Svart á hvítu - 01.01.1979, Side 63

Svart á hvítu - 01.01.1979, Side 63
Skömmu eftir fyrstu lendingu bandarískra geimfara á tunglinu, tók sú skoðun að gera vart við sig í Bandaríkjunum að lendingin hefði verið sett á svið, ætluð sem kosningabragð. Það tók marga mánuði að kveða efasemdirnar niður að fullu. sínu. Að setja upp sem andstæður skáldverk/ekki-skáldverk ber vott um álíka stöðnun og hin vinsæla 19. aldar díalektík milli ,,lífs“ og „listar". Benjamin hafði þegar sýnt fram á að „tækjabúnaðurinn" (hugtakið fjöl- miðill hafði enn ekki verið fundið upp) eyðir sérkennum hins upp- runalega. Meö vitundariðnaðinum hverfa skilin milli hins „ósvikna" og eftirmyndarinnar; „Tækjalausa hlið veruleikans er hér orðin listræn hlið hans“. Fjölföldunarferlið verkar aft- ur fyrir sig og breytir gagngert því sem fjölfaldað er. Þekkingarfræð- inni hefur enn ekki tekist að gera nógu rækilega grein fyrir afleiðing- um þessa. Flokkunarfræðileg ó- vissa sem af þessu leiðir hefur áhrif á „heimildarverkið" sem hugtak. í raun og veru reitist af því öll merk- ing nema sú sem lýtur að lögfræði- legri hlið málsins: verk telst heimild ef „fölsun" þess — þ. e. a. s. gerð eftirmyndar — varðar við lög. Þessi skilgreining hefur að sjálfsögðu enga fræðilega þýðingu. Það verður þegar í stað Ijóst af því einu að sé eftirmyndin tæknilega nógu vel úr garði gerð, er ómögulegt aö greina mun á henni og frummyndinni, hvort sem um er að ræða málverk, vega- bréf eða peningaseðil. Gildi hug- taksins „heimildaverk" í réttarfars- legum skilningi er fyrst og síðast hagnýts eðlis, eini tilgangur þess er að vernda efnahagslega hagsmuni. Eðli sínu samkvæmt gera raf- eindafjölmiðlar mönnum óhægt um vik að flokka framleiðslu þeirra, t. d. í heimildamyndir og leiknar myndir. Framleiðslan er Ijóslega alltaf háð sérstökum aðstæðum. Framleiðandanum líðst aldrei, öfugt við höfund hefðbundinnar skáld- sögu að bera fyrir sig að hann sé „yfir hlutina hafinn". Hann er sem sé fyrirfram hlutdrægur. Formleg sönnun þessa felst í vinnubrögðum hans. Klipping, uppsetning, hljóð- setning o. s. frv. eru allt tæknibrögð meðvitaðrar meðhöndlunar, sem einnig er forsenda allrar notkunar nýju fjölmiðlanna. Það er einmitt í þessum vinnuaðferðum sem frjó- máttur þeirra kemur í Ijós og þá gildir einu hvort um er að ræða framleiðslu frétta eða skopleikrits. Hvort sem efnið sem við er fengist er skáld- eöa heimildaefni er það aldrei annað en hráefni og því betur sem uppruni þess er rannsakaður því minni sýnist munurinn á skáldskap og heimild. (Verður aó taka til ná- kvæmrar umræöu. Raunveruleiki verður alltaf að „sviðsetningu" um leið og kvikmyndavél birtist, dæmi: lendingin á tunglinu.) 19. önnur gömul hugmynd sem hverfur fyrir tilverknað fjölmiðlanna er „verkið" sem smekkvíslega unn- inn hlutur, búinn til úr og háöur ein- hverju efni. Fjölmiðlarnir framleiða ekki slíka hluti. Þeir framleiða dag- skrár. Framleiðsla þeirra hefur öll einkenni þróunarferils. Það þýðir meira en aðeins það að þessi dag- skrá hafi engan endi (sem ef til vill skýrir að einhverju leyti margnefnt fjölmiðlahatur), það hefur í för með sér að sökum formgerðar sinnar eru fjölmiðlarnir ætíð opnir fyrir öllu því sem þeir leiða af sér. (Þetta er ekki lýsing byggð á reynsluþekkingu heldur krafa. Vissulega er þessi krafa ekki utanaökomandi, hún leiöir af gerö fjölmiðlanna. Og af þessari gerð — en ekki af einhverri gamalli fagurfræði einsog sumir hafa viljað halda fram — sprettur hið svokallaða „opna forrn" sem þrástagast hefur veriö á.) Dagskrár vitundariðnaðarins verða að bregð- ast við þeim viðbrögðum sem þær framkalla og tilraunum til að leið- rétta þær, að öðrum kosti eru þær þegar orðnar úreltar. Það má sem sagt ekki líta á þær sem neysluvöru heldur sem hráefni til sinnar eigin framleiðslu. 20. Það er eins og framúrstefnu- hreyfingin í listum steli oft á tíðum fyrirfram þeim fjölmiðlamöguleikum sem enn heyra framtíðinni til. „Meginhlutverk listarinnar hefur alla tíð veriö að skapa þörf sem ekki varð fullnægt fyrr en síðar. Saga allra listgreina geymir umbreytinga- skeið þegar ákveðin listform reyna að knýja fram áhrif sem krefjast breyttrar tækni, þ. e. a. s. nýs list- forms. Þær öfgar og sá listræni vanþroski sem þannig verður til einkum á svonefndum hnignunar- skeiðum, eiga raunverulega rætur að rekja til auðugustu skeiða lista- sögunnar. Á undanförnum árum hefur dadaisminn geymt gnægð af slíkri villimennsku. Það er fyrst nú að við sjáum hvað í honum bjó: reynt var að ná fram í málverkum (og bókmenntum) þeim áhrifum sem á- horfendur sækja nú til kvikmynd- anna.“ (Benjamin, sama verk.) Undir þetta heyrir einnig forsagn- argildi ýmissa tiltækja svo sem uppákoma, fluxus-6) og mixed-- media-shows. Ýmsir höfundar sýna SVART A HVfTU 61

x

Svart á hvítu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.