Svart á hvítu - 01.01.1979, Síða 41

Svart á hvítu - 01.01.1979, Síða 41
Kinetoscope, jalnan kenndur við Edison en var í raun fundinn upp og smíðaður a( aðstoðarmanni hans, W. K. L. Dickson; grundvaliaruppfinning fyrir framþróun kvik- myndatækninnar. Ijósast var þetta í Frakklandi og Bandaríkjunum. Franska fyrir- tækiö Pathe eignaðist fyrir 1914 dreifingarfyrirtæki víöa í heimin- um. Einokunaraðstaöa þess varö svo sterk aö þaö náöi að standa í vegi fyrir þjóðlegri kvik- myndagerð í flestum löndum Evrópu. Hvorki bretar né þjóð- verjar höföu þá nægilegt fjár- magn í þessari grein aö þeir næöu að hamla gegn einokun Pathe fyrirtækisins. Stór fyrir- tæki eins og Nordisk Film í Dan- mörku og Cines A. G. á Ítalíu buöu þessu franska fyrirtæki byrginn meö því aö kaupa kvik- myndahús í ýmsum löndum og koma sér þannig upp bíókeðjum til þess aö tryggja sér markað fyrir myndir sínar. í Bandaríkjun- um var litið á kvikmyndagerö sem hverja aóra iðnaðarfram- leiöslu. Samkeppnin var geysi- hörö og þegar framleiöendum varð Ijóst aö hún leiddi til lægra miðaverðs vaknaöi áhuginn á hringamyndun. Níu stærstu framleiöslufyrirtækin tóku hönd- um saman og mynduðu sam- steypuna „Motion Pictures Pat- ent Company“. Hún tryggði sér rétt á ýmsum einkaleyfum í kvik- myndaiðnaðinum og veitti meö- limum sínum leyfi til kvikmynda- sýninga. Fyrsti og stærsti hrá- filmuframleiðandinn Eastman Kodak Co. var tekinn inn í sam- steypuna og féllst á aö selja filmur einvöröungu til kvik- myndagerðar á vegum fyrirtækja samsteypunnar. Þannig skap- aðist einokun á kvikmyndagerð gegnum hráfilmusölu. Þeim kvikmyndahúsum sem reyndu aö fá kvikmyndir frá óháöum framleiðslufyrirtækjum var refs- aö á ýmsan hátt m. a. meö því aö taka af þeim sýningartæki. Þrátt fyrir þessar aögeröir reyndu ýmsir óháöir dreifingaraðilar aö starfa utan samsteypunnar. Á vegum samsteypunnar var því stofnað dreifingarfyrirtæki Gen- eral Film Co. sem lagöi undir sig 57 af 58 helstu dreifingarfyrir- tækjum sem störfuöu í Banda- ríkjunum 1910. Markmiöiö meö samsteypunni var aö framleiða eins ódýrar og gróðavænlegar kvikmyndir og hægt var. Sam- steypan staölaöi og skipulagói kvikmyndaframleiðsluna eftir fyrirmyndum sem þekktust í öðrum iöngreinum. Launum kvikmyndagerðarmanna og leik- ara var haldið í lágmarki, leigu- verö var ákveðið og ekkert tillit var tekið til óska kvikmyndahús- anna um kvikmyndir til sýninga. Kvikmyndaiðnaðurinn Allt frá byrjun var litið á kvik- myndaframleiöslu sem áhættu- sama starfsemi og þaó var ekki fyrr en rétt fyrir fyrri heimsstyrj- öldina aö bankarnir fengu áhuga á þessum nýja iðnaði og sáu sér hag í aö fjárfesta þar. 1927 var svo komið aö þau 20 þúsund kvikmyndahús sem þá voru starfandi í Bandaríkjunum voru aö mestu leyti komin undir stjórn risafélaganna sem aftur voru í nánum tengslum viö bankakerf- iö og stóriönaöinn. Samstarfiö viö bankana leiddi til enn frekari stöölunar og flokkunar á kvik- myndum. j Evrópu haföi Þýska- land náö forustunni í kvik- myndaframleiðslu meö fjár- magni frá bönkum og einnig þar eins og í Bandaríkjunum var kvikmyndaiðnaðurinn í höndum fáeinna risafyrirtækja. Þau höföu vinsælustu og dýrustu leikarana á sínum snærum og framleiddu bestsóttu myndirnar. Stöðug framleiösla þeirra geröi þeim kleift að jafna út hallann á einstökum myndum í heildar- framleiöslunni. Kostnaðurinn viö gerð myndanna jókst stórum og hin mikla fjárþörf geröi óháð- um framleiðendum erfitt fyrir. Talmyndin Allt fram til 1927 jókst aösókn aö kvikmyndum í flestum lönd- um. En þá fór að bera á kreppu í SVART A HVÍTU 39

x

Svart á hvítu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.