Svart á hvítu - 01.01.1979, Side 13
laginu og vakið fleiri spurningar
en svör. Það var einmitt þessi
eiginleiki verksins, sem hreif mig
einna mest. Ekkert er Ijóst og
engu fullsvarað.
Hafið þið í hyggju að setja upp
önnur verk eftir Jökul?
Já, við höfum mikinn áhuga á
að setja upp fleiri verk eftir Jök-
ul, en það versta er að svo fá
þeirra eru til í enskri þýðingu.
Einnig langar okkur til aó kynna
okkur verk annarra ungra ís-
lenskra höfunda, ef þau fást
þýdd.
Hvað getur þú sagt mér um
sögu svokallaðra off-Broadway
og off-off Broadway leikhúsa í
New York?
Hin svokölluðu off-Broadway
leikhús byrjuðu á fimmta ára-
tugnum meðal ungra leikskálda
og leikara, sem ekki komust aö á
Broadway. Til að byrja með voru
þau til húsa í kompum og kjöll-
urum í Greenwich Village, að-
gangseyrir var 50 cent og sæti
og leiktjöld voru kassar og fúa-
spýtur. Smátt og smátt fóru
þessir leikhópar aó komast í
betra húsnæði, blaóagagnrýn-
endur fengu áhuga á starfsem-
inni og fyrr en varði fór hún að
njóta mikilla almennra vinsælda.
Það varð auðvitað til þess aö
engin leikrit voru tekin til sýn-
inga nema þau sem voru örugg
með að ganga og ung skáld með
nýjar og frumlegar hugmyndir
gátu ekki lengur fengið verk sín
flutt. I dag eru off-Broadway
leikhúsin sex eða sjö og eini
munurinn á þeim og Broadway
leikhúsunum, er sætafjöldi
þeirra. Off-Broadway leikhúsin
hafa um 200 sæti en Broadway
leikhúsin 300 til 500 sæti. Þá var
það að maður nokkur að nafni
Cino, sem átti kaffihús við
Cornelia-stræti í Greenwich Vil-
lage, veitti leikurum aðstöðu til
að sýna verk ungra höfunda í
einu horni kaffihússins. Að-
gangur var ókeypis og menn
drukku kaffi og átu sætabrauð á
meðan þeir meltu ósköpin. Cino
stjórnaði Ijósunum á milli þess
sem hann framreiddi kaffió! Fyrr
en varði varð þetta litla kaffihús
griðarstaður ungra leikskálda og
leikara og þannig gátu þeir
fengið verk sín flutt, mat í mag-
ann og vasapening. Cino var
alltaf reiöubúinn til að hjálpa og
það er ekki af ástæðulausu sem
hann er kallaður faðir off-off
Broadway leikhúsa.
Fyrsta off-off Broadway leik-
húsið í fyllstu merkingu þess
orðs var hins vegar La Mama.
Stofnandi þess var ung negra-
stúlka, Ellen Stewart að nafni,
sem komst í góð efni á því aö
hanna sundfatnað. Og er hún
satt að segja einn af fyrstu
tískuhönnuðunum í þeim bransa
hér í New York. Bróðir hennar
var einn þessara ungu skálda,
sem hvergi fékk inni svo Ellen
tók það til bragðs að breyta
kjallaranum í húsi sínu vió 9.
stræti í austur-Village, í leikhús.
Fljótlega keypti hún ,,loft“ (verk-
smiðjuloft) við 3. götu.
Starfsemi þessi gekk vel, þar
til yfirvöld komust í málið. Hús-
næóiö fyllti nefnilega ekki á
nokkurn hátt þær kröfur sem
geróar eru til leikhúsa og vildi
það opinbera láta loka leikhús-
inu.
Það var ekki óalgengt á tíma-
bili að lögreglan kom og handtók
alla leikarana í byrjun sýningar,
en áhorfendur biðu þolinmóöir á
meðan La Mama, en svo var Ell-
en kölluö, borgaði leikarana úr
prísundinni. Að lokum var La
Mama breytt í einkaklúbb og
komst þannig hjá afskiptum yfir-
valda. Og þegar menn borga 4
dali við innganginn eru þeir í
rauninni að borga meðlimagjald
í einkaklúbb.
Núna er La Mama til húsa við
4. stræti nálægt annarri götu og
er eitt þekktasta off-off Broad-
way leikhús New York borgar.
Hversu lengi hefur „The Open
Space in SoHo“ starfað og hver
er stefna þess?
Leikhúsið var stofnað árið
1975. Upphaflega lagði það
mesta áherslu á aó sýna verk
ungra bandarískra höfunda, en
eftir að ég fór að starfa með þeim
fyrir tæpum tveimur árum, höf-
um við mestmegnis fengist við
verk erlendra höfunda. Hug-
myndin á bak við starfsemina hjá
okkur er að kynna unga efnilega
leikritahöfunda, leikstjóra, leik-
hópa og leikara. Samkeppnin
hér í New York er geysilega
höró. Öll venjuleg leikhús, sem
rekin eru með gróðasjónarmió-
inu, setja aldrei upp nýstárleg
verk eða veita óþekktum leikur-
um tækifæri til þess að sþreyta
sig. Það gefur auga leið að það-
an kemur aldrei neitt nýtt. Pen-
ingafíknin er ekki á dagskrá hér
hjá okkur og reyndar hafa hags-
munasamtök leikara komið í veg
SVART Á HVlTU
11