Vera - 01.02.1985, Blaðsíða 20
*má
Styrkir til
kvennarannsókna
Borgarstjórn samþykkir að veita kr. 4.000.000 til
stofnunar sjóðs í tilefni 200 ára afmælis borgarinnar.
Tilgangur sjóðsins er að veita tíu konum starfs-
styrki til listsköpunar og/eða rannsókna sem varpi
Ijósi á líf og starf kvenna í Reykjavík í 200 ár. Starfs-
styrkirnir eru ársstyrkir og miðast við laun f Ifl. 113
skv. samningi BHM.
Sérstök stjórn kosin af borgarstjórn skal hafa með
höndum stjórn sjóðsins og úthlutun úr honum, en
starfsstyrkirnir skulu auglýstir opinberlega til um-
sóknar. Stjórn sjóðsins skal setja honum nánari
starfs og úthlutunarreglur.
Greinargerð með tillögunni er svohljóðandi: Líf og
starf kvenna í aldanna rás er efni sem hlotið hefur til-
tölulega litla umfjöllun. Hin opinbera menningararfleifð
er fyrst og fremst verk karla um karla. Hlutur kvenna er
þar stórlega fyrir borð borinn.
Tillagan miðar að því að bæta nokkuð úr þessu og
draga fram í dagsljósið ýmsilegt sem varpi Ijósi á hlut
kvenna í þróun og uppbyggingu Reykjavíkur í 200 ár.
Flutningsmenn tillögunnar telja vel við hæfi að borgin
minnist loka kvennaáratugarins og tveggja alda afmæl-
is síns með þessum hætti.
Þegar þetta er skrifað er ætlunin aö freista þess að ná
samstöðu allra kvenna í borgarstjórn um að flytja þessa
tillögu. Þegar þið fáið blaðið í hendurnar hefur tíminn
leitt í Ijós hvernig til tókst.
Hver á að borga brúsann?
Allar þær tillögur sem hér hafa verið tíundaðar
kosta mikla fjármuni. í heiid nema hækkunartillögur
Kvennaframboðsins rösklega 110 milljónum. Með
breytingum og niðurskurði á öðrum liðum fjárhags-
áætlunar hefur okkur tekist að fjármagna þessar til-
lögur.
Gatnagerðin hefur löngum reynst okkur drjúg matar-
hola og í ár sækjum við um 87 milljónir til hennar. Eru
rök okkar þau að gatnagerðin hafi haft óeðlilegan for-
gang á undanförnum árum og nú verði einfaldlega að
fresta þeim framkvæmdum sem ekki eru bráðnauðsyn-
legar s.s. breikkun Sætúns, brú á Bústaöaveg, sem við
erum reyndar mjög efins í að eigi rétt á sér, o.fl. Þá ger-
um við ráð fyrir að aksturskostnaður borgarinnar lækki
um 5 milljónir en hann hefur hækkað óeðlilega mikið á
undanförnum tveimur árum. Frá því í jan. ’83 hefur
hann hækkað um 147.2% á sama tíma og bensín hefur
hækkað um 97.1%. Þarna hefur því verið um beina
aukningu að ræða.
3 milljónir ætlum við að sækja á risnureikning borgar-
sjóðs en sá reikningur hefur tilhneigingu til að þenjast
út. Þá gerum við ráð fyrir að sækja um 2 millj. í vasa
borgarfulltrúa og borgarráðsmanna. Þær milljónir
verða teknar með því aö þessir aðilar afsali sér þeirri
launahækkun sem kjaradómur skammtaði þeim en taki
hækkun í samræmi við nýgerða kjarasamninga launa-
fólks. Jafnframt gerum við ráð fyrir að borgarfulltrúar og
borgarráðsmenn greiði sjálfir fyrir þann mat sem þeir
borða þegar þeir eru að störfum en ekki borgarsjóður.
Þá gerum við ráð fyrir að skrifstofukostnaður á borgar-
skrifstofum í Austurstræti og Skúlatúni verði skorinn
niður um 6 millj. enda teljum við ástæðulaust að hann
hækki meira en kostnaður hjá öðrum stofnunum borg-
arinnar. Og svona mætti lengi telja. Með því aö fara
nákvæmlega ofan í einstaka liði fjárhagsáætlunar hefur
okkur tekist að ná í það fjármagn sem við þurfum og við
náum endum saman. Er það að sjálfsögðu skoðun okk-
ar að með þessu móti hafi okkur tekist að leggja fram
tillögu að fjárhagsáætlun sem taki félagslegar þarfir
fólks framyfir einkabílisma og malbik.
Okkar tillögur framhald:
það sé samdóma álit þeirra starfsmanna borgarinnar
sem vinna að unglingamálum að heimilislausum ungl-
ingum fari sí fjölgandi. Er t.d. vitað að 35—40 unglingar
á aldrinum 12—19 ára voru heimilislausir á tímabilinu
sept.-nóv. '84. Er neyðarathvarfinu ætlað að vera
skammtímaþjónusta við þessa unglinga og í rauninni
frumaðstoð við lausn á vanda þeirra.
Bókasafniö Gerðubergi
Borgarstjórn samþykkir að verja kr. 5.500.000 um-
fram áætlað fé í frumvarpi til fjárhagsáætlunar 1985
til bókakaupa fyrir bókasafnið í Gerðubergi.
í frumvarpi að fjárhagsáætlun 1985 er gert ráð fyrir að
verja 9.5 milljónum í bókakaup fyrir safniö. Er þessi fjár-
veiting of naum til að hægt sé að tryggja að safnið eigi
lágmarksbókakost þegar það opnar í ársbyrjun 1986.
Gerir tillagan ráð fyrir að hægt sé að uppfylla staðla og
bókaeign safnsins veröi 40 þúsund bindi þegar það
opnar.
20
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifaði borgarmálasíðurnar