Teningur - 01.06.1989, Qupperneq 49

Teningur - 01.06.1989, Qupperneq 49
HALLDÓR BJÖRN RUNÓLFSSON LISTIN AÐ FYLGJAST MEÐ LISTINNI Margt af því sem skrafað er um í heimi myndlistar er byggt á misskiln- ingi, lítt athuguðu máli og gleymsku. Þetta leiðir oft til rangrar ályktunar um listir á líðandi stund og gerir lista- mönnum erfiðara að skilja stöðu sína og stefnu. Því vil ég leggja mitt af mörkum til að leiðrétta ýmislegt sem ég hef heyrt eða lesið varðandi myndlist og veldur oft skammhlaupi í huga íslenskra listamanna. LÍFDAGAR LISTSTRAUMA Eitt af því sem oft er nefnt á þessum síðustu og verstu tímum er hve list- stefnur samtímans ganga fljótt yfir. Listamenn og leikir telja að æ erfiðara sé að fylgjast með örum listbrigðum líðandi stundar eða skilja breyting- arnar að einhverju ráði. Sumir kenna um hverfulleik tilverunnar og telja hann fara ört vaxandi á tímum síð- borgaralegs kapítalisma. Þeir segja að í stað varanlegra strauma áður fyrr séu ekki eftir nema fánýtar og skammlífar tískustefnur. Fyrir skömmu ákvað ég að setjast niður og telja lífdaga algengustu stefna í nútímalist og vita hvort rétt væri að þær gengju hraðar yfir en forðum. Mér til mikillar furðu kom í ■jós að listin er með öllu óháð auknu skriði hinnar tæknilegu framvindu. Ýmsar merkar stefnur í lok síðustu aldar og á fyrri hluta þessarar skáka hæglega þeim hraða sem við eigum að venjast í listheimi samtímans. Svo virðist sem mannshugurinn þurfi síst æinni tíma en áður til að gjörmelta eigindir líðandi liststrauma. En hver er ástæðan fyrir þessari missýn okkar? Sennileg ruglum við síauknu upplýsingaflóði um listir saman við raunverulega framrás þeirra. Áður fyrr og raunar til skamms tíma voru boðleiöir lista afar stopular. Menn sem vildu fylgjast með urðu að bera sig eftir björginni með því að ferðast. Þá var tími hinna stóru mið- stöðva, Rómar, Parísar og New York. Nú er hins vegar lítið eftir af nútíma þeirra Descartes og Rubens, þeim tíma sem SÚM-hópurinn náði að upplifa ef marka má nýlega sýningar- skrá Kjarvalsstaða. Þar kemur nefni- lega í Ijós hve seint og illa þeim félögum bárust fregnir af listvið- burðum utan úr heimi. LISTIN Á TÍMUM UPPLÝSINGASTREYMIS Nú er öldin önnur og enn annarrar missýnar. Mörgum íslenskum lista- mönnum sem fylgjast grannt með þemagreinum listtímarita finnst sem ný liststefna fæðist með hverju nýju tölublaði. Þar er komin enn ein ástæðan fyrir hve margir telja list- stefnur líðandi stundar í meira lagi hraðfleygar. Slík tímarit valda uppnámi og gera menn óörugga. Ef til vill raskar hið óstöðvandi upplýsingastreymi ró manna í stað þess að svala forvitni þeirra. Þeim finnst þeir vera tjóðraðar eftirlegukindur langt frá hinum sanna púlsi menningar og lista og líður þá eins og Jónasi Hallgrímssyni í kvæð- inu Einbúinn: „Ég hef leitað mér að, hvar ég ætti mér stað... En ég fann ekki neinn, ég er orðinn of seinn, þar er alsett af lifandi og dauðum..." Ráðið við þessu er að hætta að skoða listtímaritin en lesa þau í staðinn. Þá læra menn að meta hið mikla upplýsingastreymi þegar þeir sökkva sér ofan í vandamálin að baki listinni. Vissulega á þetta ekki ein- göngu við um alþjóðlegu listritin Flash Art, Artforum eða Kunstforum heldur einnig Playboy og alla slíka léttbleytu. Manni sem einungis skoðar slík blöð finnst hann e.t.v. sénslaus og víðs- fjarri góðu gamni. En um leið og hann kynnist kynlífsvanda Bandaríkja- manna í lesendadálkunum þakkar hann sínum sæla fyrir sitt tilbreytinga- snauða ástalíf. Taka má sem dæmi símúlasjónist- ana vestanhafs. Af verkum Jeff Koons, Peter Halleys, Haim Stein- bachs og Ross Bleckners mætti í fljótu bragði ætla að þeir hefðu hitt naglann á höfuðið og brotist út úr hinni síðmódernísku kreppu í eitt skipti fyrir öll. Sumir telja þá jafnvel halda á lottó-vinningi 21. aldarinnar. En ef gaumur er gefinn að yfirlýs- ingum þeirra sjálfra, skilst lesanda hve fast þeir sitja í deiglunni. Það er ekki einasta að þeir séu fangaðir í helli Platóns, heldur gera þeir sér fulla grein fyrir því. Að því leytinu eru þeir betur settir en íslenskir listamenn sem sumir hverjir eru öldungis ómeð- vitaðir um fjötur sinn. ÞJÓÐSAGAN UM MIÐSTÖÐVARNAR Þá er með öllu óvíst að lausnin á 47
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Teningur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.