Birtingur - 01.12.1958, Blaðsíða 32

Birtingur - 01.12.1958, Blaðsíða 32
sinn á næstu kynslóð á eftir, sem er tæpum tuttugu árum yngri en við, og segja: sjáið gróskuna! Ég spyr um okkar kynslóð. Jón úr Vör: Ég verð nú að taka undir það hjá Hannesi að mér þykir þú, Einar minn, helzti lukkulegur með nútímaljóðlistina hjá okkur og afgreiða hina eldri fullhranalega yfir í yztu myrkur. Er þetta ekki kokhreysti? Línur eru hér enn mjög óskýrar. Ljóðþróunin hefur verið töluvert önnur hér en annars staðar í heiminum. Hér virka allar listastefnur seinlega og hægt fram yfir síðari heimsstyrjöld. Við Steinn erum lötr- andi sporgöngumenn Jóhanns Jónssonar, Jóhanns Sigurjónssonar og Jóns Thoroddsens yngri — manna sem dóu ungir og lifðu sína skömmu manndómsævi erlendis, voru enda afkastalitlir og varla nema hálfir í ljóðagerðinni. Kiljan, sem ég verð einnig að nefna hér, hefur varla ort nema eitt formbyltingarljóð, en gerðist snemma heldur íhaldssamur í þessum efnum, eins og meginhluti ljóða hans vitnar um. Það er kannski glámskyggni af mér, en ég hef aldrei sett Tíma og vatn Steins mjög hátt á blað. Ég met Stein meira fyrir annað en þá bók. Mér er nær að halda að persónuleg áhrif Steins á ungu skáldin hafi verið meiri en áhrifin frá bókum hans. Um áhrif mín er ég varla dómbær, en fyrir ýmsra hluta sakir hljóta þau að hafa verið miklu minni, bæði hvað viðvíkur lífsskoðun og skáldstefnu. Hvað þér viðkemur sjálfum, Hannes, verð ég að segja þetta: þú ert strax nokkuð hikandi 1 stefn- unni. Ljóðmál þitt og allur hljómur eiga sér sterkari rætur í þjóðlegri hefð en okkar hinna, og öll lífsstefnan er óráðnari. Stefán Hörður er heimspekilegur vangaveltari, fagurkeri, ekki mjög brennheitur í and- anum, Sigfús er okkar nýtízkastur og borgaralegastur. Mér finnst að hér eigi líka að nefna Jón Óskar, sem er kannski okkar allra mestur völundur að listrænni túlkun og samkvæmastur þessum tima. Bragi: Ég held, Hannes, að ágreiningur okkar geti ekki — nema þá að óveru- legu leyti — stafað af ólíkum Ijóðsmekk, enda væri þá hægt að spara sér frekari orðræður, því deilur um smekksatriði eru oftast frernur ófrjóar. Það sem mér finnst milli bera er: í fyrsta lagi, að ég tel þig ekki enn hafa fært fram neinar líkur, hvað þá viðhlítandi rök fyrir þeirri grunsemd þinni, að nútímaljóðlistin sé ekki hlutverki sínu vaxin, né heldur því, að hún hafi varnað ykkur fjórmenningunum máls; í öðru lagi leggjum við ekki sama skilning í hugtakið ,,þróun íslenzkrar nú- tímaljóðlistar“, nálgumst því ekki aðeins málið sinn frá hvorri lilið, heldur ræðum raunverulega að nokkru leyti sitt efnið hvor; í þriðja lagi finnst mér koma fram hjá þér — og reyndar einnig Jóni úr Vör — undarlegt og ómótíverað vanmat á framlagi „okkar kynslóðar“, sem þú kallar svo, og yngstu mannanna, en verk þeirra tel ég skylt að skoða sem fyrirheit — misjafnlega fögur eins og gengur — í stað þess að afgreiða þau með einu orði: barnabrek. Ég álít (eins og Jón úr Vör 30 Birtingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.