Vera - 01.07.1986, Side 6
Enn eitt skref. . .
punktunum af stefnuskránni.
Þetta hengdum viö upp í búö-
um og á vinnustöðum en bár-
um ekki í hús. Þaö geröi spjald-
iö eiginlega dálítið eftirsóknar-
vert — við vorum ekkert aö
troða því upp á fólk! Nú, svo
stóöum viö fyrir ráöstefnu um
atvinnumál — atvinnumálin
eru eitt af því sem brennur
mjög á okkur Selfyssingum,
ekki síst konunum. Rétt undir
sjálfar kosningarnar gáfum viö
út blað, Emblu. Það var fjölrit-
aö en ákaflega fallegt og vakti
athygli. í því voru myndir af
frambjóöendum og hver og ein
okkar geröi grein fyrir því hvers
vegna við teldum þörf á
kvennalista — þaö var
skemmtilegt, ekki síst vegna
þess hversu svörin voru fjöl-
breytileg! í Emblu var svo
stefnuskráin okkar auðvitað
líka. Síöustu vikunafórum viöá
vinnustaöi og svo tókum viö
þátt í almennum kynningar-
fundi á framboðunum.
Þið höfðuð árangur sem
erfiði, þóttust þið vita að þið
fengjuð þessar jákvæðu mót-
tökur?
Viö fundum strax að okkur
var tekið á jákvæöan hátt, já,
undirtektirnar voru góöar. Viö
höföum dálítið gaman af því,
t.d. á vinnustaðafundum
hvernig tekið var á móti okkur.
Viö fórum nú mest á staöi þar
sem konur eru í meirihluta
starfsfólks og það var skondið
stundum á stööum, þar sem
fáir karlarvinna. Þeir áttu þaötil
aö yfirtaka alveg umræðurnar,
punda á okkur spurningum og
þegar viö svo vorum aö svara
þeim, fundum viö glöggt sam-
stööu kvennanna meö okkur.
Á stööum þar sem konur einar
vinna, uröu umræðurnar allt
ööru vísi, við gátum sest niður
og rabbaö — í þaö heila tekiö
held ég aö þá hafi umræðurnar
verið málefnalegri.
Þið hafið greinilega staðið
ykkur vel. . .
Ég held okkur sé óhætt aö
vera ánægðar. Við lögðum á
þaö áherslu aö vera sjálfum
okkur samkvæmar, lögöum
áherslu á stefnuskrána og
stóðum málefnalega aö kynn-
ingu á henni, þaö held ég hafi
skipt mestu máli.
Ms
Sólrún Gísladóttir með Hrafnkeli Ljósmynd: G.E.
,,Nú erum
við
teknar
alvarlega"
Ég hitti Sólrúnu Gísladótt-
ur á hlaupum niðri á Hótel
Vík í vikunni eftir kosningar.
Ég baö hana um aö segja
mér örlftið frá hvernig kosn-
ingabaráttan hefði gengið
fyrir sig, og byrjaði á að
spyrja á hvað hefði verið lögð
aðaláhersla:
Viö lögöum aöaláherslu á aö
kynna hvaö viö stöndum fyrir.
Þar af leiðandi lögöum viö
mikla vinnu í gerö stefnuskrár-
innar. í framhaldi af því gáfum
viö svo út blaö meö útdrætti úr
stefnuskránni sem viö dreifð-
um í hvert hús í borginni.
Við fórum á milli 60 og 80
vinnustaðafundi, þar sem viö
dreifðum fjölritum og stefnu-
skrám og spjölluðum viö fólk.
Við gerðum okkur far um að
vera sýnilegar á götum úti meö
söng og blómasölu. Einnig
héldum viö fjölskylduhátíð í
Sóknarhúsinu.
Hvernig var ykkur tekið?
Yfirleitt mjög vel. Viöhorfin
eru áberandi breytt frá því fyrir
fjórum árum. Þá þurftum við
nánast að sanna aö viö værum
ekki bjánar a.m.k. var tilveru-
réttur okkar mjög dreginn í efa.
Núna erum viö teknar alvar-
lega, og fólk vildi ræða viö okk-
ur um t.d. einstök borgarmál
og kvennapólitík.
Hvað fannst þér þessi kosn-
ingabarátta yfirleitt snúast um
yfir heildina?
Eins og venjulega fundu
flokkarnir tvö til þrjú mál sem
allt var látið snúast um. Síðast
voru það sprungurnar viö
Rauðavatn og Ikarusvagnar,
en núna Ölfusvatn og hljóm-
flutningstæki. Þaö ber mjög lít-
ið á því fyrir hvaöa grundvallar-
hugmyndir flokkarnir standa.
Þeir hafa jafnvel ekki stefnu-
skrár og veröa því allir mjög
keimlíkir. Þar af leiðandi snýst
þetta frekar um persónur en
hugmyndafræöi og stefnur, og
endar allt í auglýsinga-
mennsku. Þaö er dæmigert aö
maður nokkur sagði við mig aö
okkar feill heföi verið aö finna
ekki eitthvert mál til aö gera út
á. Þaö getur vel verið aö við
hefðum fengiö fleiri atkvæöi
meö því móti, en þá værum viö
farnar að taka þátt í blekkingar-
starfseminni og hljótum að
spyrja okkur hvers viröi slik at-
kvæöi væru. Hvernig á t.d. aö
þóknast þeim milli kosninga?
Flokkarnir eru allir svipaöir
hvað þetta snertir, þeir eru
búnir aö játast undir auglýs-
ingamennskuna, þaö er sama
hvort þeir eru til hægri eða
vinstri þeir viröast ekki hafa
nein prinsipp. Auðvitað veröa
flokkar að nýta sér nútímafjöl-
miðlun og auglýsingar en þeir
sem taka sjálfa sig alvarlega
verða að gera þaö á eigin for-
sendum en láta ekki sölu-
mennskuna ráöa.
Maður heyrði sagt að
Kvennalistinn væri orðinn eins
og hinir flokkarnir, talaði um
sömu mál og þeir, hvað með
sérstöðuna?
Flokkarnir hafa tileinkað sér
okkar málflutning sem er í
sjálfu sér gott en það er spurn-
ing hvort þaö eru tímabundin
viöbrögö viö kvennaframboð-
um eða hvort það ristir dýpra.
Þeir reyna auövitaö aö ná í þau
atkvæöi sem hingað til hafa
fallið á okkur.
Hver finnst þér vera aðal-
munurinn á kosningabaráttunni
núna og fyrir fjórum árum?
Þaö er erfitt aö líkja því sam-
an. Fyrir fjórum árum bar kosn-
ingabarátta okkar meiri svip af
6