Morgunblaðið - 21.09.2011, Side 17

Morgunblaðið - 21.09.2011, Side 17
BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Margir embættismenn Bandaríkja- stjórnar telja nú nær öruggt að Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, hrökklist frá völdum og þeir leita nú leiða til að afstýra borgarastríði í landinu eftir að einræðisstjórnin fell- ur, að sögn bandaríska dagblaðsins The New York Times. Blaðið segir að embættismennirn- ir óttist að blóðug átök blossi upp milli súnníta, alavíta, sjíta, drúsa og kristinna manna. Þeir vara við því að borgarastríð í Sýrlandi geti dregið dilk á eftir sér í öðrum löndum og kynt undir togstreitu milli trúarhópa í Mið-Austurlöndum. Þótt Bandaríkjastjórn hafi hvatt Assad til að segja af sér hefur hún ákveðið að kalla ekki sendiherra sinn í Sýrlandi heim eins og stjórnvöld í mörgum öðrum löndum hafa gert. Hún vill að sendiherrann verði áfram í Sýrlandi til að vera í sambandi við leiðtoga stjórnarandstöðunnar og forystumenn trúarhópanna. Reynt að sameina hópana Stjórnarandstaðan í Sýrlandi hef- ur verið sundruð og bandaríska utanríkisráðuneytið hefur beitt sér fyrir því að stjórnarandstöðuhóparn- ir taki höndum saman til að geta myndað ríkisstjórn eftir fall Assads og afstýrt borgarastríði. The New York Times hefur eftir sérfræðingum að átök eða borgara- stríð í Sýrlandi geti haft áhrif á Íran, Líbanon, Jórdaníu, Ísrael og Írak. Margir sýrlenskir súnnítar séu að vígbúast og spennan milli þeirra og annarra trúarhópa magnist. Klerka- stjórnin í Íran og leiðtogar Hizboll- ah, samtaka sjíta í Líbanon, styðja stjórn Assads. Áætlað er að um 87% íbúa Sýr- lands séu múslímar, u.þ.b. 10% krist- innar trúar og um 3% drúsar (sem eiga rætur að rekja til íslams en múslímar telja þá trúvillinga). Meðal múslíma eru súnnítar fjölmennastir, um 74% landsmanna, alavítar eru um það bil 11% íbúanna og sjítar um 5%. Assad-fjölskyldan hefur verið við stjórnvölinn í Sýrlandi frá árinu 1971 þegar Hafez al-Assad varð forseti landsins, um átta árum eftir að Baath-flokkurinn rændi völdunum. Eftir að einræðisherrann dó árið 2000 tók sonur hans, Bashar, við for- setaembættinu. Assad-fjölskyldan hefur stjórn- að Sýrlandi með fámennri klíku embættismanna í hernum og leyniþjónustunni. Flestir þeirra eru náskyldir forsetanum eða úr röðum alavíta sem voru kúg- aðir öldum saman og eru al- mennt fyrirlitnir meðal annarra músl- íma, einkum súnníta sem telja þá vera nánast villutrúarmenn. Óttast að stríð blossi upp eftir fall Assads  Bandaríkjamenn telja næsta víst að Assad hrökklist frá 100 km ÁRÁSIR Á MÓTMÆLENDUR Í SÝRLANDI SÍÐUSTU ÁRÁSIR S Ý R L A N D TYRKLAND Heimildir: Reuters, Sameinuðu þjóðirnar, ríkisstjórn Sýrlands Homs Mánudag - Minnst sex óbreyttir borgarar og tveir hermenn úr röðum uppreisnarmanna létu lífið nálægt borginni - A.m.k. 23 óbreyttir borgarar hafa beðið bana í borginni í september Hama Föstudag Öryggissveitir skutu 20manns til bana nálægt borginni og á svæðum í norðurhluta landsins MANNFALL* frá því að uppreisnin hófst í Deraa í mars Óbreyttir borgarar Alls 2.700 3.400700 Öryggissveitir Tölur Sameinuðu þjóðanna Tala Sýrlandsstjórnar ÍRAK JÓRDANÍA LÍBANON Homs Qusayr Deraa Hama Idlib Latakia Aleppo Saraqeb Deir al-Zor Damaskus M ið ja rð ar h af FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2011 w w w .v is in da va ka .i s Þekking á liðinni tíð er til margra hluta nytsamleg, eða svo segja margir. Dr. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur fjallar um nýtingu sögunnar á Íslandi, allt frá landnámi til okkar daga. Ari fróði sagðist vilja hafa það sem sannara reynist en var það nú satt? Fyrir hvern skrifaði hann? Á hinn bóginn má spyrja hvers vegna sagnfræðingar samtímans ættu að nöldra um stórmenni sögunnnar. Skilja þeir ekki að sagan á að sameina okkur, gera okkur stolt af afrekum forfeðranna? Segjum að sagnfræðingar séu frá Mars og valdhafar frá Venus. Er þá nokkuð hægt að mætast á miðri leið? Í hvaða tómarúmi yrði það eiginlega? vSagnfræðingar eru frá Mars, H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Látið sjá ykkur í Háskólabíói föstudaginn 23. september! „Framundan er ár erfiðra sparnaðaraðgerða sem koma niður á öllum,“ sagði Beatrix, drottning Hollands, þegar hún flutti stefnuræðu ríkis- stjórnar landsins í þinghúsinu í Haag í gær. Þetta er fyrsta stefnuræða stjórnar hægri- og miðflokka sem mynduð var í fyrra undir forystu Marks Rutte forsætisráðherra. Stjórnin hyggst minnka útgjöld ríkisins um 18 milljarða evra, sem svarar 2.800 milljörðum króna. Stjórnin hyggst einnig hækka eftirlaunaaldurinn úr 65 árum í 66 árið 2020 og í 67 ár fimm árum síðar. Hefð er fyrir því í Hollandi, eins og í Bretlandi, að þjóðhöfðinginn flytji stefnuræðuna þótt ríkisstjórnin semji hana. Eins og venja er var drottn- ingin flutt í hestvagni að og frá þinghúsinu í Haag. Reuters Ár erfiðs sparnaðar Drottning boðar erfiðleika í Hollandi Embættismenn Sameinuðu þjóðanna segja að 2.700 óbreyttir borgarar, þeirra á meðal a.m.k. 100 börn, liggi í valnum eftir árásir öryggis- sveita einræðisstjórnarinnar frá því að uppreisnin hófst í mars. Nefnd á vegum Sam- einuðu þjóðanna hefur kannað ástandið, komist að þeirri niðurstöðu að árás- irnar kunni að vera glæpir gegn mannkyninu og hvatt öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna til að skjóta málinu til Alþjóðasakamála- dómstólsins. Minnst 100 börn myrt UM 2.700 LIGGJA Í VALNUM Bashar al-Assad Sex ítalskir jarðvísindamenn og fyrrverandi embættismaður hafa verið ákærðir fyrir manndráp af gá- leysi með því að veita rangar upplýs- ingar um jarð- skjálftahættu í L’Aquila á Ítalíu árið 2009. Réttar- höld í máli þeirra hófust í gær. Jarðskjálfti, sem mældist 6,3 stig, reið yfir borgina og varð 309 manns að bana. Mánuðina áður hafði verið mikil skjálftavirkni á svæðinu og hundruð smáskjálfta mældust. Vís- indamennirnir sex voru fengnir til að leggja mat á ástandið og þeir komust að þeirri niðurstöðu að ekki væri mögulegt að spá um það hvort hætta væri á öflugum skjálfta. Þeir mæltu þó með hertu eftirliti með því að byggingarreglugerðum væri framfylgt. Verjendur sakborninganna segja að engin leið sé að spá nákvæmlega um öfluga jarðskjálfta. Yfir 5.000 vísindamenn hafa skrifað undir opið bréf til forseta Ítalíu til stuðnings sakborningunum sem eiga yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi og háar bótakröfur. Vísindamenn ákærðir fyrir manndráp Manni bjargað eftir skjálftann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.