Vera - 01.07.1986, Síða 3
Pabbi minn kann ekki að stoppa í sokka. . .
Myndir geta líka verið lesendabréf. Vera fékk þessa mynd senda, án frekari útskýringa
svo við getum því miður ekki greint frá Ijósmyndaranum.
Lélegt málfar
Sælar allar!
Þakka mjög gott blað. Mér finnst fjöl-
breytnin einn höfuðkostur Veru en þaö
sem er gallinn er afar lélegt málfar í mörg-
um greinum sem birtast. Ég ætla ekki aö
nefna nein nöfn enda lítur helst út fyrir aö
þiö séuö flestar dálítið tæpar gagnvart
slettunum. Viö megum nú ekki láta þaö
fréttast um okkur að þær þjóöir sem stefna
lífi okkar og limum í hættu ræni okkur tung-
unni án þess einu sinni aö vita af því. Viö
megum heldurekki verajafn „ómerkileg-
ar“ og annar ráöherrann og íslenskuunn-
andinn sem sagöi í sjónvarpinu fyrir fram-
an ,,sýnishorn“ af íslenskri æsku ,,ég hef
svo óskaplegt pensúm aö stúdera".
Hvaö um það: Þið megið ekki halda aö
ég sé aö gagnrýna hverja einustu grein.
Ein sletta er einni slettu of mikiö. . .
Jæja, þá er komiö aö leiðinlegri hluta
þessa bréfs. . . Þannig er mál meö vexti
* (eins og þiö vitið) aö þó könnunin um-
rædda um fátækt hafi miöaö viö 22 þús. þá
ar 25 þús. engin ósköp. Þar sem nú er hart
í ári hjá mér neyðist ég til að afþakka blað-
ið um stundarsakir, vonandi ekki lengi.
Ég óska Veru alls hins besta og vonast
til aö geta keypt hana fljótlega aftur, en
þaö verður víst að gera fleira en gott þykir
eins og launþegar þessa lands vita.
Wlargrét Guömundsdóttir
P.s. Kannski læt ég nú sjá mig á Hótel Vík
— þaö kostar ekkert.
Kæra Margrét!
Þakka þér fyrir bréfið. Það er bæði hollt
°9 gott fyrir okkur að fá gagnrýni bæði á
Það sem þykir vel gert og eins hitt sem mið-
ur fer.
Nú er það svo að greinar sem birtast í
Varu koma víðs vegar að og ráðum við því
ekkialltaf málfarinu. Ensjáifsagtgætum við
1 prófarkalestri verið duglegri að hreinsa
burt slettur og munum við reyna það fram-
Vegis.
Það er leitt að þú skulir þurfa að segja
b UPP blaðinu en vonandi verður það ekki um
íangan tíma. Láttu endilega sjá þig á Vík-
'nni, hér er alltaf opið á milii kl. 14—18 að
Að fá sér pappakassa.. . •
Kæra Vera!
Ég sendi þér Ijóö sem ég samdi. Kveikj-
an aö þessum Ijóðum er 4 mánaða sonur
minn. Ég hætti að vinna til aö geta eytt
fyrstu mánuðunum í lífi hans með honum
enda stend ég I þeirri trú að miklu máll
skipti að gefa sér nægan tima meö barn-
inu sínu fyrstu mánuðina. Þjóðfélagið í
dag gerir það svo sannarlega ekki létt. 3
mánuðir eru fljótir aö líða en fjárhagslega
er manni ekki gert kleift að vera lengur
heima hjá barninu sínu, nema aö þú notir
sama ráð og ég: Fá sér bara stóran pappa-
kassa og henda öllum reikningum óopn-
uðum í hann og biðja og vona aö krafta-
verk gerist.
Ég vil nota tækifærið og þakka gott efni
í blaðinu.
Kær kveöja Fjóla
Ein heima allan daginn
meö börnin.
Hvað ertu aö gera?
Lesa blöðin?
Útivinnandi aldrei heima.
Hefur þú tíma
til að hugsa um börnin?
Hvort er betra að kallast löt
eöa léleg móöir?
Já, þaö er erfitt að vera kona
hvað þá móðir.
Vera á ferð og flugi
Sælar stelpur!
Ég er gamall áskrifandi en er nú búsett
í Californíu. Ég hef mjög svo gaman af
kvennamálum og vil því gjarnan halda
áfram sambandi viö ykkur! Vera er virki-
lega áhugavert, skemmtilegt og fróölegt
blaö og ég hef saknað hennar mikiö þessi
tvö ár en aldrei komið því í verk aö senda
ykkur línu. Spyr ég því: Er mögulegt aö fá
blaðið í áskrift hingaö út? Nú ef svo er,
sem ég vona, þá bið ég ykkur vinsamleg-
ast aö senda mér Veru ásamt reikningi
fyrir áskriftinni.
Með bestu kveöjum
Linda Brá Hafsteinsdóttir
Veru berast alltaf annað slagið bréf svip-
að þessu þarsem spurt er hvort hægt séað
fá Veru í áskrift til útlanda. Okkurfannst rétt
að birta þetta bréfog taka það fram um leið,
aðþaðer sjálfsagt að senda Veru hvert sem
er, bara að þangað séu póstsamgöngur!
3