Húsfreyjan - 01.10.1962, Page 12
Minnincjarorð
,,Sá <:g saiiililjóðan
i siigu l>inui.
Sk ii ru ngsskap u r
og skyldurcchni,
shaps og slillingar
styrks og bliðu,
vilja og varúðar
vits og dáöar."
M. J.
Jóninna Sigurðardóttir er fædd að Þúfu
í Fnjóskadal 11. apríl 1879, dóttir hjónanna
Helgu Sigurðardóttur frá Veisu og Sigurð-
ar Jónssonar, er lengst bjuggu á Draflastöð-
um og við þann bæ var fjölskyldan kennd.
Hjá þeim Draflastaða-hjónum var ekki
auður í garði, en góðir heimilishættir. Dugn-
aður og reglusemi var grundvöllur að giftu-
ríku uppeldi barnanna. A vetrum voru fengn-
ir heimiliskennarar, er kenndu bókleg fræði.
Hin fjölbreyttu störf við búskapinn voru
unnin og numin af foreldrum og börnum í
sameiningu. Undirstaðan hefur hlotið að vera
góð. Svo mikilhæf urðu þau Draflastaða-
systkini.
Jóninna minntist þess á gamalsaldri, er
hún sat yfir fé föður síns í Vaðlaheiði. Hún
tíndi aldrei kind úr hjásetunni. Skörp athygli
og samvizkusemi einkenndu verk hennar alla
tíð. Vökul augu litlu smalastúlkunnar sáu
vítt yfir. Hún sá dalinn sinn, er bezt skýldi
björkinni, er aðrir dalir eyddust skógi. Hún
sá heiðina og skóginn skifta litum vor og
haust, alla þá litadýrð, er Fnjóskadalur er svo
ríkur af. Ur hjásetunni sá hún fyrst yfir Eyja-
fjörð, er sól gilti Súlur og signdi hvert byggt
ból. Hún sá Oddeyrina, er teygir arm sinn svo
langt fram, og inni í fjörunni blasti kirkj-
an við og öll húsin með því óþekkta og
12
Húsfreyjan