Húsfreyjan - 01.12.1954, Page 12

Húsfreyjan - 01.12.1954, Page 12
aldri var bÍóðið heitt, og fyrir þá sök báru margir ólæknandi hjartasár alla ævi. En það var bezt að vera ekki að hugsa um þetta núna, — og Margrét fór aftur að raula: Stúlkurnar ganga sunnan með sjó---- Þetta vakti engar daprar minningar, — og rokkhjólið hélt áfram að snúast og snældan fylltist jafnt og þétt. Margrét gamla hafði nýlokið spunan- um fyrir Katrínu i Austurey, þegar falleg- um vagni var ekið í hlaðið. Katrín í Aust- urey steig fyrst út úr vagninum, en á hæla henni kom ríkulega klædd kona, sem Margrét kom ekki fyrir sig í fyrstu. Það var ekki fyrr en hún stóð í dyrunum og rétti Margréti höndina, að gamla konan bar kennsl á gestinn. Var hún farin að sjá sýnir um hábjart- an dag? Eða gat það hugsast, að það væri sjálf óðalsbóndafrúin í Engidal, sem stóð brosandi andspænis henni og fór mörgum lofsamlegum orðum um vinnu hennar, sem nú á hernámsárunum var orðin eftirsótt á ný? — Jú, það var ekki um að villast, — og nú opnaði ökumaðurinn dyrnar og kom inn með troðinn ullarpoka undir hendinni. Já, þær komu sem sé í þeim erinda- gerðum að biðja Margréti að spinna ull- arkorn fyrir frúna í Engidal. ,,Ég tók að mér að gerast milligöngumaður“, sagði Katrín í Austurey. Jú, það vildi Margrét gjarnan gera, bara ef frúnni lægi ekki mjög mikið á bandinu — hún mundi varla verða búin að spinna alla þessa ull fyrr en undir jól. Margrét gamla var óstyrk og skjálf- rödduð, en frúin brosti uppörvandi, klapp- aði henni á öxlina og sagði, að sér væri feykinóg að fá bandið um jól. Síðan fór hún að litast um í stofunni. — Nei, nei, frúin mátti alls ekki skoða dótið hennar gaumgæfilega. Það var allt löðrandi í ryki! Og ekki heldur myndirn- ar! — Þetta var ekki annað en gamalt skran allt saman! En frúin gekk samt að kommóðunni, þar sem myndimar hennar stóðu, — líka myndin af Lísu! Margrét gamla ætlaði að grípa í hand- legg frúarinnar og koma þannig í veg fyrir, að hún tæki myndina, en hún lét höndina síga á fiý. Frúin tók myndina upp og virti hana fyrir sér, en sagði ekki orð. Þetta gerðist allt í einni svipan og síð- an kvöddu konurnar og fóru. En frúin í Engidal sneri sér við í dyrunum og sagði: ,,Ég ætla að koma einhvern daginn og sjá, hvernig gengur!“------ Frúin í Engidal ætlaði að koma aftur. — Tilhugsunin ein setti að Margréti kvíða. Ef hún kæmi ein síns liðs, yrði erfitt að komast hjá því að minnast á Lísu, þó að þær hefðu leitt það hjá sér í þetta skipti, — og það svíður alltaf í gömlum sárum, þegar þau eru ýfð upp á nýjan leik. Frú- in hélt sér annars furðuvel. — Hún var ennþá jafnteinrétt og forðum, — og Pét- ur var líkur henni! Æ-já, hún mundi það eins og það hefði skeð í gær, þegar hann fylgdi Lísu heim, af því að hún hafði dott- ið af hjólinu. Það var í fyrsta skipti, sem hann kom, — en ekki það síðasta. Þau hjónin höfðu oft rætt um þetta sín á milli, og þau höfðu líka varað Lísu við — því að samdráttur þeirra Péturs vakti hálfgerðan ugg hjá þeim, þó að hann hlýj- aði þeim líka um hjartaræturnar, þrátt fyrir allt. Mestan hluta sumarsins fór þessu fram, en þá áræddi Pétur loks að fara með Lísu í heimsókn til foreldra sinna, — og þá dundi ógæfan yfir. Já, hún yrði seint svo gömul, að hún gleymdi, hvernig þeim leið, Kristni og henni, daginn, sem óðalsbóndinn og kona hans komu og álösuðu þeim með reiði- 12 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.