Birtingur - 01.12.1958, Page 61
Svavar Guðnason: Fæddur 18. 11. 1909 á Höfn í Hornafirði. Foreldr-
ar: Guðni Jónsson og Ölöf Þórðardóttir. Giftur Ástu Kristínu Eiríks-
dóttur Sigfússonar og Marinar Sigurðardóttur, Borgarfirði eystra. Byrj-
ar seint að mála, eða um 25 ára gamall. Sjálfmenntaður, eða að frá-
skildri skammri dvöl sem gestur á ,,Kunstakademiet“ í Kaupmannahöfn
árin 1985 og ’36. Ferðast m. a. til Frakklands 1938, ’48 og ’50, og Italíu
’55. Sýndi fyrsta sinni á opinberri dómnefndarsýningu árið 1935 —
„Kunstnernes Efterársudstilling“ í Kaupmannahöfn — nokkru áður þó
sýnt vatnslitamyndir í glugga verzlunar Haraldar Árnasonar í Reykja-
vík og hafði Markús ívarsson veitt þeim athygli og keypt sumar hverjar.
Árum saman virkur félagi í sýningarsamtökum í Kaupmannahöfn, t. d.
„Skandinaverne" — „Bellevue — 13 kunstnere“ og „Höstudstillingen“.
Auk nefndra sýninga þátttakandi í nær öllum sýningum „Nordiska
konstforbundets“ í höfuðborgum og flestum stærri bæjum Norður-
landa. Þá hefur hann tekið þátt í m. a. eftirtöldum sýningum: „Nordisk
abstraktkunst“ í Kunstnernes Hus, Ósló, „50 ans de peinture abstraite“,
París, „La Peinture Nordique Contemporaine“, París, „Arte Nordica
Contemporanea“, Róm, „Les Surindépendants Paris 1950“, Hin opinbera
íslenzka listsýning í Kaupmannahöfn 1954 og „Islenzk list“, Briissel 1952.
Myndir í einkasöfnum í Viborg, Gautaborg og Kaupmannahöfn og Lista-
safni ísl. ríkisins. Umsagnir í m. a.: Gelsteds kunstnerleksikon, Wiel-
backs kunstnerleksikon, Walter Schwartz: Kunstnernes Efterársud-
stilling 1900—1950, Bibliotheque de Cobra No. 11, Edouard Jaguer: ,,Le
Soleil noir Positions“, Collection de Litterature et D’Art.
Flaugnaþytur, 1958. Olía.