Morgunblaðið - 21.09.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2011
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Boðskapur Ögmundar Jónassonar
innanríkisráðherra um lausnir í sam-
göngumálum fyrir sunnanverða Vest-
firði féll ekki í frjóan jarðveg hjá íbú-
um Vesturbyggðar á fundi ráðherra á
Patreksfirði í gær. Þorri fundar-
manna yfirgaf fundarsalinn eftir að
fulltrúi aðgerðahóps um bættar sam-
göngur hafði lesið upp yfirlýsingu þar
sem tillögu ráðherrans um veg yfir
hálsana er hafnað og því lýst yfir að
baráttunni fyrir láglendisvegi sé ekki
lokið.
Fjölmenni var á fundinum sem ráð-
herra boðaði til í félagsheimilinu á
Patreksfirði enda var gefið frí á flest-
um vinnustöðum og fólk hvatt til að
mæta. Áætlað var að á sjötta hundrað
manns væru á staðnum. Fækkaði
mjög eftir að aðgerðahópurinn gekk
út og þorri fundarmanna en eftir sátu
vegagerðarmenn, þingmenn og sveit-
arstjórnarfólk og svo gátu nokkrir
fundarmenn sem fóru út ekki setið á
sér og vildu vita hvað færi fram og
komu aftur í salinn. Fyrir utan börðu
nokkrar konur sleifum í potta, í anda
búsáhaldabyltingarinnar og kölluðu
„Við viljum láglendisveg“ fyrir sjón-
varpsvélarnar.
Rannsóknir á jarðgöngum
Ögmundur hefur vegna eindreg-
innar andstöðu heimamanna fallið frá
hugmyndum um að fresta fram-
kvæmdum sem nú er verið að und-
irbúa í Kjálkafirði og Vattarfirði til að
nota peningana í að byrja á lagfær-
ingum á veginum yfir Hjallaháls og
Ódrjúgsháls. Það verk er að komast á
útboðsstig og verður unnið að því
næstu þrjú árin.
Ráðherra sagði í samtali við Morg-
unblaðið að því gæfist ráðrúm til að
kanna kostina upp á nýtt.
Á fundinum sagðist ráðherra tilbú-
inn til að hlusta á allar tillögur. Hann
sagði að það tæki langan tíma ef halda
ætti fyrri áformum um þverun Djúpa-
fjarðar og Gufufjarðar sem felur í sér
vegagerð um Teigsskóg, að lágmarki
fimm til sjö ár, og alls óvíst með nið-
urstöðu. Taldi hann raunar meiri lík-
ur á að hún reyndist óvilhöll. Því hefði
hann talið best að hugsa um annað.
Innanríkisráðherra sagði að jarð-
göng undir Hjallaháls kæmu til
greina og hefði hann rætt við Vega-
gerðina um að ráðast í könnunarbor-
anir þar næsta vor til að hægt væri að
meta kostnað við slíka framkvæmd.
Hann tók hins vegar skýrt fram að
hann gæti ekki tímasett jarðgöng.
Fundarmenn fögnuðu ekki ræðu
ráðherra en klappað var fyrir kurteis-
issakir. Aftur á móti fengu bæjar-
stjórinn í Vesturbyggð og oddvitinn á
Tálknafirði dúndrandi undirtektir
þegar þeir höfðu lokið máli sínu.
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri
Vesturbyggðar, sagði að tal um göng í
framtíðinni væri einungis til að fresta
vandanum, og til þess fallið að drepa
málinu á dreif. Láglendisleið væri
hins vegar val og skoraði hún á ráð-
herrann og þingmenn kjördæmisins
að standa með vilja íbúanna þegar
kæmi að leiðavali í Gufudalssveitinni.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir,
oddviti og sveitarstjóri á Tálknafirðí,
lagði beinlínis til að farið yrði í nýtt
umhverfismat á leið B sem felur í sér
þverun Djúpafjarðar og Gufufjarðar
og jafnframt að gert yrði format á
fleiri leiðum.
Meiri þungi í baráttuna
Haukur Már Sigurðarson, baráttu-
maður fyrir bættum samgöngum,
lýsti yfir vonbrigðum íbúanna og sorg
vegna tillögu ráðherrans. Las hann
upp yfirlýsingu þar sem fram kom að
eftir nýjasta útspil ráðherrans væri
þolinmæði íbúanna þrotin. Þeir sættu
sig ekki við ákvörðun Ögmundar.
„Baráttu okkar fyrir láglendisvegi
er ekki lokið, nú mun sú barátta
hefjast af meiri þunga en áður.“
Jafnframt er í yfirlýsingunni
ákall til allra Íslendinga að
standa með Vestfirð-
ingum í að snúa
ákvörðun ráð-
herrans við.
Þegar Haukur hafði lesið yfirlýs-
inguna hvatti hann fundarmenn til að
sýna vilja sinn með því að yfirgefa
fundinn. Það gerði meirihluti fundar-
manna og staðfesti þar með yfirlýs-
inguna. Ögmundur sagðist í loka-
ávarpi sínu hafa fullan skilning á því
að menn sýndu tilfinningar sínar með
þessum hætti. Ef menn kysu að
ganga af fundi, gerðu þeir það, þótt
hann hefði sjálfur gjarnan viljað
heyra sjónarmið fleiri.
Þegar fundurinn hélt áfram tóku
nokkrir íbúar og áhugamenn um
vegamál til máls og lýstu sjónarmið-
um heimamanna. Þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins lýsltu yfir stuðningi við
íbúana í baráttu þeirra og hvöttu til
þess að farið yrði í nýtt umhverfismat
fyrir láglendisleiðina svonefndu.
Þótt Ögmundur kvæðist undir lok
fundarins hafa meðtekið skilaboð íbú-
anna kom það ekki fram hjá honum að
hann væri fallinn frá tillögu sinni um
að fara yfir hálsana. Sagði einungis að
málið þyrfti að rökræða áfram. Ítrek-
aði hann þá skoðun sína að það myndi
leiða málið í ógöngur að halda sig við
leiðina um Teigsskóg en kvaðst opinn
fyrir öðrum möguleikum. Nefndi sér-
staklega jarðgangaleiðina.
„Við viljum láglendisveg“
Tillögum Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um vegabætur í Gufudalssveit var hafnað á íbúa-
fundi á Patreksfirði Þorri fundarmanna yfirgaf fundinn til að leggja áherslu á sjónarmið sín
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Gengu út Áætlað var að á sjötta hundrað manns væri á fundinum í félagsheimilinu á Patreksfirði. Þeim fækkaði þó mjög eftir að þorri fundarmanna gekk út.
YFIR 20 GERÐIR GASGRILLA
Á ÚTSÖLUNNI
• Stærð: 149 x 110 x 60 cm
Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400
ÚTSALA
Er frá Þýskalandi
fyrir íslenskar
aðstæður
Frábært grill
FULLT VERÐ
54.900
39.900
Mikil orka 16,5 kw/h
3 kraftmiklir brennarar
Ryðfrítt lok og takkaborð
Emaleraðar grillgrindur
Viðargrind er fáanleg
svört eða viðarlituð
Innbyggð neistakveikja
Skúffa fyrir fitu. Hitamælir
Grillflötur 64 x 49cm
YFIR 30 GERÐIR
GASGRILLA
Á ÚTSÖLUNNI
„Þetta voru það mikil vonbrigði að ekki var ástæða til
að hafa fleiri orð um málið. Við þurfum tíma til að end-
urmeta stöðuna og efla baráttuna fyrir láglendisleið,“
segir Haukur Már Sigurðarson, kaupmaður og tals-
maður aðgerðarhóps fyrir bættum samgöngum, um út-
göngu íbúanna af fundi innanríkisráðherra.
Honum sárnar að verið sé að klína því á þá sem vilja
bættar samgöngur að þeir séu umhverfissóðar. „Ég
þekki engan hér sem ekki vill taka tillit til náttúrunnar,
eins mikið og hægt er, við erum almennt náttúruvernd-
arsinnar hér á Vestfjörðum,“ segir Haukur en í yfirlýs-
ingu sem hann las upp á fundinum koma fram mikil
vonbrigði með að öryggi vegfarenda og búsetuöryggi
íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum sé skipt út fyrir lítið
landsvæði sem fáum er sýnilegt. Er þar greinilega vísað
til deilnanna um vegagerð um Teigsskóg.
Haukur segir sárt að sjá öflugt og gott samfélag fjara
út eins og muni gerast ef samgöngurnar lagist ekki.
Hann nefnir eitt lítið dæmi um áhrif hálsanna í starfi
kaupmannsins. Kjötfarsið sem hann kaupir frá Reykja-
vík hefur 3-4 daga stimpil. Fyrsti dagurinn fari í að
koma því vestur. Ef einhverjar tafir verði á leiðinni,
eins og oft gerist, og bíða þurfi við hálsana sé annar
dagur farinn og lítið annað að gera en að henda vör-
unni í ruslið þegar hún kemur vestur.
Jón Örn Pálsson frá Tálknafirði, sem einnig var í út-
gönguhópnum, kom við hjá Hauki kaupmanni. „Ég er
gríðarlega ánægður með þetta, þetta voru skýr skila-
boð til ráðherrans.“
Hann telur að íbúarnir hafi heyrt það allt áður sem
fram kom á fundinum. „Það er frekja að ætlast til að við
sitjum undir því sem ekkert er og það á vinnutíma.“
Þurfum að endurmeta stöðuna
Skilaboð Haukur Már Sigurðarson og Jón Örn Pálsson
telja að skilaboðin hafi komist til skila til ráðherra.
„Það er bratt upp og niður. Ég veit
ekki hvernig menn ætla að taka
hallann af þessum fjöllum,“ segir
Helgi Auðunsson, framkvæmda-
stjóri flutningafyrirtækisins Nönnu
ehf. sem annast flutninga fyrir
Flytjanda.
Helgi segir að stórir flutninga-
bílar þoli ekki hallann og vanda-
málin muni aukast vegna mikilla
flutninga sem verði í kringum aukið
fiskeldi. „Ég er búinn að missa þrjá
bíla á Hjallahálsi síðustu tíu árin.
Svo er Ódrjúgsháls eins og hann er.
Ég þarf að fá bóndann í Djúpadal tíu
sinnum á vetri til að draga bíla
upp.“
Uppi á Hjallahálsinum er oft
óveður og við vissar aðstæður
verða keðjurnar á dekkjum bílanna
eins og skautar á svelli, að sögn
Helga.
„Það er fyrir neðan allar hellur að
koma með svona tillögur,“ segir
Helgi um tillögur innanríkisráð-
herra um að fara hálsaleiðina.
„Það er engin önnur lausn en að
fara eftir láglendinu. Ef Teigs-
skógur er ósnertanlegur þá er
hægt að fara yfir hjá Reykhól-
um þótt það lengi leiðina.
En það virðist bara ein
leið koma til greina
hjá Ögmundi.“
Ekki hægt að taka
hallann af fjöllunum
FRAMKVÆMDASTJÓRI FLUTNINGAFYRIRTÆKISINS NÖNNU EHF.
Helgi Auðunsson