Húsfreyjan - 01.10.1962, Page 14

Húsfreyjan - 01.10.1962, Page 14
t M I N N I N G Framhald af bls. 9 Frk. Helga fór margar utanlandsferðir sér til hvíldar og hressingar, en alltaf notaði hún tækifærið til að kynna sér það, sem efst var á baugi í húsmæðramálum, t. d. hafði hún að undanförnu lagt sig mjög fram um að fylgjast með fyrirkomulagi því, sem haft er um starfsemi heimilisráðunauta á Norð- urlöndum, og eitt af hennar síðustu störf- um í þarfir félagsmála var að vinna í nefnd, sem kosin var af Kvenfélagasambandi ís- lands til að undirbúa samstarf K. I. og Bún- aðarfélagi Islands með landbúnaðar- og heimilisráðunautum, en því miður hafa ýmsar tafir orðið í því máli. Frk. Helga var aufúsugestur til húsmæðra út um land, alltaf fræðandi og fús til að leiðbeina. Minnist ég einkum, er hún fyrir nokkrum árum sat aðalfund Sambands aust- firzkra kvenna og flutti þar erindi um mann- eldisfræði og ýmislegt fleira, hvað fulltrúar voru ánægðar að hafa haft tækifæri til að kynnast henni og vera samvistum við hana þá daga, sem fundurinn stóð. Helga Sigurðardóttir bar gæfu til að fast- móta starf og stefnu Húsmæðrakennaraskóla íslands og einnig að útbúa hið fagra og smekklega skólaheimili að Háuhlíð 9, þar sem stofnunin hefur nú fengið varanlegan samastað. Það var ánægjulegt að koma þang- að í heimsókn meðan frk. Helga réði þar ríkjum. Tók hún á móti gestum skólans sem drottning í hirðmeyjahópi, og skorti hvorki á glæsileik né háttvísi. Helga Sigurðardóttir skólastjóri er að vísu frá oss horfin, en „merkið stendur þó mað- urinn falli", og andi hennar mun vissulega ríkja meðal vor svo lengi, sem íslenzkar hús- freyjur senda dætur sínar á húsmæðraskól- ana til þess að búa þær þannig sérstaklega undir það fjölþætta starf sem konunum er af guðs náð ætlað. Drottinn blessi minningu þessarar merkis- konu. Sigr. Fanney Jónsdóttir. t I henni í lífinu. Dótturdóttir þeirra var og fóstruð upp hjá henni. Lengst var með henni Herdís Sigurjóns- dóttir, nær hálfan fimmta tug ára. Vinátta og samstarf þessarra kvenna er merkilegt og lýsir tryggð beggja og . mannkostum. Hlutur Herdísar Sigurjónsdóttur er stór. Hún var Jóninnu svo óendanlega mikið allt til hinztu stundar. Frk. Jóninna Sigurðardóttir var fríð kona, fagureygð, fyrirmannleg, kurteis og hóg- vær. Hún var gæfukona um margt, hlaut virðingu og þökk samferðamannanna, sá mörg áhugamál sín verða að veruleika, og naut ástúðar fósturdætra, frændfólks og vina, og órofa tryggðar þeirra, er lengst voru með henni. Hún andaðist á heimili sínu, Oddagötu 13 hér í bæ, 19. sept. síðastliðinn. I upphafi þessa máls var tilfært ljóð eftir Matthías Jocumsson. Það, sem þar stendur, átti við um Jóninnu Sigurðardóttur, lífssaga hennar er fögur, og hún var göfug kona. Laufey Sigarðardóttir, frá Torfufelli. 14 Húsfreyjati

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.