Svart á hvítu - 01.01.1979, Page 46
Dæmi um hvernig ómerkilegum upplýsingum um einkalíf stjörnunnar er dreift til
neytenda.
einstakra leikstjóra er eitt af ein-
kennum kvikmyndaiðnaðarins.
Upphaflega var háð samkeppni
á milli framleiðenda um kvik-
myndastjörnurnar. Síðar kom í
Ijós að hin gífurlega háu laun
sem stjörnurnar fengu höfðu
sálfræðileg áhrif á áhorfendur. í
hugum þeirra fóru saman gæði
og miklar fjárfestingar. Auðæfi
kvikmyndaleikaranna reyndust
aödráttarafl fyrir neytendur og
það var brátt notað í áróðurs-
skyni.
Kvikmyndastjarnan er gerð
vinsæl með öllum hugsanlegum
ráðum. Framleiöendur nota út-
varp, heimsblöð, árlegar verð-
launaafhendingar eins og
Oscarsverðlaunin til þess að
framleiða stjörnur og tryggja
sem mestar vinsældir þeirra.
Kvikmyndaverin dreifa ómerki-
legum tilkynningum um þessa
ástvini áhorfenda, um líf þeirra
og einkamál. Ekki má vanmeta
áhrifin af þessum tiltektum.
Stjörnudýrkun hefur sprottiö
upp víða um heim en einkum í
Bandaríkjunum þar sem kvik-
myndastjörnur skipa mikilvæg-
an sess í opinberu lífi. í þessu
sambandi þykir rétt að nefna
fyrirbæri sem kallað er kvik-
myndaaðdáendahópur (film fan)
sem sumir starfa í klúbbum og
eru í stöðugu sambandi viö á-
trúnaðargoð sín. Framleiðendur
hvetja þessar hreyfingar, því hjá
þeim fá þeir mikilvægar upplýs-
ingar um vinsældir einstakra
leikara. Tengslin milli kvik-
myndafólks annars vegar og á-
horfenda hins vegar breytast
stööugt. Breytingarnar eru háð-
ar ýmsum straumum og hreyf-
ingum í þjóðfélaginu á hverjum
tíma. Áður fyrr voru stjörnurnar
geróar að guðlegum verum en
nú reyna framleiöendur að gera
stjörnur sínar mannlegar til þess
að aðlagast breyttum viðhorfum
fjöldans. Vinsælustu leikarar
why JOANNE WOODWARD and PAUL NEWMAN hide their daughter
DEBBIE’S
MARRIAGE TO
HARRY KARL
TUESDAY WELÐ
CONFESSES EVERYTHING
Dæmi um staðlaðar manngerðir kvikmyndanna: kúrekinn, gljátíkin, ófreskjan.
44
SVART Á HVÍTU