Húsfreyjan - 01.10.1962, Blaðsíða 24

Húsfreyjan - 01.10.1962, Blaðsíða 24
Sýnd voru nokkur snotur „rya''-teppi og Barbara Arnason sýndi tvö ýfð teppi, gerð með Aladdínsnál á strigagrunn. Voru leik- andi kettir á öðru, sérlega skemmtilegt og lifandi munstur. (Sjá mynd). Handavinna sjúklinga á Kleppsspítala hlaut að vekja sérstaka athygli. Gólfábreið- ur, skrautmunir úr beini, útsaumur og tága- munir, allt var unnið af mikilli smekkvísi. Hlýtur leiðbeinandi sjúklinganna að vera fá- gætum hæfileikum gæddur að ná svo prýði- legum árangri í kennslunni. Frú Sigríður ræddi á eftir við frú Sigrúnu Stefánsdóttur, sem veitir forstöðu „Islenzk- um heimilisiðnaði", en svo nefnist söludeild Heimilisiðnaðarfélagsins. Frú Sigrún segir, er ég spyr hana um starfsgrundvöll Heimilisiðnaðarfélags Islands og söludeildar þess, að Heimilisiðnaðarfélag- ið sé arftaki sambands heimilisiðnaðarfélag- anna gömlu og hafi verið stofnað árið 1959. I Heimilisiðnaðarfélaginu geta verið félög, nefndir úr félögum og einstaklingar. Sölu- deildin, Islenzkur heimilisiðnaður, var stofn- uð fyrir tíu árum. Félagið kaupir góða, handþvegna ull, lætur spinna hana og vinna að öllu leyti og selur síðan flíkurnar. Vinna rösklega tvö hundruð manns að þessu fyrir félagið, víðsvegar um land. Leiðbeint er um munstur og Iag á flíkum og segir frú Sigrún, að reynt sé að færa gömul munstur í nýtízku búning. Félagið veitir verðlaun fyrir vel unnar vörur og hefur það orðið mikil hvatn- ing. Mestu erfiðleikarnir eru að fá ullina vel með farna frá byrjun. Það verður að hand- þvo hana, vanda ofanaftekt, kembingu og spuna, ef fullkominn árangur á að nást. Sölu- deildin merkir síðan þær vörur, sem hún tel- ur nægilega vel unnar, með merki, sem á stendur „íslenzkur heimilisiðnaður", og tek- ur það ýmist sjálf til sölu eða lætur verzlanir eins og búðir Ferðaskrifstofu ríkisins, fá þær. Þó að einkum hafi verið fjölyrt um ullar- vinnuna í sambandi við sýninguna, þá ein- kenndist hún samt af því hve fjölbreytilegir munir voru sýndir að þessu sinni, enda áttu yfir 100 aðilar muni á henni. Bárust þó miklu fleiri munir en rúm var fyrir á sýn- ingunni. Eg hef aðeins nefnt örfá nöfn, og nokkuð af handahófi, því úrtímis er að benda á einstaka gripi, fyrst sýningunni er lokið þegar þessar línur birtast. Oll sýningin var Heimilisiðnaðarfélagi Is- lands til sóma og sönnun þess, hve margir búa yfir þeim hagleik og listfengi, sem þarf til að vinna fagra muni úr jafn ólíkum efn- um og góðmálmum, ull og beinum. Sýning- una sóttu nær þrjú þúsund manns. 24 Húsfreyjan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.