Birtingur - 01.12.1958, Side 71
úr Kötlum (Sjödægra) og jafnvel þýð-
ingar hans (Annarlegar tungur). Dæmi:
í skugga súðar
eldstöfum rista kertaljósin
minnið bernskubjart.
Fönn hlúir ungu frjói,
stjörnur stafa bjarma
á frostblóm í glugga.
(Jól)
Eða jafnvel Þorsteinn Valdimarsson.
Dæmi:
Á breiðum tónsæ
byrþanið segl.
Myndlíf söngs og sagnar
(Þrá)
En Arnfríður á líka til persónulegan tón
og þokkalegan málsmekk, og það bezta í
bókinni er allgóður skáldskapur:
Vor
Ef maðkur fer yfir votan stíginn
þá hef ég leitað orða oft og lengi
gaumgæft hvert og eitt
einsog garðyrkjukona tíndi þroskuð blóm
og að stundu fyndi drúpandi blóm
á ungs manns gröf.
Hve oft hef ég þá brúað fjarlægð
brum-fellt orð að orði
og öllu hrundið hljóð í ryk.
Þrútið brum — þá hef ég hringsólað oft
einsog kona sem þekkir ekki orð
veit ekki hvers né hvar skuli leita.
Einsog gleði daufdumbs viti hvað hún
heitir?
— Að hún heitir gleði?
Loks — ef maðkur fer yfir votan stíginn.
Þetta er bezta ljóð bókarinnar, að mestu
laust við þá uppskrúfuðu tilgerð, sem
alltof oft eyðileggur ljóð Arnfríðar. Þetta
ljóð og kaflar úr nokkrum öðrum gefa
okkur vonir um að hin tæra ljóðlind eigi
sér þrátt fyrir allt bústað í brjósti skálds-
ins.
Ég óska Arnfríði til hamingju með þessa
bók.
Jón frá Pálmholti.
Regn í maí
Einar Bragi:
Regn í maí.
Teikningar eftir Hörð Ágústsson.
Helgafell.
Með fjórðu ljóðabók Einars Braga rætast
margar vonir sem vöknuðu þegar sú
fyrsta kom út. Ljóðræn gáfa hans nýtur
sín betur en áður, taumhaldið á skáld-
fáknum er öruggara og mynduglegra.
Enn sem fyrr er Einar Bragi skáld hinnar
glaðsáru lífskenndar, sem spannar bæði
yfir fæðinguna og dauðann, geymir jafnt
í sér ljós og myrkur, ef þar aðeins hrær-
ist líf. En lífið, með mátt sinn til sífelldr-
ar endurnýjunar, er einmitt sigurinn jrfir
dauðanum.
Aldrei myndi Einar Bragi hafa ort sem
hið fræga skáld:
April is the cruellest month . . .
Þvert á móti fagnar hann þegar brum-
knapparnir bresta og fræin spíra í jörðu,
liann er skáld vorsins, eitt af mörgum
sem við íslendingar höfum átt, en nýr og
ferskur. Sjálf nöfn bóka hans bera vorinu
vitni: Eitt kvöld í júní, Regn í maí.
í öllum þessum ljóðum hrærist lífið, ýmist
sigrandi eða sigrað en ætíð heillandi,
þrungið inntaki og spennu. Ljóðmyndirn-
Birtingur 69