Morgunblaðið - 21.09.2011, Síða 35

Morgunblaðið - 21.09.2011, Síða 35
DAGBÓK 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2011 Sudoku Frumstig 8 1 7 7 2 6 3 8 1 5 2 3 6 1 4 7 6 3 2 5 3 2 6 1 8 1 4 9 5 2 6 6 1 4 7 9 9 5 3 6 5 9 2 3 1 7 6 3 4 5 7 3 5 3 8 8 5 6 2 1 7 5 4 6 2 9 3 9 4 9 1 4 7 9 5 6 7 1 8 4 2 3 3 7 4 5 2 6 1 8 9 1 8 2 3 4 9 6 7 5 7 6 1 9 8 3 5 4 2 2 9 5 6 7 4 3 1 8 4 3 8 2 5 1 9 6 7 8 2 9 1 6 5 7 3 4 5 1 7 4 3 2 8 9 6 6 4 3 8 9 7 2 5 1 2 7 3 8 1 6 5 4 9 6 4 8 9 7 5 3 2 1 9 5 1 4 2 3 7 6 8 3 6 9 7 4 2 8 1 5 4 1 5 6 8 9 2 3 7 7 8 2 3 5 1 4 9 6 8 3 4 1 9 7 6 5 2 1 2 6 5 3 8 9 7 4 5 9 7 2 6 4 1 8 3 6 1 4 2 9 3 7 5 8 3 2 9 7 8 5 1 4 6 5 8 7 4 6 1 9 3 2 7 5 8 6 4 2 3 9 1 1 4 2 3 5 9 6 8 7 9 6 3 8 1 7 4 2 5 4 3 5 1 2 6 8 7 9 8 9 6 5 7 4 2 1 3 2 7 1 9 3 8 5 6 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 21. september, 264. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jh. 14, 20.) Bókmenntahátíð í Reykjavík varkærkomin tilbreyting í síbylju íslenskrar umræðu. Víkverji hafði minni tíma en hann hefði óskað sér til að fylgjast með því sem þar fór fram. Þó skaust hann og hlýddi á opnunarræðu nóbelsskáldsins Herthu Müller í Norræna húsinu. Müller gerir ekki mikið af því að sækja slíkar hátíðir og mun hafa samþykkt að koma til Reykjavíkur vegna þess að henni barst boð héð- an áður en hún fékk nóbels- verðlaunin í bókmenntum. Ræða hennar var mögnuð. Hún fjallaði um einræðisherra og þá, sem hafa hugrekki til að standa uppi í hárinu á þeim. Orð hennar vöktu Víkverja til umhugsunar um það hvernig íbú- ar og stjórnvöld í lýðræðisríkjum eiga að hegða sér gagnvart kúg- urum heimsins. Skipta mannrétt- indi máli þegar hægt er að gera góð viðskipti? Við beitum hervaldi til að losna við Gaddafi í Líbíu, en ekki ráðamenn í Sýrlandi, Jemen og Sádi-Arabíu og þegar borgarstjóri leyfir sér að gagnrýna meðferð Kín- verja á andófsmönnum á borð við listamanninn Ai Weiwei er hann gagnrýndur fyrir að skaða við- skiptahagsmuni. x x x Margir áhugaverðir gestir voruá bókmenntahátíð auk Müll- er. Mjög áhugavert var að hlýða á Nawal Al Saadawi frá Egyptalandi, sem kom hingað í samstarfi við Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum. Hún hefur stundað andóf í heimalandi sínu í sjö áratugi og bæði verið varpað í fangelsi og vísað úr landi án þess að láta deigan síga. Hún uppskar á Tahrir-torgi í janúar þótt allsendis óvíst sé til hvers byltingin í Egyptalandi mun leiða. x x x Horacio Castellano Moya fráHondúras er einnig athygl- isverður höfundur og var sláandi að hlusta á hann tala um ástandið í Mið-Ameríku þar sem lýðræði hef- ur tekið við af borgarastyrjöldum án þess að það breyti miklu um lífs- kjör íbúanna. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 klettaveggur, 8 launung, 9 auðugur, 10 úr- skurð, 11 vísa, 13 manns- nafn, 15 baug, 18 stefnan, 21 blóm, 22 vonda, 23 steins, 24 mikill þjófur. Lóðrétt | 2 drekka, 3 suða, 4 brjósta, 5 vindhviðan, 6 fyr- irtæki, 7 tölustafur, 12 ætt, 14 megna, 15 hljóðfæri, 16 spríkl- inu, 17 þyngdareining, 18 kær- leikurinn, 19 ámu, 20 tæp. Lausn síðustu krossgátu Lárétt 1 björk, 4 þjaka, 7 gadds, 8 ótækt, 9 tef, 11 ræða, 13 bana, 14 lægir, 15 mont, 17 átak, 20 fat, 22 lenda, 23 Júðar, 24 Iðunn, 25 nauti. Lóðrétt 1 bugur, 2 önduð, 3 kost, 4 þjóf, 5 afæta, 6 aftra, 10 eggja, 12 alt, 13 brá, 15 mælgi, 16 nunnu, 18 tuðru, 19 korði, 20 fann, 21 tjón. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Hundasaga. N-Allir. Norður ♠D9 ♥7 ♦Á10965 ♣Á10973 Vestur Austur ♠62 ♠ÁK87 ♥9852 ♥K4 ♦DG43 ♦872 ♣DG2 ♣8654 Suður ♠G10543 ♥ÁDG1063 ♦K ♣K Suður spilar 4♥. Hin æpandi þögn „hundsins sem gelti ekki“ er vinsæl vísun í bridssögum. Belgískur höfundur, Paul-Henri Genty að nafni, lýsir spilinu að ofan undir for- merkjum hundsins hljóða. Norður vakti á 1♦, suður sagði 1♥, norður 2♣ og suð- ur 4♥. Lesandinn er settur í sæti vest- urs og látinn spila út ♠6. Makker tekur á ♠K-Á og spilar þriðja spaðanum. Besta vörnin er ævintýraleg: að trompa SMÁTT. Ef sagnhafi yfir- trompar, kemst austur inn á ♥K síðar, spilar enn spaða og uppfærir ♥9. Ein- faldar spilarasálir, sem ekki búa yfir ályktunargáfu Sherlock Holmes, trompa strax með ♥8 og vona svo það besta. En hugsum málið: Makker sagði EKKI 1♠ við 1♦ og á því ekki fimmlit. Suður á fimmlitinn og því engan tapslag í láglitunum. Eina vonin er trompslagur hjá makker og uppfærsla í kjölfarið. 21. september 1918 Fyrsta konan fékk öku- skírteini hér á landi. Það var Áslaug Þorláksdóttir Johnson. Þá voru áttatíu karlar komnir með ökuréttindi. 21. september 1985 Grímudansleikur eftir Verdi var frumsýndur í Þjóðleikhús- inu. Meðal flytjenda var Krist- ján Jóhannsson. Í gagnrýni í Morgunblaðinu var sagt: „Kristján syngur hreint út sagt stórkostlega.“ 21. september 2005 Tilkynnt var að tillaga Portus- hópsins um byggingu tónlist- ar- og ráðstefnuhúss við Reykjavíkurhöfn hefði verið valin. Kostnaðaráætlun var 12 milljarðar króna og vígja átti húsið haustið 2009. 21. september 2005 Michael Bolton hélt tónleika í Laugardalshöll. Morgunblaðið sagði að hann hefði sungið af mikilli innlifun og að kven- þjóðin hefði verið „í sjáan- legum meirihluta tónleika- gesta“. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Sólveig Leifsdóttir hárgreiðslumeistari er sextug í dag. Tímamótunum verður fagnað á Suðureyri við Súgandafjörð, en þangað rekur Sólveig ættir sínar. Hún segir að Suðureyri sé besti staðurinn til að eiga afmæli á. „Ég var búin að fagna, ég gerði það í sumar þegar ég hélt veislu á Suður- eyri. Þar ólst ég upp að hluta, ég á hús þar, hálfgert ættarhús, og sonur minn býr þarna,“ segir afmælisbarnið. Sólveig rak eigin hárgreiðslustofu í Suðurveri í þrjátíu ár, sem bar nafnið Hárgreiðslustofa Sól- veigar Leifs. Hún starfar nú við hárgreiðslu í fé- lagsmiðstöð Reykjavíkurborgar í Hæðargarði og segir það vera heillaskref á hárgreiðsluferlinum. „Þarna er svo yndislegt fólk og gott að vinna í Hæðargarði,“ segir Sólveig. Tímamótin leggjast sérlega vel í Sólveigu sem lætur vel af því að hafa lifað í sex áratugi. „Ég er nýkomin af heilsuhælinu í Hvera- gerði og mér líður alveg einstaklega vel.“ „Ég get ekki sagt að neinn einstakur afmælisdagur standi upp úr,“ segir Sólveig spurð um eftirminnilegan afmælisdag. „Hver og einn afmælisdagur er svo stórkostlegur.“ annalilja@mbl.is Sólveig Leifsdóttir hárgreiðslumeistari 60 ára Fagnar á Suðureyri Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 21. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.54 1,6 12.31 3,0 18.57 1,6 7.08 19.35 Ísafjörður 1.46 1,5 8.09 0,8 14.50 1,7 21.31 0,9 7.12 19.41 Siglufjörður 4.33 1,1 10.15 0,7 16.46 1,2 23.28 0,6 6.54 19.24 Djúpivogur 2.47 0,8 9.29 1,6 15.58 1,0 21.59 1,4 6.37 19.05 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú varst ekki að grínast þegar þú sagðist geta lokið verkefninu í dag. Leyfðu góðum vini að gráta á öxl þinni án þess að þér finnist þú tilneyddur til þess að gerast dómari í máli hans. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú þarft að vera viðbúinn því að þurfa að taka þátt í umræðum til þess að koma skoðunum þínum á framfæri. Reyndu að láta gott af þér leiða og leggja þannig lífinu lið. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það getur verið erfitt að halda haus, þegar að manni er sótt úr öllum átt- um. Svörin blasa við þér og kannski ljóstrar þú upp leyndarmáli. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Nýir vinir sem þú kynnist eru af því tagi að hægt er að umgangast þá við hvaða aðstæður sem er. Hvíldu þig aðeins á hinum stranga dómara innra með þér. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Misskilningur gerir þig brjálaða/n, ekki síst vegna þess að hann kemur þér illa. Þú færð tilboð sem þú ættir að hafna. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ert í góðri aðstöðu til þess að koma þér á framfæri í dag. Mundu að sá sem er trúr yfir litlu er kallaður til stærri verka. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Eyddu ekki orku þinni í að brjótast á móti straumnum. Betra er að vera sam- kvæmur sjálfum sér þótt það kosti sitt. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Mundu að umgangast hug- myndir annarra af sömu virðingu og þú vilt að þeir sýni þínum verkum. Þér hættir til að vera of fastur fyrir. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Gerðu þér grein fyrir því að þú nærð engum árangri án fórna og fyrirhafnar. Frestaðu ónauðsynlegum innkaupum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú hefur hæfileika til þess að gera það besta úr öllum hlutum. Gerðu lista yfir markmiðin sem þig langar að ná í lífinu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú ert eitthvað líflaus þessa dag- ana og þarft að leggja þitt af mörkum til að koma þér í gang. Ekki teygja þig í súkku- laðið, brettu upp ermarnar. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Hafðu ekki áhyggjur af dagdraumum og forðastu fljótfæra vini. Láttu það ekki vaxa þér í augum að ferðast ein/n. Stjörnuspá Anna G. Sig- urðardóttir er ní- ræð í dag, 21. september. Hún tekur á móti ætt- ingjum og vinum laugardaginn 24. september frá kl. 14 til 18 í Fé- lagslundi í Gaulverjabæ. 90 ára 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O b5 6. Bb3 Bc5 7. a4 Hb8 8. axb5 axb5 9. c3 d6 10. d4 Bb6 11. Be3 O-O 12. Rbd2 h6 13. h3 He8 14. Dc2 exd4 15. cxd4 Ra5 16. Ba2 Bb7 17. e5 Rd5 18. Bb1 g6 19. Bxh6 Rc6 20. exd6 Dxd6 21. Re4 Db4 22. Ba2 Rxd4 23. Rf6+ Kh8 24. Rxd4 Rxf6 25. Rc6 Dh4 26. Rxb8 Staðan kom upp á heimsbikarmóti FIDE sem er nýlokið í Khanty- Mansiysk í Rússlandi. Rússneski stór- meistarinn Peter Svidler (2739) hafði svart gegn bandarískum kollega sínum Gata Kamsky (2741). 26… He2!! 27. Dc3 hvítur hefði einnig tapað eftir 27. Dxe2 Dg3! þar sem hann væri þá óverjandi mát. 27… Hxf2 28. Rc6 Hxf1+ og hvítur gafst upp enda mát eftir 29. Kxf1 Df2#. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.