Morgunblaðið - 21.09.2011, Síða 24

Morgunblaðið - 21.09.2011, Síða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2011 Fiskveiðiumræð- urnar í þjóðfélaginu, hvort sem er á þingi eða í fjölmiðlum, eru að verða allruglingslegar, svo vægt sé til orða tekið. Mikið ber á að þeir sem tjá sig um málið tali fyrir hönd þjóðarinnar þegar við- komandi leggur fram sínar skoðanir. Gott og vel, ég tala bara fyrir mig sjálfan, en er hluti af þjóðinni, ekki satt! Um hvað snýst málið eiginlega? Til að reyna að skilja það þarf að draga málið saman í sem einfald- astan búning, fyrir það fyrsta hvers- vegna málið er orðið svona ótrúlega flókið, og hvað það var sem virtist vera almennar óskir um breytingar. Þá er best að byrja á byrjuninni. Hvað var það sem farið hefur í taug- arnar á mér eftir að kvótanum var úthlutað í fyrsta sinn í samræmi við lög um fiskveiðar? En það er: Eignarréttarákvæðin. Framsal og leiga á úthlutuðum kvóta. Sjálft kvótakerfið, aflamark og veiðiframkvæmd, held ég, að megi vel una við enda talið eitt það besta sem notast er við í heiminum, en auðvitað má alltaf bæta og breyta eftir því sem þekking og reynsla gefur tilefni til. En fyrir alla muni, ekki breyta breyting- anna vegna. Lítum þá á Eign- arréttarákvæðin (1). Fiskur (óveiddur) sem finnst á eða yfir landgrunninu, má ekki og á ekki að vera eign einstaklinga, útgerðar eða skipa, heldur sameign þjóð- arinnar. Ég veit ekki betur en flestir séu sammála þessari túlkun, þar á meðal útgerðarmenn og samtök þeirra. Einnig er ljóst að við gerð nýrrar stjórnarskrár verður þessi skýring negld niður til framtíðar, það er allavega von mín. Sem sagt eignarréttur (einstaklinga og/eða út- gerðar) á fiski verður ekki til fyrr en veiði er staðfest af eftirlitsaðila með veiðunum (Fiskistofu). Þar til stað- festing fæst er um að ræða „nytja- rétt“ samkvæmt útgefnum veiðileyf- um sjávarútvegsráðuneytis (magn og tímabil), samkvæmt reglum þar um. Þegar fiskurinn er orðinn eign (veiddur og kominn um borð í veiði- skipi) er hægt að veðsetja hann fjár- málastofnun t.d. banka sem eignast þar með öruggt veð í afurðinni. Þar til eign er mynduð og óveiddur fisk- ur syndir í sjónum verða rekstrarlán sem veitt er einstaklingi/útgerð, áhættulán, eins og vera ber, þar sem lánafyrirgreiðsla er byggð á trausti milli útgerðar og lánveitanda og að sjálfsögðu hafður til hliðsjónar sá „nytjaréttur“ sem lánþegi hefur til umráða og hefur greitt sanngjarnt auðlindagjald fyrir. Lítum á framsal og leigu á kvóta (2). Þegar fyrsta úthlutun á kvóta fór fram, var valið að úthluta samkvæmt veiðireynslu áranna á undan, og er sú aðferð einföld og auðskilin og í sjálfu sér eins góð og hver önnur. Í reynd var úthlutunin á þessum veiði- rétti til eins árs í senn (tímabil 1. september til 31. ágúst næsta ár) og þar skilgreint það magn (tonn af út- hlutaðri fisktegund) sem heimilt var að veiða á þessum tíma, bæði einfalt og gott kerfi, nema það gleymdist að skilgreina og festa í lög hvenær nytjaréttinum lyki (sólsetur) og það sem verra var, hvernig bæri að fara með nytjarétt sem útgerð/ein- staklingar gætu ekki nýtt sér að hluta/eða öllu innan viðkomandi tímabils og síðast en ekki síst láðist að innheimta sanngjarnt gjald fyrir aflaheimildina. Þessir gallar er ástæða þeirrar óánægju sem al- menningur hefur látið í ljós með vax- andi þunga á liðnum árum og ára- tugum og varð síðan til þess að handhafar „nytjaréttar“ fóru að líta á kvótann sem sína eign sem þeir gætu farið með eins og skipin sem veitt var á, og þar með veðsett banka óveiddan fisk í sjó, selt hann öðrum eða leigt hann tímabundið öðrum. Stjórnvöld sigldu sofandi að feigð- arósi, þar til allt var komið í óefni. Kvótabrask varð ábatasöm við- skiptagrein þar sem óveiddur fiskur (þjóðarauðlindin) gekk kaupum og sölum á sívaxandi verði og út úr greininni (útgerð) fóru menn með milljarða fyrir sölu á óveiddum fiski. Er furða þó manni blöskri. Það sem þarf að gera strax. Alþingi samþykkir breytingu á stjórnarskrá sem tryggir eign þjóð- arinnar á auðlind hafsins, t.d. með samþykkt á tillögum stjórnlagaráðs. Allar veiðiheimildir innkallaðar og þeim úthlutað til núverandi hand- hafa sem „nytjarétti“ til eins árs gegn vægu gjaldi. Að ári liðnu (ár 1.) verði úthlutað 90% veiðiheimilda til sömu aðila samkvæmt veiðiráðgjöf, en 10% verði boðin upp á frjálsum markaði þannig að nýliðun geti átt sér stað (að sjálfsögðu geta hand- hafar „nytjaréttar“ boðið í þær afla- heimildir eins og aðrir). Fyrir næsta fiskveiðiár (ár 2) fá núverandi hand- hafar úthlutuð 80% af upphaflegum „nytjarétti“ sínum gegn auðlinda- gjaldi en mismunurinn fer á uppboð á frjálsum markaði, auk þess afla sem ekki nýtist handhafa „nytjarétt- ar“ á fiskveiðitímabilinu. Skilaður „nytjaréttur“ verði bættur veiðirétt- arhafa með hlutfallslegri endur- greiðslu á greiddu auðlindargjaldi (engar útleigur eða pukur leyft með „nytjaréttinn“). Þannig verður hald- ið áfram þar til allur afli á Íslands- miðum er í umsjón stjórnvalda fyrir hönd þjóðarinnar, og opin og gegnsæ vinnubrögð verða á meðferð auðlindarinnar. Allt annað má bíða vandaðrar um- fjöllunar. Fiskveiðin, kvótinn, hvað er í gangi? Eftir Björn Jóhannsson »Kvótabrask varð ábatasöm viðskipta- grein þar sem óveiddur fiskur gekk kaupum og sölum á sívaxandi verði og út úr greininni (út- gerð) fóru menn með milljarða fyrir sölu á óveiddum fiski. Björn Jóhannsson Höfundur er tæknifræðingur. Mikil þensla hefur verið undanfarin 10 ár og er það einkum vegna mikilla fram- kvæmda á vegum hins opinbera, t.d. við jarðgangagerð, virkj- anagerð, vegagerð og hafnarframkvæmdir, svo fátt eitt sé nefnt. Mikið hefur verið byggt af ýmsum byggingaraðilum, íbúðarhúsnæði og iðnaðarhúsnæði, svo er mikilli byggingatækni fyrir að þakka. Þá hefur verið fjárfest í dýrum skip- um og tækjum tengdum sjávar- útvegi. Hafinn hefur einnig verið innflutningur á vistvænum bifreið- um knúnum t.d vetni, metanóli, rafmagni. Svo ekki sé minnst á tónlistarhúsið Hörpuna, veglegt tónlistar- og fundahús sem skipar veglegan sess í allri bygging- arflórunni. Allt þetta skapaði þenslu og jók erlendar skuldir ríkisins sem voru síðast, og það þó fyrir allnokkru, u.þ.b. 20.000 milljarðar ísl. kr. Margur maðurinn vill kenna raun- verulegri eða óraunverulegri einkavæðingu um þensluna og aukna erlenda skuldasöfnun rík- isins. Hafa ber í huga að allar þessar framkvæmdir og fjárfest- ingar kosta sitt og taka sinn toll. Í raun ættum við að fá Marshall- aðstoð vegna veru okkar í NATO og grynnka á skuldum þjóðarbús- ins með þeim styrk. Menn geta lit- ið á það sem eins konar skaðabæt- ur vegna hinnar miklu persónugreiningar sem hefur hlot- ist af einkavæðingaráróðri og hægri öfgaumræðu sem hefur valdið gíf- urlegu tjóni, t.d. auk- inni geðlyfjanotkun vegna félagslegra árekstra vegna ólíkra skoðana, og einnig hefur þetta aukið notkun, t.d. fíkniefna (kannabis) og alkó- hóls. Þá hafa hægri öfgarnar og einka- væðingaráróðurinn valdið auknum glæp- um, til að mynda of- beldi, efnahagsbrotum og fíkniefnabrotum. Svo er víst ætlunin að reyna að varpa allri ábyrgð á Geir Haarde, fyrrum for- sætisráðherra, vegna þess að hann hafi dregið lappirnar í einkavæð- ingunni hvað varðar starfsemi bankanna sem hafi valdið falli bankanna og til stendur af and- stæðingum hans að fá hann dæmdan fyrir Landsrétti. Ólafur Jóhannesson, fyrrum al- þingismaður, kom Landsrétti á með einhvers konar glæpasamráði á hinu háa Alþingi árið 1974 og hefur hann líklega notið aðstoðar frímúrarabræðra sinna á alþingi. En Landsréttur er gömul arfleifð frá valdatíma kirkjunnar hér fyrr- um og byggist rétturinn á trúar- legum viðhorfum vegna eðlis síns og lögin sem hann dæmir eftir heita landsréttarlög sem eru göm- ul kirkjulög sem eru úr sér gengin vegna þess að lýðræðið hefur haldið innreið sína hér á Íslandi og um allan hinn vestræna heim. Landsréttur og landsréttarlögin varða við alþjóðalög sem banna nasisma en trúarleg viðhorf eru nú gjarnan nasísk. Svo ég víki aft- ur að því hvað varðar Geir Haarde, fyrrum forsætisráðherra, þá hefði frekar átt að sæma hann orðu ef hægt væri að leiða líkur að því að með því að draga lappirnar hefði hann fellt bankana, auk þess ætti það við alþjóðadómstól að draga úr sekt hans og hann yrði jafnvel sýknaður vegna þess að einkavæðingin heildrænt er brot á alþjóðalögum þar sem kveðið er á um blátt bann við nasisma en hægri öfgar falla undir nasisma. Rétt fyrir lok seinni heimstyrj- aldar var nasismi bannaður með lögum, árið 1940 á Jalta. Svo geta menn stillt hlutunum þannig upp að í raun beri allt alþingi ábyrgð á einkavæðingunni en heildrænt var hún ólögleg og t.d. braut hún í bága við samkeppnislög, einnig regluna um bann við hægri öfgum sem falla undir nasisma. Þá má jafnvel líta þannig á það að opinberir starfsmenn séu sam- ábyrgir því að fram fór ólögleg einkavæðing. Lögmenn hafa ábyrgð gagnvart ólöglegri einka- væðingu, þá þannig að aðgerða- leysi þeirra getur flokkast undir afbrot vegna stöðu þeirra. Það má því færa sterk rök fyrir því að öll stjórnsýslan sé ólögleg og í raun þýðir það að öll dómsmál og stjórnsýsluákvarðanir eru ólög- legar þangað til að breytt hefur verið um stjórnarhætti. Þensla Eftir Kristján Snæfells Kjartansson » Þá má jafnvel líta þannig á það að opinberir starfsmenn séu samábyrgir því að fram fór ólögleg einkavæðing. Kristján Snæfells Kjartansson Höfundur er skipstjóri. Í umræðum á Al- þingi 15. september kom fram að þjóðin stefnir í bankahrun 2 undir stjórn fjár- málaráðherra og for- sætisráðherra. Þetta bendir forseti vor Ólaf- ur Ragnar Grímsson á og ber honum skylda til þess. Bjargar þjóð- inni aftur sjálfur. Forsetinn bjargaði þjóðinni með þjóðaratkvæði um Icesave. Þar voru fjármálaráðherra og forsætisráð- herra búnir að gera samning um Ice- save og sömdu okkur í þjóðargjald- þrot. Var bjargað af forseta Íslands með þjóðaratkvæði sem felldi Ice- save. Bjargaði Íslandi frá hruni 2. Núna stefnir allt í sama farið aftur segir allur almenningur. Fjár- málaráðherra setti upp bankakerfi eftir hrunið sem féflettir þjóðina og stefnir henni í hrun 2. Okkur er sagt að útfluttur fiskur sé um 200 millj- arðar árlega. Olía, laun og annar kostnaður áætlar greinarhöfundur 120 milljarða. Þá eru 80 milljarðar eftir nettó. Þetta er sú tala sem bankarnir ætla sér í hagnað árið 2011. Hafa tekið 40 milljarða í hagnað fyrstu 6 mánuði. Verða 80 milljarðar allt árið 2011 með sama áframhaldi. Þá taka bankarnir til sín í hagnað allan nettóhagnað af sjávarútvegi Íslands. Og fyrir hvað? Okra á fólki og selja íbúðir þess, bíla og vinnuvélar upp í ok- urlán. Reka ber fjármálaráðherra og bjarga þjóðinni úr klóm hans. Bankahrun 2 á leiðinni? Eftir Lúðvík Gizurarson Lúðvík Gizurarson » Þá taka bankarnir til sín í hagnað allan nettóhagnað af sjávarútvegi Íslands. Og fyrir hvað? Okra á fólki og selja íbúðir þess, bíla og vinnu- vélar upp í okurlán. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í bréfum til blaðsins. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst. Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.