Vera - 01.10.1982, Side 36
Viö viljum frið
Við viljum 3Ö framleiðsla kjarnorkuvopna verði stöðvuð
og bann verði lagt á framieiðslu efnavopna og sýklahernað.
Við//viljum\að öil kjarnorkuvopn verði eyðiiögð.
/ Við viljum afvopnun.
Við viijuni^ að konur béiti samtakamætti sínum til að vinna að friði
stuðii að samstárfi allra þeirra hópa og einstaklinga
sem vilja taka upp baráttu fyrir friði og afvopnun.
Öll erum við ábyrg fyrir því
hvort þjóðfélagið sem við tökum þátt í að móta
stefnir að stríði eða friði.
\
Við lýsum eindregnum stuðningi
við ályktun Prestastefnu íslands
1982 um friðarmál og hvetjum
iandsmenn til að taka þátt í þeim
aðgerðum sem þar eru boðaðar.
Við tökum undir þau sjónarmið
evrópskra og bandarískra friðar-
hreyfinga að þjóðir heimsins marki
sér stefnu óháð hagsmunum risa-
veldanna. Við óskum samstarfs við
alla sem vilja vinna að friði og
tryggja að mannréttindi séu í heiðri
höfð.
Gífurlegum fjármunum er varið til
vígbúnaðar meðan stór hluti
mannkyns sveltur. Bilið milli ríkra
og fátækra þjóða eykst stöðugt.
Vígbúnaðarkapphlaupið magnast
þó að þau vopn sem þegar eru til
nægi margfaldlega til að útrýma
mannkyninu. Þúsundir vísinda-
manna nota hugvit sitt og krafta til
að fullkomna vopn sem geta eytt
öllu lífi á þessari jörð.
Þetta er mesta ógnun sem mann-
kynið hefur nokkru sinni staðið
andspænis og hún er verk okkar
mannanna sjálfra. Við verðum því
sjálf að snúa þessari þróun við.
Við verðum að taka höndum sam-
an, konur sem karlar, og vinna
markvisst að því að ókomnar kyn-
slóðir fái að byggja þessa jörð.
Okkur er Ijós sá styrkur sem felst í
samtökum kvenna og því skorum
við á allar konur á íslandi að þær
hugleiði þessi mál og taki þau til
umræðu og umfjöllunar hvar sem
því verður við komið.
Sigríður Thorlacius
Unnur S. Ágústsdóttir
María Pctursdóttir
Elín Pálmadóttir
Esthcr Guðmundsdóttir
Guörún Gísladóttir
Guölaug Pctursdóttir
Margrct Sigrún Björnsdóttir
Hclga Jóhannsdóttir
Margrct Einarsdóttir
Kristín Ástgcirsdóttir
Valborg Bcntsdóttir
Gcröur Steinþórsdóttir
Guöríöur Porstcinsdóttir
Björg Einarsdóttir
Bcssí Jóhannsdóttir
Kristín Guömundsdóttir
Auöur Eir Vilhjálmsdóttir
Hrcfna Arnalds
Ólöf P. Hraunfjörö
María Jóhanna Lárusdóttir
Ragna Bcrgmann
Hclga Kristín Möllcr
Sigrún Sturludóttir
Álfhciöur Ingadóttir
Svanlaug A. Árnadóttir
í sumar og haust hcfur hópur kvenna á höfðuborgarsvæðinu komið saman
í allmörg skipti og rætt samstarf íslenskra kvenna að friðar- og afvopnun-
armálum. í hópnum eru konur sem starfa í Bandalagi kvenna í Reykjavík,
Kvenfélagasambandi íslands, Kvennaframboðinu, Kvenréttindafélagi ís-
lands, Menningar- og friðarsamtökum íslenskra kvenna, Prestafélagi ís-
lands, samvinnuhreyfingunni. skátahreyfingunni, stjórnmálaflokkunum
fjórum og verkalýðshreyfingunni. Konurnar hafa þó tekið þátt í starfinu
sem einstaklingar en ekki fulltrúar félaga eða flokka.
Hópurinn hefur komið sér saman um ávarp sem hér fylgir og er undir-
ritað af 27 konum. Hefur það verið sent stjórnum kvenfélaga og kvenna-
samtaka um land allt ásamt bréfi þar scm leitað er liðsinnis félaganna við
starf á þeim grundvelli sem í ávarpinu felst. Óskað er cftir því að félögin
haldi fund um friðunarmál og ræði hvernig konur geti beitt samtakamætti
sínum til að vinna að þessu brýnasta hagsmunamáli mannkynsins. Verði
undirtektir góðar er áformað að boða til ráðstefnu á fyrri hluta næsta árs
með fulltrúum sem flestra félagasamtaka og einstaklinga. Þar yrði tekin
ákvörðun um stofnun friðarhreyfingar íslenskra kvenna og þau verkefni
sem slík hreyfing skuli vinna að.
Utanáskrift hópsins er: Friðarhópur kvenna, Hallveigarstöðum við
Túngötu, Reykjavík. Einnig er hægt að hafa samband við konurnar sent
undirrita frumvarpið.
Fréttatilkynning
frá Friðarhópi kvenna