Húsfreyjan - 01.10.1962, Blaðsíða 43

Húsfreyjan - 01.10.1962, Blaðsíða 43
Kona lýkur meistaraprófi í íslenzkum fræðum frá Háskóla Islands Nýlega hefur kona lokið meistaraprófi í íslenzkum fræðum frá Háskóla Islands. Var það Arnheiður Sigurðardóttir frá Arnarvatni í Mývatnssveit, og er hún önnur konan sem þessu námi lýkur frá Háskólanum. Hin var Nanna Olafsdóttur. Arnheiður er dóttir hinna þekktu merkis- hjóna, Sigurðar Jónssonar skálds á Arnar- vatni og konu hans Hólmfríðar Pétursdóttur frá Gautlöndum, og mun ekki þurfa að kynna þá landsþekktu konu fyrir lesendum Húsfreyjunnar. Arnheiður ólst upp á heimili foreldra sinna við þann menningar- og fræði- mennskublæ, sem þar ríkti, og sótti ekki skóla utan sveitarinnar, þar til hún, tvítug, settist í annan bekk héraðsskólans að Laug- arvatni. Þaðan fór hún í Kennaraskóla Is- lands og settist þar einnig í annan bekk, og tók þaðan burtfararpróf árið 1944. Arnheið- ur kenndi síðan tvo vetur heima í Mývatns- sveitinni og einn vetur kenndi hún bókleg fræði við Húsmæðraskólann á Hallormsstað. En haustið 1947 fór hún til Danmerkur og stundaði næsta vetur nám við Kennaraháskól- ann í Kaupmannahöfn. Þegar heim kom, réð- ist hún sem kennari að Reykjaskóla í Hrúta- firði og kenndi aðallega íslenzku, sem alltaf mun hafa verið uppáhaldsnámsgrein henn- ar. Arnheiður var mjög vel látinn kennari, en menntaþráin sótti á, hún vildi ekki láta hér staðar numið, og haustið 1952 flutti hún til Reykjavíkur og hóf að búa sig undir stúd- entspróf, en vann þó jafnframt fyrir sér með kennslu- og skrifstofustörfum. Stúdentspróf tók hún vorið 1954, en innritaðist sama haust í norrænudeild háskólans og þaðan tók hún svo, í haust 6. okt., meistarapróf í íslenzkum fræðum, og stóðst prófið með góðri viðurkenningu. Sem síðasta hluta prófsins flutti Arnheið- ur opinberan fyrirlestur í háskólanum, um verkefni, sem henni hafði verið úthlutað, en það var: „Benedikt Gröndal og störf hans í þágu íslenzkra fræða”. — Húsfyllir var og er- indinu mjög vel tekið. Húsfreyjan óskar hinni ungu menntakonu allra heilla, og efast ekki um, að fræðistörf hennar muni verða íslenzkum konum til uppörvunar og aukinnar þekkingar. A. S. EFNI bls. Barn er oss fœtt (sr. Haraldur Níelsson)---------- 3 Þáttur heimilis og uppeldis (Jensína Halldórsd.)— 5 Minning (SigríÖur Fanney Jónsdóttir) _______________ 8 Okkar á milli sagt (Rannveig Þorsteinsdóttir) — 10 MinningarorÖ (Laufey Sigurðardóttir) -------------- 12 Tvennir tímar (saga eftir Ragnheiði Jónsdóttur) 15 Sólskinsdagar (Quöný Stefánsdóttir) _______________ 18 Málshœttir og spakmæli (Vigdís Finnbogadóttir_____19 Manneldisþáttur (Kristjana Steingrímsdóttir)______21 Heimilisþáttur Sigr. Thorlacius og Sigr. Kristj.d. 23 Sjónabók (Elsa E. Guðjónsson) _____________________ 27 Matreiðslubók konferenzráðsins (Sigr. Haraldsd.) 38 Orlofsvika húsmæðra að Löngumýri (Jór. Ólafsd.) 40 Kona lýkur meistaraprófi (A. S.) __________________ 43 Gleðileg jól! Gott og farsœlt nýtt ár! Bifreiðastöðin Bcejarleiðir Gleðileg jól! Farscelt komandi ár! Lýsi hf. Gleðileg jól! Gott og farsœlt nýtt ár! Alaska Gleðileg jól! Farsœlt komandi ár! Dagblaðið Vísir Gleðileg jól! Gott og farsœlt nýtt ár! Afgreiðsla smjörlíkisgerðanna hf. Húsfreyjan 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.