Vera - 01.10.1982, Blaðsíða 16
.. að lögum um byggingu leigu-
húsnæðis á félagslegum grund-
velli verði breytt
Ekkert er vitaö um hve margir eru í húsnæöishraki nú.
Aöeins liggja fyrir tölur frá húsnæðisdeild Félagsmálastofn-
unar Reykjavíkur, en þar eru 800 manns á biðlista. Hjá
Leigjendasamtökunum eru 130 manns á skrá.
Fulltrúar Kvennaframboðs hafa nú flutt tvær tillögur sem
snerta þetta mál. Viö lítum á þær sent tilraun til aö taka
raunhæft á þessum vanda og viðurkenningu borgaryfirvalda
á ábyrgö sinni í málinu, nái þær fram að ganga.
Fyrri tillagan felur í sér að borgin hafi frumkvæöi aö því
aö hefja viðræður viö Leigjendasamtökin og Flúseigendafé-
lagiö um að þessir þrír aöilar komi á fót húsaleigumiöstöð,
sem annist skráningu þeirra sem eru í leit aö húsnæði og hal'i
milligöngu um útvegun leiguhúsnæöis. Þessi tillaga er nú til
umsagnar hjá félagsmálaráði og húsaleigunefnd. Vonandi
veröur hún ekki svæfö í þessum nefndum.
Síöari tillagan gerir ráö fyrir aö borgarráð beiti sér fyrir
endurskoöun á þeim þætti laganna um Húsnæðisstofnun
ríkisins, sem fjallar um byggingu lciguhúsnæöis á félagsleg-
um grundvelli. Núgildandi lagaákvæöi eru þannig aö Hús-
næöismálastjórnarlán til bygginga leiguhúsnæðis eru afar
óhagstæð og nánast útiloka byggingu slíks húsnæðis.
Þessi tillaga liggur nú fyrir í borgarráði og má segja aö
útgjaldalítiö sé fyrir ráðiö að santþykkja hana. Samþykkt
hennar er þó fyrsta skrefið í þá átt aö borgin viðurkenni
ábyrgö sína í þessu máli. Því ber aö fagna nái hún fram aö
ganga og fylgja fast eftir aö ekki veröi látið sitja við orðin
tóm.
Gudrím Jónsdóttir.
Ljósm. Um
BYGGJUM í VATNSMÝRINNI
Kvennaframboðið tekur af-
stöðu gegn ónauðsynlegri
þenslu borgarinnar til austurs
Æskilegt er að færa fólk nær
starfstækifærum
& 16
Á fundi borgarstjórnar þann 1. júlí s. I. lagði Kvenna-
framboðið fram tillögu um þaö, að Borgarskipulagi Reykja-
víkur og skipulagsnefnd yröi falið aö kanna möguleikana á
því aö flytja Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýrinni. í tillög-
unni var jafnframt ráö fyrir því gert að Borgarskipulagið
gerði samanburð á kostum og göllum viö blandaða íbúöa-
byggð í Vatnsmýrinni annars vegar og norðan Grafarvogs
hins vegar. Þessari tillögu var vísað til skipulagsnefndar til
nánari umfjöllunar og er hún þar nú þegar þetta er skrifað.
Ástæöan fyrir því aö borgarfulltrúar Kvennaframboðsins
báru fram þessa tillögu er sú, aö í stefnuskrá sinni tekur
Kvennaframboöið afstööu gegn ónauðsynlegri þenslu borg-
arinnar til austurs, meðan innan hennar eru stór svæöi sem
æskilegt væri aö leggja undir íbúöabyggö. í greinargerð sem
fylgdi tillögunni segirm. a.: „Áframhaldandi útþensla borg-
arinnar til austurs hefur í för meö sér aukið misræmi milli
starfstækifæra annars vegar og búsetu hins vegar, sem leiðir
af sér stöðugan umferöarstraum frá einum enda borgarinn-
ar til annars. Reynsla undanfarinna áratuga hefur líka sýnt
aö uppbygging atvinnufyrirtækja og þjónustu í úthvcrfum
borgarinnar hefur ætíö rekiö lestina og er engin trygging
fyrir því nú, að hið sama endurtaki sig ekki á fyrirhuguðu
byggingarlandi borgarinnar á austursvæöum. Á svæöinu
vestan Kringlumýrarbrautar eru hins vegar í dag u. þ. b.
12.300 starfstækifæri umfram íbúa og meö byggingu íbúö-
arhúsnæðis á flugvallarsvæðinu er því veriö aö færa fólkið
nær öllum þeim starfstækifærum sem eru í næsta nágrenni."
I greinargerðinni er jafnframt á þaö bent að meðalaldur í
borginni fari hækkandi sem hljóti aö valda því aö þörfin
fyrir húsnæöi í borginni breytist og þar meö húsnæðismark-
aöurinn. í framhaldi af því segir: „Þaö sem verður fyrst og
fremst aö taka mið af er, aö fólk hafi ntöguleika á aö velja
scr húsnæði eftir fjölskyldustærð á hverjum tíma, án þess að
þaö þurfi að rífa sig upp með rótum úr því umhverfi sem
orðinn er hluti af lífi þess. Bygging íbúöarhúsnæöis á flug-
vallarsvæðinu gerir mögulegt að auka fjölbreytni húsnæðis
innan gróins umhverfis, hún gæti gcrt gömlu fólki kleift að
flytja í hentugri íbúðir innan síns hverfis og þar meö myndi
hún opna möguleikana á tilflutningi nýrra kynslóða inn í
gróin hverfi. Allt stuðlar þetta að jafnvægi í samsetningu
hverfanna."
í greinargerðinni er höfuðáhersian lögð á kosti þess að