Húsfreyjan - 01.10.1962, Blaðsíða 41

Húsfreyjan - 01.10.1962, Blaðsíða 41
stofunni" og þar hófst eins konar kvöldvaka, sem orlofskonur sáu um. Laufey Sigurðar- dóttir flutti ávarpsorð og Jórunn Olafsdótt- ir fór með bundið mál og óbundið. Síðast var lesinn sálmur, áður en horfið var til hvílu. Hinn fyrsti orlofsdagur að Löngumýri var liðinn. Hann hafði yljað hugum þeirra, er hans nutu og auðgað sjóð minninganna, Næstu dagar voru með líku sniði. Matur og kaffi var á reglubundnum tíma. Föst venja var að hafa hvíldartíma að loknum hádegisverði og fram um kaffi. En eftir kaffið var oftast farið út, andað að sér fersku lofti og gengið um, sér til ánægju og hress- ingar. A hverju kvöldi, áður en til hvílu var gengið, var helgistund, lesinn sálmur og stundum auk þess flutt bæn eða hugleiðing. A þessum stundum náði hver dagur mestri dýpt, og hygg ég, að enginn hefði viljað án þeirra vera. Annan orlofsdaginn, laugardaginn 23. júní bar að garði á Löngumýri þrjá góða gesti, frú Grethe Asgeirsson frá Hveragerði og frk. Sigurlaugu Eggertsdóttur og frk. Jónínu Bjarnadóttur húsmæðrakennara úr Reykja- vík. Að kvöldi þessa dags sýndu húsmæðra- kennararnir litskuggamyndir, prýðisfagrar, er veittu hina mestu ánægju. Þá flutti og ein af orlofskonunum, frú Elísabet Friðriksdóttir, ágætt erindi um hina merku konu, frk. Olaf- íu Jóhannsdóttur, sem hún hafði persónuleg kynni af. Að síðustu var lesinn sálmur Kol- beins skálds Tumasonar — „Heyr himna- smiSur" og forstöðukonan flutti hugleiðingu og bæn — auðuga að fegurð og trúarhita. A sunnudagskvöldið sáu húsmæðrakenn- ararnir, sem áður er getið og starfsstúlkur á Löngumýri að mestu um kvöldvökuna, sem var með léttum blæ. Sýndir voru smáleikir og fluttir stuttir leikþættir, enn fremur var komið í leiki, og lesið upp. — Auk þeirra gesta, sem þegar hafa verið nefndir, komu í heimsókn að Löngumýri þessa orlofsviku, konur úr Lýtingsstaða- og Akrahreppi í Skagafirði, sumar þeirra skemmtu með upp- lestri og allar yljuðu þær og glöddu með nærveru sinni. A mánudag 25. júní, en þá var unaðslegt veður, eins og það getur fegurst orðið á sumardegi — glaðasólskin og logn — fór or- lofsfólk og gestir í ferð um Skagafjörð og var forstöðukona Löngumýrar og starfslið hennar að sjálfsögðu með í förinni. Var ferð- ast sem fyrr í bíl frá Sleitustöðum. Farið var „heim að Hólum" og kirkjan skoðuð. Síðan var farið til Hofsóss og ekið á Höfða á Höfðaströnd. En þaðan er mjög fagurt um að lítast í jafn fögru veðri, þegar Skaga- fjörður skein við sólu og skartaði sínu dýr- asta skrúði. Þegar komið var aftur til baka — til Hofs- óss, tóku hjónin frú Pála Pálsdóttir og Þor- steinn Hjálmarsson á móti hópnum, og var síðdegiskaffis neytt í húsi þeirra. Frú Pála hafði fylgt okkur út að Höfða, og er við fór- um frá Hofsósi slóst hún í för með okkur fram að Löngumýri og var þar þangað til daginn eftir. A heimleiðinni var ekið til Sauðárkróks og skoðað hið nýja og glæsi- lega sjúkrahús staðarins. Síðan var ekið heim að Löngumýri í glampandi sólskini. Anægjulegri ferð, sem auðgað hafði að mörgum góðum minning- um var lokið. — Kostnaði við þetta ferða- lag, sem orlofskonur báru að mestu leyti sjálfar, var mjög stillt í hóf, en það hafði vakið almenna ánægju og varð þannig prýði á vikunni. Þegar kvöldverðar hafði verið neytt og hvílzt um stund eftir ferðalagið, var komið saman í „garðstofunni" og þar flutti frú Grethe Asgeirsson erindi um líf sitt — danskrar konu á Islandi, en hér hefur hún nú dvalizt um 40 ára skeið. Kvöldvökunni lauk með orgelspili og sálmasöng. Daginn eftir var líka mikið sungið og spilað. Hinn góði gestur staðarins, frú Pála Pálsdóttir, sat allan morguninn að kalla við HúsIr ey j an 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.