Birtingur - 01.12.1958, Page 83
flokksvélar. Hér á landi á myndagerð af
þessu tagi helzta von aðdáenda meðal
hinna afturhaldssömustu stjórnmála-
manna okkar, og hjá þeim sem taka hina
sálarlausu eftirlíkingu fram yfir fyrir-
brigði lífsins.
Gunnlaugur Scheving
1 guðanna bænum skiljið ekki orð mín
svo að ég sé að heimta að öll list sé non-
figurativ, óhlutkennd. Alls ekki. Anzi
verður Rússanna stóra sýning bágleg
á móti fjórum myndum sem ég sá ný-
lega eftir Gunnlaug Scheving. Fjórum
stórum málverkum sem sýna lífsstríð
fólks í íslenzkri náttúru. Þessar myndir
eru óður til manneskjunnar, sterkar af
af hinum stranga aga sem listamaðurinn
beitir sjálfan -sig vægðarlaust, ramm-
gervar í forminu, dýrar í háttum, og
voldugar af lotningu listamannsins and-
spænis lífinu og því manneskjustríði sem
fréttist tæplega inn á skrifstofur stjórn-
málasamtaka, hvað þá að af því verði
dregin þversumma á útreikningarenning-
um stjórnmálasamtaka.
Er þetta sósíalrealismi ? Eða er hitt
sósíalrealismi sem aflar mönnum axla-
klapps stjórnmálamannanna: þessar sælu
boldangskvinnur sem ganga undir past-
öríseraðri kvöldsól afrenndar af uppbygg-
ingarafli heim af akrinum, þar sem korn-
öxin standa stolt og bíða hins rauða fána
og ræðunnar úr hátalaranum til þess að
geta marsérað sjálf heim, það er einn
svipur á öllum þessum rennibeltisandlit-
um vinnugleðinnar, og hin sameiginlegu
augu þeirra eru öll stillt á þann miðunar-
púnkt fjölærisáætlúnarinnar sem er svo
hrífandi eins og kemur fram í flugritum
og bæklingum handa þeim sem ekki
þekkja það starf sem vinnugleðin á að
stafa af fremur en málarinn og herrar
hans.
Sýning Svavars
Eða sýning Svavars. Þá sýningu hefði
mátt sýna með sóma hvar sem myndlist-
arfrelsi og listmenning ríkir. Hugsum
okkur að þessi sýning hefði blasað við
manni sem kom inn úr breiðstrætisys er-
lendrar stórborgar, ég gæti trúað að
manni hefði þótt hressandi að fá þennan
náttúrusinfón og veðraspilverk af Fróni
dúndrandi yfir sig.
Það er ekki amalegt að mæta vetrin-
um með svona bjartri sýningu og fá víta-
mín undir skammdegið. Þeir sem sjá ekk-
ert í svoleiðis sýningu nema sundurlausa
tigla og ferhyrninga og hvað það nú er
sem þeir eru að kumra sumir sem raupa
af ónæmi sínu á það sem þeir drífa undir
heitið abstrakt, — — sjá þeir yfirleitt
nokkuð af þeim litum sem hefur verið
spanderað upp á veröldina allt í kringum
okkur, blæbrigði landsins og himinsins og
sjávarins.
Það er svo mikið í myndum Svavars í
sambandi við það sem er alltaf að gerast
í kringum okkur í náttúrunni, krómatísk-
ar varíasjónir úr náttúrunni. Ég er alveg
hissa á því að teikningar hans við Kvæða-
kver Kiljans skuli ekki hafa verið þrykkt-
ar með kvæðunum. Auk þess sem þær eru
skemmtileg myndlistarfantasí þá eru þær
fullar af fínum lifandi húmor. Ég hef
ekki séð heilsteyptari sýningu nonfígúr-
atífrar listar hér, en þessa sýningu Svav-
ars, hún var líka fjölbreytt og sterk, og
falleg og karlmannleg. Hvenær skyldu
þeir menn sem skammta listamannastyrk-
ina uppgötva livað þeir liafa orðið sér
Birtingur 81