Vera - 01.10.1982, Page 13
skapandi að ala upp börn44
— Pað er nú svo dæmigert fyrir
mörg húsverk. Maður vaskar upp
og eftir smá stund er vaskurinn aft-
ur orðinn jafn fullur. Petta eru sí-
felldar endurtekningar á sömu
verkunum. Endu sjást húsverkin
ekki nema í þeim tilvikum sem þau
eru ekki unnin.
Elinóra: „Já, ég er oft aö spekúl-
era í aö þetta sé hálf vonlaust.
Maður er ekki fyrr búin aö þrífa í
kringum sig en allt er orðið jafn
óhreint aftur. En,“ segir Elinóra og
það léttir heilmikið yfir henni, ,,þá
fer ég að liugsa um að nú sé t'jöl-
skyldan orðin nærð og hlaðin orku
og tilbúin að hefja sín störf og þá sé
ég að þetta hefur tilgang. Manni
líður betur eftir á.”
Jónína: „Svo kemur þaö etv. fyr-
ir einu sinni eöa tvisvar á ári að
maður slær öllu upp í kæruleysi og
hugsar ineð sér að maður nenni
þessu ekki. Utilokar sig frá öllu
sem maður þarf að gera, því maður
hefur hvorki krafta né geö í sér til
að gera hlutina. begar heimilisfólk-
ið kemur svo heim er sagt við
mann: Hvað ertu að gera allan
daginn! Þaö er þetta sem bítur
mann."
Elinóra: „Maöur þarfnast viður-
kenningar á öllu því sent maður
gerir. Sama hvaða starf maður
vinnur."
Jónína: „Já, en þaö er aldrei tal-
aö um það við húsmæður um hvað
þær séu myndarlegar. Það þykir
svo sjálfsagt aö allt sé tipp topp."
„Fáum ekki viðurkenningu
fyrr en í miiiiiiiigar-
greinunum.“
Elinóra: „Það aö vera heima-
vinnandi húsmóðir er mjög illa
metið at’ þjóðfélaginu vegna þess
að viö fáum ekki borgað lyrir þá
vinnu í beinhörðum peningum.
Fæðingarorlofiö sem húsmæöur fá
er gott dæmi unt þetta. Þaö er
reiknað út eltir því hve margar
dagvinnustundir konan hefur unn-
ið. Þar lenda húsmæður í lægsta
flokki, eða með þeirn sem unnið
hafa 516 stundir eöa færri sl. 12
mánuði."
Hanna: „Vinnan innan heimilis-
ins er ekki metin sent vinna. Það
telst ekkert til vinnu nema það sent
er verðmætaskapandi. Og þjóöfé-
lagið telur það ekki verðmætaskap-
andi að ala upp og hlúa að börnum.
Skrítið?!"
Jónína: „Vitið þið hvenær viö
fáum viðurkenningu á húsmóður-
störfunum? Það er í minningar-
greinunum. Þetta er alveg satt...
það er ekki fyrr! Því miður!"
„Þá kemur það fyrst í ljós
hvernig manneskjan sjálf er.“
Jónína: „Konur hugsa oft allt of
lítið um sjálfar sig. Það er td. rnjög
algengt að þær hafi ekki samvisku
til að fá sér föt. því þær eru alltaf að
klæða börnin sín upp og saunta á
þau. Svo þegar þessar konur eru
búnar að koma börnunum upp og
geta farið að hugsa unr sjálfar sig
án þess að vera stöðugt að pæla í
börnunum, þá breytast þær of-
boðslega, og njóta þess virkilega að
vera til. Þegar þær eru komnar
undan þessu oki og þessari miklu
samvisku gagnvart börnunum og
heimilinu, þá kemur það fyrst í ljós
hvernig manneskjan sjálf er."
Elinóra: „Viö leggjum svo mik-
inn metnað í að hafa krakkana
huggulega og fína, því við sem
mæður erum dæmdar eftir því
hvernig börnin okkar líta út."
— Konur eru ekki bara dœmdar
eftir því hvernig börnin líta út, held-
ur einnig eftir því hvernig heimilið
er. Sjáiist ryk eða skítur á heimilinu
þá er það álitið konunni að kenna
og hún er dæmd sóði!
Hanna: „Við erum líka dæmdar
eftir því hvcrnig eiginmennirnir líta
út. Ef maðurinn minn fer t. d. í
óstraujaða skyrtu, þá stendur mér
ekki á sama því ég veit að ég verö
dæmd fyrir það."
„En enginn veltir því fyrir sér
hvers vegna hann skuli geta hugsað
sér að ganga í slíkri skyrtu,“ segir
Elinóra, og allar erum við alveg
hissa á að konur skuli láta bjóða sér
þetta.
Vinna 12—24 tíma á sólar-
hring, alla daga vikunnar
árið um kring.
— Meðalvinnutími bresku hús-
mœðranna reyndist vera 77 klst. á
viku. Pá var ekki með talinn matar
og kaffitími og sá tími er börnin
sofa, þó svo húsmóðirin sé vissu-
lega bundin yfir þeitn þann tíma.
Ekki var heldur talinn með sá tími
sem hún fer með börnin í heim-
sóknir. Aðrar kannanir leiða svipað
í Ijós. Petta er nánast tvöfalt lengri
tími en lögbundin vinnutími er.
Vinna íslenskar húsmœður svona
langan vinnudag?
Jónína: „Þegar börnin cru lítil þá
er vinnutíminn 24 stundir á sólar-
hring."
Elinóra: „Eg nrundi segja aö í
13 £