Morgunblaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011
Crazy, Stupid, Love fellur íflokk svonefndra „feel-good“-mynda, þ.e. myndasem stuðla að aukinni vel-
líðan áhorfenda. Gott dæmi um vel
heppnaða mynd úr þeim flokki er
Love Actually: grín, rómantík og
krúttlegheit í góðu blandi og Crazy,
Stupid, Love er sæmilega heppnuð
feelgood-ræma, þó hún sé ekki
gallalaus.
Myndin hefst með góðu gríni með
dramatísku ívafi. Hjónin Cal og
Emily Weaver sitja á veitingastað
og eru að skoða eftirréttamatseð-
ilinn. „Ég veit ekki hvað mig langar
í,“ segir eiginkonan full valkvíða. Cal
stingur upp á því að þau velji eitt-
hvað og segi svo samstundis hvað
þau langi í. „Ég vil skilnað,“ segir
Emily en Cal segir: „Crème brûlée“.
Hann tekur því að vonum illa að eig-
inkonan vilji skilja við hann en henni
verður ekki haggað. Hún segist hafa
sængað hjá samstarfsmanni sínum,
David Lindhagen, en sá er leikinn af
léttfetanum Kevin Bacon. Cal flytur
inn í litla íbúð og fer að sækja fag-
urhannaðan bar sem jafnan er
sneisafullur af fögru kvenfólki.
Sama bar sækir súkkulaðisætur og
ómótstæðilegur kvennabósi, Jacob.
Eftir að hafa fylgst með Cal drekkja
sorgum sínum við barinn kvöld eftir
kvöld og bölva hjónadjöflinum David
Lindhagen svo allir heyri til, sér Ja-
cob aumur á honum og býðst til að
aðstoða hann við að endurheimta
karlmennskuna og sjálfstraustið.
Við tekur bráðskemmtilegur kafli
með Gosling og Carrell þar sem
hinn púkalegi og niðurbrotni Cal er
tekinn í harða kvennabósaþjálfun og
útlitslega yfirhalningu. „Húðin und-
ir augunum á þér er farin að líkjast
pungnum á Hugh Hefner,“ segir Ja-
cob við Cal og Cal er alveg sammála
því. Að lokinni þjálfun verður Cal
bósi góður en hann elskar ennþá
eiginkonuna og vill helst af öllu
vinna ástir hennar aftur. Inn í þessa
sögu fléttast svo aðrar ástarsögur,
13 ára sonur Cal og Emily er ást-
fanginn af barnapíunni sinni en hún
er ástfangin af pabba hans. Jacob
kynnist draumadísinni Hönnu og
lætur af bósalíferninu. Undir lok
myndar er svo afhjúpuð skemmtileg
og óvænt flækja með kostulegu upp-
gjöri.
Já, myndin er fínasta afþreying
og leikarar skila sínu vel enda góður
hópur. Gosling er sem sniðinn í hlut-
verk bósans sem reynist ekki með
öllu tilfinningalaus þó að hann sé
sólbrúnn og tálgaður. „Það er eins
og þú hafir verið Photoshop-aður!“
segir draumadísin Hanna þegar
hann fer úr að ofan og sýnir brúnku-
borið þvottabrettið. Carrell er einn
skemmtilegasti gamanleikari Holly-
wood en einnig fínn þegar kemur að
því að túlka miðaldra menn í krísu.
Moore brynnir músum af fag-
mennsku sem fyrr og hinn ógnar-
sleipi Bacon fellur sem flís við rass í
hlutverk hjónadjöfulsins. Því miður
dettur myndin niður í væmni og
óskaplega amerískar kvikmynda-
klisjur á köflum, tilfinningaþrungn-
ar einræður aðalpersóna frammi
fyrir stórum hópi ókunnugra o.s.frv.
og krúttisminn keyrir fram úr hófi
einstaka sinnum. Það skemmir þó
sem betur fer ekki fyrir heildar-
upplifuninni. Vellíðan jókst í 118
mínútur, a.m.k. í tilfelli þess er hér
skrifar. Notalegt.
Sambíóin
Crazy, Stupid, Love bbbnn
Leikstjórn: Glenn Ficarra og John Re-
qua. Aðalhlutverk: Steve Carrell, Ryan
Gosling, Julianne Moore, Emma Stone
og Kevin Bacon.118 mín. Bandaríkin,
2011.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Ræktin Jacob (Gosling) messar yfir Cal (Carrell) í búningsklefa en Cal líður
heldur illa þar sem það allra heilagasta á kvennabósanum blasir við honum.
Stuðlað að aukinni vellíðan
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Leikfélag Akureyrar kynnir sem stendur kom-
andi leikár og hófst kortasalan í gær. Bæklingi
LA hefur verið dreift um allt Norður- og Aust-
urland og var síðan dreift á höfuðborgarsvæð-
inu í gær. Leikárið leggst vel í leikhússtjórann,
Maríu Sigurðardóttur. Leikfélagið frumsýnir
þrjár eigin uppfærslur en ennfremur er lögð
áhersla á að bjóða upp á fjölda ólíkra gestasýn-
inga, bæði frá atvinnuleikhúsum og hópum
ungra atvinnuleikara.
Öðruvísi gamanleikur
María leikstýrir sjálf verkinu Svarta kó-
medían eftir Peter Shaffer. Hún lýsir því sem
„öðruvísi gamanleik“. „Leikritið gerist í Lond-
on og er skrifað árið 1965 og ég læt leikritið
gerast þá. Það er gaman að vera í leikmynd og
búningum frá þessum tíma,“ segir hún en æf-
ingar eru hafnar á verkinu, sem verður frum-
sýnt 14. október.
„Ungur, fátækur listamaður og unnusta
hans fá ríkulega antíkhúsmuni að láni án leyfis
til að ganga í augun á föður hennar, uppskrúf-
uðum og stífum ofursta, og þýskum auðkýfingi
sem er væntanlegur til að skoða verk lista-
mannsins unga. Fyrirvaralaust fer rafmagnið
af. Eigandi húsgagnanna kemur óvænt heim,
fyrrverandi ástkona mætir óboðin og heim-
spekilegur rafvirki reynir að bjarga mál-
unum,“ segir á vefsíðu LA, leikfelag.is. María
segir að útkoman sé „sprenghægilegur glund-
roði“.
Hundur í óskilum á sviðið
Gaman er að segja frá því að þeir félagar í
tónlistartvíeykinu Hundur í óskilum ætla núna
að stíga á svið í verkinu Íslenski fjárhundurinn
- Saga þjóðar sem frumsýnt verður 29. októ-
ber. Leikstjóri og meðhöfundur er Benedikt
Erlingsson.
„Þeir byggja á því sem Hundur í óskilum
hefur verið að gera á tónleikum sínum. Þeir
hafa ótrúlegt hugmyndaflug í sambandi við
hljóðfæri og ég hef trú á því að þeir smíði ein-
hver ný hljóðfæri fyrir þessa sýningu. Þeir eru
svo svakalega skemmtilegir,“ segir hún en í
kynningartexta er verkinu lýst sem „brjál-
uðum tónlistargjörningi með sögulegu ívafi“.
Félagarnir í Hundi í óskilum eru miklir
sögumenn og ræða við áhorfendur á tónleikum
um lífið og tilveruna. „Þá hefur alltaf dreymt
að gera eitthvað meira með þetta,“ segir
María, sem er ánægð með að þeir ætli að láta
drauminn rætast hjá LA.
Björn Jörundur fæddur sjóræningi
Stærsta sýning vetrarins hjá leikfélaginu er
hinsvegar Gulleyjan, nýr íslenskur fjölskyldu-
söngleikur, sem er byggður er á hinni þekktu
sjóræningjasögu Gulleyjunni eftir Robert Lo-
uis Stevenson.
Sigurður Sigurjónsson leikstýrir og er jafn-
framt höfundur leikgerðar ásamt Karli Ágústi
Úlfssyni. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson semur
tónlistina og leikur Björn Jörundur Frið-
björnsson aðalhlutverkið. Gulleyjan er sam-
starfsverkefni LA og Borgarleikhússins og
verður sýningin frumsýnd 20. janúar.
„Björn Jörundur er alveg fæddur í þetta.
Við reiknum með að allir Akureyringar verði
með lepp fyrir auganu og sjóræningjaklút í
janúar. Stefnan er að gera Akureyri að alvöru
sjóræningjabæ,“ segir María en sýningin er
fyrir alla fjölskylduna.
„Þetta er fyndinn söngleikur og lögin eru
salsatónlist, sjómannalög og allt þar á milli,“
segir hún.
„Þetta er ævintýraleg sýning fyrir alla fjöl-
skylduna, full af galdri, gulli, græðgi, bardög-
um, blekkingum, talandi páfagaukum, kostu-
legum persónum og eldfjörugri tónlist,“ segir
ennfremur í kynningu.
Tilraunir í gestasýningum
Gestasýningarnar eru fjölbreyttar eins og
áður segir en ein þeirra er Súldarsker. „Mér
fannst þetta svo spennandi verk. Þarna er
ungur höfundur að stíga sín fyrstu skref. Sýn-
ingin fékk fantagóða dóma. Frjálsu leikhóp-
arnir eru að gera svo spennandi hluti. Þar eru
heilmiklar tilraunir í gangi. Við erum að reyna
að bjóða upp á mikla fjölbreytni í þessum
gestasýningum,“ segir hún en á meðal annarra
gestasýninga í vetur eru Nýdönsk í nánd, Af-
inn, Fjalla-Eyvindur og Gyllti drekinn, ný sýn-
ing frá Borgarleikhúsinu.
Sjóræningjar ganga á land
Nýr íslenskur sjóræningjasöngleikur settur upp hjá Leikfélagi Akureyrar í byrjun næsta árs
Líka verður settur á svið tónlistargjörningur með sögulegu ívafi og kolsvört kómedía
Leikfélag Akureyrar ætlar að leggja
áherslu á börnin og fjölskyldur þeirra í
vetur, bæði með leiksýningum og ýmiss
konar starfi. LA mun standa fyrir Æv-
intýramorgnum í leikhúsinu í vetur, Leik-
listarskóli LA verður starfræktur fjórða
veturinn í röð og ennfremur verður leik-
félagið í samvinnu við Akureyrarkirkju í
unglingastarfi.
María segir að leiklistarskólinn sé hvetj-
andi fyrir krakkana og ýti undir leik-
húsmenningu í bænum en skólinn er fyrir
börn og unglinga á aldrinum 9-15 ára. Hún
segir starfið vera gefandi, bæði fyrir nem-
endur og kennara. „Sum eru til dæmis
feimin og þora ekki mikið að tjá sig. Það er
hægt að hjálpa þeim mikið með leiklist-
aræfingunum og oft finna þau alveg nýjar
hliðar á sjálfum sér í skólanum,“ segir
María og bætir því við að það sé gaman að
fylgjast þessu þroskandi starfi.
Ennfremur koma leikskólar reglulega í
heimsókn í leikhúsið, auk þess sem boðið
verður upp á svokallaða Ævintýramorgna
á laugardögum fyrir 3-8 ára. „Foreldrarnir
eru í pössun hérna uppi og fá kaffibolla
meðan við förum með börnin í allskonar
leiki,“ segir María en boðið var upp á
Ævintýramorgna síðasta haust við miklar
vinsældir.
Áhersla á börn
og fjölskyldur
NÁMSKEIÐ OG ÆVINTÝRAMORGNAR
Sjóræningjasöngleikur Siggi Sigurjóns leikstýrir nýjum íslenskum fjölskyldusöngleik, gerð-
um eftir sögu Roberts Louis Stevensons um Gulleyjuna. Björn Jörundur er í aðalhlutverki og
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson sér um tónlistina. Verkið verður frumsýnt 20. janúar á næsta ári.