Vera - 01.07.1986, Síða 35

Vera - 01.07.1986, Síða 35
Lára V. Júliusdóttir. ,fViö verðum að finna -nýjar leiðir" Lára V. Júlíusdóttir, lög- fræöingur Alþýöusambands- ins og formaöur Kvenrétt- indafélagsins. — Hvaö nú, Lára? — Þaö sem er brýnast eru launamálin. Viö verðum aö finna hvaöa leiðir viö getum fariö til þess að leiðrétta launamisréttið. Ég sé fjóra möguleika sem við verðum að íhuga. í síðustu samning- um voru gefin loforð um að Kjararannsóknarnefnd yrði fengin til að gera rannsóknir á launamismréttinu með sér- stöku tilliti til kyns. Við getum bundið einhverjar vonir við þær og verðum að tryggja að þæmýtist konunum sem eru i samninganefndunum. Svo er það spurningin, hvern- ig við getum notaö okkur 3. greinina í jafnréttislögunum um tímabundna mismunum, hvort við getum e.t.v. beitt henni til að semja um mis- munun í launum konum í hag t.d. í þriðja lagi er spurning um hvort við getum gert það sama og gert hefur verið NU? mæli en nokkur kynslóð á undan þeim. Hver er svo niðurstaðan af þessum heldur sundurlausu þönkum um Konur hvað nú? Að hér er á ferð virðingarverö tilraun til að gera úttekt á stöðu kvenna. Tilraun sem hefur ekki alveg heppnast, kannski vegna þess að al- menn umræða hjá okkur um stöðu kvenna og rannsóknir á henni eru svo skammt á veg komnar. Viö erum enn ekki í stakk búnar til þess að setja fram heildstæða mynd af stöðu kvenna í okkar þjóðfé- lagi. Enda þótt þessi tilraun hafi ekki tekist alls kostar, er hún vel þess virði að henni sé Qaumur gefin. Þessi bók kemur okkur öllum við. Hún er íhugunarverð og fræðandi, sumir kaflarnir skemmtilegir og uppörvandi. Ef viö höldum umræðunni áfram getum við kannski fundið út hvert við eigum aö stefna og hvaða leið viö eigum að fara. Guörún Ólafsdóttir P.s. Hvernig í ósköpunum stóð á því að verkalýðshreyf- ingin gleymdist? Þrátt fyrir nafniö fer Iftjð fyrir framtíðarsýn í bókinni. Vera sneri sér því til nokk- urra kvenna sem hafa staðið framarlega í kvennabarátt- unni og lagði þessa spurn- ingu fyrir þær. ,,Brýnast að konur taki sig saman" Aðalheiöur Bjarnfreðsdótt- ir, formaður verkakvenna- félagsins Sóknar, sagðist ekki hafa keypt bókina þegar hún sá aö þaö var ekkert í henni um verkakonur, en hún sagðist þó ætla að lesa hana. Spurningu okkar svaraöi hún á þessa leið: — Það brýnasta er að kon- ur, hvar sem er í launastétt- um taki sig saman og móti launastefnu og vinni að breyt- ingum á samningsforminu. Þetta samningsform hefur leikið launþega og sérstak- lega láglaunakonur grátt. Konur eru dreifðar í svo mörgum og margvíslegum félögum og móta lítið samn- ingagerðina. Þær verða að standa saman. Það er sama hvar litið er, obbinn af konum eru láglaunaðar, upp allan launaskalann þá eru þær Adalheiður Bjarntredsdóttir. með lægri laun en karlarnir. Þær verða að læra að vinna betur saman. — Er hægt aö gera ráö fyrir því aö konur nái saman og sýni slíka samstööu? — Er konum alvara með að vilja bæta kjör sín eða vilja þær bara hafa þau til að kvarta yfir þeim? 35

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.