Vera - 01.07.1986, Blaðsíða 10

Vera - 01.07.1986, Blaðsíða 10
Umræðan um ofbeldi í fjölskyldum hér á landi hófst um og í kringum árið 1982, en í júní það ár voru Samtök um Kvenna- athvarf stofnuð. Markmið samtakanna var að koma á fót og reka athvarf fyrir konur og börn þeirra, þegar dvöl í heimahús- um er þeim óbærileg vegna andlegs eða líkamlegs ofbeldis en einnig að vinna gegn ofbeldi með því að stuðla að opinni umræðu um ofbeldi í þjóðfélaginu. Þann 6. desember sama ár var svo Kvennaathvarfið opnað og þann 20. maí 1986 höfðu u.þ.b. 540 konur og 491 barn sótt þangað. Ofbeldi í fjölskyldum bitnar ekki einungis á konum heldur einnig á börnum. í könnun sem Grayford nokkur gerði í Bandaríkjunum, kom í Ijós að af 100 konum sem beittar voru ofbeldi, sögðu 54 að eiginmenn þeirra beittu börnin líka of- beldi. Barnaofbeldi er skilgreint sem ill meðferð eða vanræksla á börnum þanpig að líkamlegri heilsu og þroska barnsins sé hætta búin. Óþarfi er að taka fram að ef andlegum og líkam- legum þörfum barns er ekki fullnægt er hætta á varanlegu andlegu og líkamlegu heilsutjóni. Komið hefurfram í könnun- um í Bandaríkjunum, Þýskalandi og Svíþjóð að kynferðisleg misnotkun er algengasta tegund barnaofbeldis. Margir álíta að á íslandi, þar sem börn eru svo velkomin, fari enginn að beita þau ofbeldi. Eitt er víst að flestir sem hafa eitthvað með börn að gera, hér á landi, hafa orðið varir við að barnaofbeldi er til, bæði andlegt og líkamlegt svo og kyn- ferðisleg misnotkun á börnum og því miður er allt sem bendir til að ekki sé minna um það hér á landi en í nágrannalöndun- um. Samt sem áður er ekki vitað með vissu hve algengt ofbeldi gagnvart börnum er á íslandi, en í skýrslum sem til eru um aðsókn að Kvennaathvarfinu kemur fram að af 488 konum sem hafa leitað þangaðsögðu u.þ.b. 14.5% að ofbeldi gagn- vart börnunum væri ein af ástæðunum fyrir því að þær leituðu til Kvennaathvarfsins. Konur í Samtökum um Kvennaathvarf hafa orðið varar við að umræðan um barnaofbeldi er skammt komin hér á landi og að börn sem hafa verið beitt ofbeldi eiga í fá hús að venda. Sama má eflaust segja um flesta sem hafa með börn og fjöl- skyldur að gera. Það er orðið mjög brýnt að eitthvað sé gert í þessum málum, sem sést kannski best á þeirri umræðu sem nú þegar er hafin í þjóðfélaginu. Til dæmis hélt Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar námsstefnu um ofbeldi gagnvart börnum, í Gerðubergi sumarið 1984. Fræðsluhópur félags- ráðgjafa og sálfræðinga hélt námstefnu á Akureyri vorið 1985 um sama efni og í apríl s.l. var haldin námsstefna á vegum læknanema i Norræna húsinu. Þann 14. desember s.l. opnaði Rauði Kross íslands hjálp- arstöð fyrir börn og unglinga að Tjarnargötu 35 i Reykjavík. Aðalhvatinn að stofnun barna- og unglingaathvarfsins var vaxandi vímuefnavandi ungmenna en oft er erfitt að greina á milli orsaka og afleiðinga í vanda barna og unglinga og þótti því ráðlegt að takmarka ekki aðgang vegna annarra vanda-

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.