Húsfreyjan - 01.10.1962, Síða 26

Húsfreyjan - 01.10.1962, Síða 26
Nýr sníðaskóli I haust tók til starfa sníðaskóli á vegum Verzlunarinnar Pfaff í Reykjavík. Er þar kennt samkvæmt Pfaff-sníðakerfi, sem mjög mun hafa rutt sér til rúms í Þýzkalandi und- anfarin rvö ár og sagt er vera einfalt, en þó öruggt í notkun. Er hvert námskeið 24 kennslustundir og kennslan miðuð við að gera nemandann færan um að sníða algeng- an fatnað í eigin þarfir og fjölskyldu sinnar. Fær hann til eignar grunnsnið í öllum stærð- um til þess að vinna eftir og auk þess kennslu- bók með myndum og skýringum. Fyrirhug- að er að hafa viðbótarnámskeið (um 12 st.) fyrir þá, sem vilja læra að sníða vandasam- ari fatnað. Þess má geta að Pfaff gefur nú út sérstök tízkublöð, og auk þess birta Burda-blöðin að staðaldri Pfaff-fyrirmyndir og snið. Kennari við sníðaskólann er Herdís Jónsdóttir, handavinnukennari, en hún stund- aði nám hjá Pfaff-verksmiðjunum í Þýzka- landi síðastliðið sumar. Jólaannir Ætlið ykkur góðan tíma til jólaundirbún- ingsins í ár, forðizt of mikið annríki og of- þreytu. Hugsið um í tæka tíð, hvað þarf að gera fyrir jól, hvað þarf að sauma af fatn- aði, hvað á að kaupa tii heimilisins, hve mikla hreingerningu þarf að gera í skamm- deginu o. s. frv. Skipuleggið störfin og skrif- ið niður á minnisblað jafnóðum, hengið upp á vegg, þar sem þið hafið það fyrir aug- um daglega. Til hagræðis koma hér nokkur góð ráð til athugunar: 1. Ljúkið af öllum saumaskap svo sem hægt er fyrir 1. desember. 2. Skrifið jólakortin snemma í des. og hugsið fyrir póstsendingum. 3. Hugsið fyrir jólagjöfum sem fyrst og búið um þær. 4. Takið til í fataskápum, athugið föt, sem þurfa viðgerðar, farið með fatnað í hreinsun og skó til skósmiðs í tæka tíð. 5. Þvoið glugga, gluggatjöld, dúka og þess háttar. 6. Takið til í geymslum og búri og gerið hreina eldhússkápa eftir þörfum. Þessu öllu ætti að vera lokið viku eða 10 daga af desember. 7. Bakið smákökur, laufabrauð og annað sem geymist vel. 8. Þvoið jólaþvottinn, gerið við og gang- ið frá honum. 9. Gerið jólahreingerningu á stofum og svöfnherbergjum, hreinsið og bónið húsgögn eftir því sem við á. 10. Gerið hreint eldhús, baðherbergi og ganga, eftir því sem þörf krefur. 11. Bakið tertur og mótkökur og búið vel um þær, sem lengst á að geyma, í köss- um eða málmpappír. 12. Undirbúið jólamatinn að svo miklu leyti sem unnt er. Reynið að Ijúka þessu öllu sem mest fyrir Þorláksdag, svo að góð- ur tími verði til að koma fyrir jólatrénu og jólaskrautinu, og hátíðasvipur og helgiró færist yfir heimilið. 26 Hú sf r ey j an

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.