Vera - 01.07.1986, Blaðsíða 17

Vera - 01.07.1986, Blaðsíða 17
skilgreina ofbeldi Borghildur Maack Jenný Baldursdóttir Ljósmyndir: A.H. Ingibjörg: Þá má líka segja að það sé viss tegund af ofbeldi þeg- ar við segjum við drenginn okkar þegar hann kemur inn og græt- ur, að hann skuli fara út og berja þann sem barði hann. Við ölum börnin okkar upp við tvískinnung, það má ekki berja mömmu, en Það má beita afli á félagana. Það virðist vera munur á uppeldisviðhorfum okkar kynslóðar °9 kynslóðanna á undan. Til dæmis þá var í ákvæði í gömlu barnalögunum frá um 1700 að foreldrar ættu að berja börnin sín. „Fremji börnin nokkuð ósæmilegt, þá eiga foreldrarnir ekki eftir hingaö til brúkanlegum siðvana að láta of-mikið eftir þeim, heldur straffa þau með alvarlegum orðum (þó fyrir utan blót og ósæmileg illyrði) ellegar og so með hendi og vendi eftir ásigkomulagi yfirsjónarinnar". (Okkar undir- strikun) (Úr Alþingisbókum íslands 1741—1750) Borghildur: Hér á landi er barnaofbeldi samfélagsvandi sem hefur lítið verið ræddur, en er þrátt fyrir það þekkt fyrirbæri í þjóð- félaginu. Það er látið viðgangast þó það sé bannað með lögum að beita börn ofbeldi hérálandi. Þaðereinsogfólki hafi ekki verið kynnt hvað má og hvað má ekki. í 45. gr. barnaverndarlaganna frá 1966 stendur: ,,Ef maður viðhefur í návist barns eða ungmennis ósiölegt, ruddalegt eða ósæmilegt orðbragð eða athæfi, ertir það eða dregur dár að því eða særir það á ósæmilegan hátt eða beitir það refsingum, ógnunum eða hótunum og slikt orð- bragð eða athafnir má telja því skaðsamlegar andlega og líkamlega, þá varðar það sektum, varöhaldi eða fangelsi allt að 3 árum". (Lög um vernd barna og ungmenna frá 1966) Ingibjörg: Nýju barnalögin islensku leggja áherslu á barnið og rétt barnsins til umgengnis við foreldra, rétt barnsins á heimili, á nauðþurftum fyrir sig, á menntun o.fl. Jenný: En það er til lítils að hafa góð barnalög ef enginn fer eftir þeim. Ingibjörg: Það þyrfti að kynna lögin fyrir þeim sem hafa afskipti af börnum og láta þau vita hvernig á að bregðast við ef þau verða vör við að börn séu beitt ofbeldi. 48. gr. barnaverndarlaganna hljóða svo: ,,Hver, sem verður þess vís, að foreldrar, forráðamenn, kennari, meistari eða aðrir þeir, sem forsjá barns eöa ung- mennis er falin, leiða það í siðferðislega glapstigu, mis- bjóða því eða vanrækja á annan hátt uppeldi þess svo mjög, að líkamlegri eða andlegri heilsu þess eða þroska sé hætta búin, skal skyldur að tilkynna það barnavernda- nefnd, þar sem barnið er. (Okkar undirstrikun). Vanræksla í þessu efni varöar sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að tveim árum. Annars er hverjum manni rétt að gera barnaverndar- nefnd viðvart um hvert það tilvik, sem telja má, að barna- verndarnefnd eigi að látasig skipta“. (Lög um vernd barna og ungmenna frá 1966) 17

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.