Húsfreyjan - 01.12.1954, Page 16
Aðalbjörg Siguröardóttir:
Barnið, sem ekki þroskaðist
Nýlega er komin út lítil, merkileg bók,
sem ég held að eigi erindi til allra for-
eldra. Hún er gefin út af Barnaverndar-
félagi Reykjavíkur, heitir: „Barnið, sem
ekki þroskaðist“, er eftir Pearl Buck, en
þýdd af séra Jóni Auðuns, dr. Matthíasi
Jónassyni og dr. Símoni J. Ágústs-
syni.
Ekki er þetta skáldsaga, þó skáld segi
frá, heldur sönn saga um barn skáldkon-
unnar, sem var vangefið og náði aldrei
eðlilegum andlegum þroska. Er þetta
raunasaga fjölda mæðra, sem líkt stend-
ur á fyrir, skrifuð með hjartablóði einnar
þeirra og hlýtur því að renna til hjarta
hverrar óspilltrar manneskju, sem bók-
ina les. Lögð er mikil áherzzla á, að sýna
fram á, að það bezta og kærleiksríkasta,
sem hægt er að gera fyrir börn, slíkt og
þetta, er að koma þeim á stofnun við
þeirra hæfi og í umhverfi, sem miðað er
við þroska þessara barna, sem aldrei geta
átt samleið með venjulega gefnum börn-
um.
Um árabil snerust hugsanir og starf
Pearl Buck að mestu um harmkvælabarn-
ið hennar og hvemig líf þess yrði gert
þolanlegt. Líklega hefur sú þjáning orðið
henni vígsla til þess að flytja mannkyn-
inu þann boðskap samúðar og skilnings,
sem skáldsögur hennar eru þrungnar af.
Mikill hluti tekna hennar hafa gengið til
þess að koma upp fyrirmyndarheimili fyr-
ir vangefin böm, þar sem fylgst er með
og teknar upp allar nýungar, sem létt
geta lífið eða veitt börnunum aukinn
þroska. Hin þunga raun Pearl Buck og
litlu stúlkunnar hennar hefur orðið og
verður til blessunar fyrir mörg önnur böm
og mæður, sem líkt stendur á fyrir.
En þessi litla bók á erindi til fleiri en
þeirra, sem eiga vangefin börn eða fávita.
Hún er lærdómsrík fyrir alla foreldra, sem
hættir við að gera meiri kröfur til bama
sinna en andlegur þroski þeirra leyfir,
og þeir foreldrar eru margir. Enginn faðir
eða móðir getur átt víst að eignast ein-
tóm gáfuð börn, og á heldur enga heimt-
ingu á því. Börnin eru sérstakar lífverur,
einstaklingar, sem eru eins frábrugðin
hvert öðru og þau eru mörg. Andlegt
þroskastig tveggja barna er aldrei ná-
kvæmlega hið sama og því aldrei hægt
að leggja á þau sama mælikvarða. En
hvert einasta barn hefur rétt til þess, að
því sé hjálpað til þroska, þar sem það er,
en ekki reynt að búa til úr því eitthvað,
sem foreldrarnir þrá að þau verði. Á þetta
við öll börn, ekki bara þau, sem van-
gefin eru talin. Bók Pearl Buck veitir
mikla innsýn í þær hörmungar barnssál-
arinnar, að finna til sín gerðar kröfur,
sem engin geta er til að uppfylla.
16 HÚSFREYJAN