifsdóttir.
Í dag kveð ég góðan vinnu-
félaga, Svavar Harðarson. Þú
varst vinur í raun, ljúfur, svolítið
stríðinn og gafst mikið af þér. Það
var mér mikils virði þegar þú
ásamt öðrum fékkst mig til að
koma inn í kertagerðina á vinnu-
staðnum okkar. Þau skref voru
mér erfið þar sem ég hélt að ég
réði ekki við starfið, en þú elsku
vinur stappaðir í mig stálinu og
sagðir að ég gæti þetta vel.
Ég mun sakna þín sárt úr
kertagerðinni því á meðal okkar
sem þar vinna myndaðist traust
samband virðingar og væntum-
þykju sem þú áttir stóran hlut í að
skapa. Ég er mjög þakklát fyrir
að hafa fengið að vinna þér við
hlið og einnig fyrir alla þá kennslu
sem ég fékk frá þér. Einnig þótti
mér vænt um þær stundir sem við
gripum í spil í pásum.
Ég sendi fjölskyldu Svavars
mínar dýpstu samúðarkveðjur og
megi Guð friðarins vera með ykk-
ur.
Lítil bæn til Guðs: „Jesús viltu
frelsa mig. Jesús viltu lækna mig.
Jesús viltu styrkja mig. Jesús
viltu fyrirgefa mér. Jesús vertu
mér syndugum líknsamur. Jesús
viltu hjálpa mér. Jesús – ég fel
mig í þínar hendur.“
Eygló Hjaltalín.
Svavar Harðarson
Kristjana Björg
Gyðríður Halldórs-
dóttir, eða Jana eins og hún var
einfaldlega kölluð, var ein af
þeim konum sem var hollt fyrir
ungar stúlkur að kynnast og
læra af. Jana var ein af eldri
systrum mömmu okkar, Hin-
riku, og sú systir, sem fylgdi
mömmu og okkur fjölskyldunni
frá því við systkinin munum eft-
ir okkur og til dagsins í dag.
Samgangur var töluverður á
milli þeirra systra og nutum við
systkinin góðs af. Bæði fengum
við að fara í skólafríum vestur á
Kristjana Björg Gyðríður
Halldórsdóttir
✝ KristjanaBjörg Gyðríður
Halldórsdóttir
fæddist 17. sept-
ember 1927. Hún
lést 30. ágúst 2011.
Útför Kristjönu
fór fram frá Ás-
kirkju 8. september
2011.
Ísafjörð til Jönu og
vera í smá tíma á
hverju sumri þar til
Jana flutti suður.
Jana kom oft til
okkar á Miðvanginn
og heimsótti
mömmu dagparta.
Það sem heillaði
einna mest í fari
Jönu var glaðlyndi
hennar, væntum-
þykja og áhugi fyrir
fólkinu sínu og einstaklega góð
nærvera. Jana var rík af börn-
um, tengdabörnum, barnabörn-
um, barnabarnabörnum og
barnabarnabarnabörnum. Dáð-
umst við oft að því hvernig hún
hélt utan um fólkið sitt, fylgdist
með og ræktaði tengslin.
Lífið fór engum silkihönskum
um Jönu. Hún varð ekkja ung,
hafði fyrir mörgum börnum að
sjá, missti dóttur sína unga úr
veikindum og vann erfiða verka-
mannavinnu. Ekki varð þetta
mótlæti til að draga úr Jönu
heldur gaf henni kraft til að
halda áfram á jákvæðum nótum
og gera það besta úr þeim efni-
við sem hún hafði úr að spila.
Jana var mikil hannyrðakona
og handavinna og föndur hennar
aðaláhugamál. Hún var ávallt
með margt í einu á prjónunum.
Alltaf þegar við hittumst bar
handavinna á góma og sýndi hún
okkur að hverju hún var að
vinna og alltaf fylgdi með saga,
handa hverjum handavinnan
væri ætluð og af hvaða tilefni.
Með Jönu er kvödd merk
kona sem hefur skilað ríkulegu
ævistarfi, kona sem okkur þótti
vænt um og við erum þakklát
fyrir að hafa kynnst og fengið að
fylgja.
Fyrir hönd fjölskyldna okkar
Sigurðar, Sigríðar, Rannveigar
og Birgis sendum við börnum
Jönu, ættingjum og öðrum vin-
um innilegar samúðarkveðjur.
Sigríður.
Elsku Magga
Takk fyrir alla þá væntum-
þykju sem þú hefur sýnt mér, öll
spjöllin og alla samveruna. Þú
varst yndisleg og þín verður sárt
saknað.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
Margrét
Pétursdóttir
✝ Margrét Pét-ursdóttir fædd-
ist í Vesturbænum
við Stóru-Vatns-
leysu, 2. júlí 1918.
Hún lést á Hrafn-
istu í Hafnarfirði
31. ágúst 2011.
Útför Margrétar
var gerð frá Hafn-
arfjarðarkirkju 12.
september 2011.
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að
minnast
svo margt sem um hug minn
fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Takk fyrir allt og allt.
Þín frænka,
Fjóla Sigrún.
Ég man ennþá þetta augna-
blik, sennilega árið 1974, þegar
við 20 vel þjálfaðir íþróttamenn,
ég þá aðeins 18 ára og nýgræð-
ingur í hópi landsfrægra hand-
boltamanna í FH, hoppuðum
þetta út hopp, hopp, og þjálfarinn
þurfti að skjótast í símann. Ég
var sjálfur dálítill „byltingar-
sinni“ þrátt fyrir alla aðdáun á
umhverfinu og öllum stjörnunum
í handboltanum og segi svona
upphátt: „Hvaða rugl er þetta, að
allir hoppa sem einn og þjálfarinn
í símanum á meðan?“ Þeir horfðu
á mig félagarnir, eldri og reynd-
ari, víðfrægar íþróttastjörnur
flestir hverjir, eins og ég væri
ruglaður maður, þar til einn
hvíslaði að mér. „Ef Biggi segir
Birgir Björnsson
✝ Ágúst EinarBirgir Björns-
son fæddist 22.2.
1935 á Sjónarhóli í
Hafnarfirði. Hann
lést á heimili sínu í
Hafnarfirði 2. sept-
ember 2011.
Birgir var jarð-
sunginn frá Víði-
staðakirkju í Hafn-
arfirði 8.
september 2011.
þér að hoppa, þá
hoppar þú!“
Þetta voru mín
fyrstu eiginlegu
kynni af þjálfaran-
um, FH-stjörnunni
og manninum Birgi
Björnssyni og þau
segja eiginlega allt
um hann. Hann
hafði örugga og
fasta stjórn á öllu –
sama hverjar kring-
umstæður voru.
En hvað sem því leið, þá frétti
hann af þessum mótþróa mínum
sem leiddi til þess, að honum
fannst ég ekki passa inn í hópinn
og setti mig á hliðarlínuna í
meistaraflokki FH í nokkra mán-
uði, bara til að láta mig vita hver
réði! Ég reifst og skammaðist yf-
ir þessu hlutskipti, en hann svar-
aði bara: „Ég ræð og þú hlustar.“
Og það gerði ég.
Svo liðu ár og dagar. Ég eltist
og hann líka. Lékum saman
handbolta, hættum að spila hand-
bolta. En alltaf viðloðandi íþrótt-
ina. Og alltaf FH-ingar og Hafn-
firðingar.
Og svo kom það í minn hlut
löngu síðar, þá sem bæjarstjóra
Hafnarfjarðarbæjar, að ráða
hann verðskuldað til starfa í
Hafnarfirði; sem forstöðumann
nýs íþróttahúss í Kaplakrika.
Óumdeilt og sjálfsagt.
Fljótlega kom í ljós að Birgir
var frábær í starfi. En hann átti
erfitt með að lúta stjórn síns
gamla lærisveins. Fór sínar eigin
leiðir sem fyrr. Og ég gerði at-
hugasemdir. En lítið gekk, þar til
eitt sinn að ég kallaði hann til og
sagði: „Birgir, hér og nú er það
þannig, að ég ræð og þú hlustar.“
Hann glotti. Gekk á dyr, en
eftir það gekk okkar samtal og
samstarf eins og í sögu.
Við rifjuðum þetta oft upp og
hlógum dátt. Rifjuðum upp
gamla tíma sem jafningjar og
þurftum þá ekki að fara ofan í
saumana á því hvor réði. Virtum
hvor annan til fullnustu. Ekki
alltaf sammála, t.d. í pólitík, en
þó!
Urðum vinir. Fjölskyldur okk-
ar sömuleiðis.
Fallinn er frá einn af bestu
sonum Hafnarfjarðar. Um það er
engum blöðum að fletta.
Samúðarkveðjur frá mér og
Jónu Dóru og börnum okkar til
Ingu og fjölskyldunnar allrar.
Okkur þótti afar vænt um þennan
harðjaxl, sem var í reynd svo
mjúkur þegar á reyndi.
Blessuð sé minning Birgis
Björnssonar.
Guðmundur Árni Stefánsson.