Vera - 01.07.1986, Blaðsíða 27

Vera - 01.07.1986, Blaðsíða 27
aðferðir, um það hvaöa vettvangur biöi Kvennafram- boðsins ef ekki yröi um framboð að ræða, það var rætt uni virkni og óvirkni í starfi og um frelsi kvenna til að 9anga eigin götur. Það var rifjuð upp saga kvennafram- boða og um möguleikana hvað varðaði úrslit núna. Þetta voru hollar umræður, sem brýnt er að halda áfram þó undir öðrum formerkjum verði. í þeim kom fram skoðanamunur á því, hvert kvennahreyfing ætti að beina kröftum sínum og hvernig. Það er ekki svo lítið arnhugsunarefni! En sjálfsagt verða svörin, sem leitað var að bíða eftir úrskurði sögunnar enn um skeið. Akvörðunin stökk ekki fullsköpuð í heiminn. Undir ^°kin tók Kvennalistinn af skarið þegar hann lýsti því yfir að hann myndi standa að framboði. Og — eins og fram hefur komið; flestar þeirra, sem eru félagar í Samtökum um Kvennalista í Reykjavík, hafa einnig verið félagar í Kvennaframboðinu frá upphafi. Þær Kvennaframboðs- k°nur, sem hlynntar voru framboðinu, en voru ekki félagar í Kvennalistanum, gengu þá til liðs við hann. Voru þá sameinaðar undir einu merki allar þær, sem te|ja framboðsleiöina þá réttu enn sem komið er. Þær elagskonur í Kvennaframboðinu, sem voru mótfallnar ramboði á ný, velta því nú fyrir sér hvað bíði þess, ^rgar hafa þegar snúið sér að nýjum verkefnum, ann- aö hvort sem einstaklingar eða i hópi félaga. Kvenna- ramboðið stendur því á krossgötum um þessar mundir en allar getum við staðið saman um að halda sjónarmið- Um kvenfrelsis og mannréttinda vakandi, hvað svo sem V|ð ákveðum að láta boðberann heita. Það verður sjálf- sagt mest um vert þegar upp er staðið. Ms Hvernig hefur tekist til? Það gefur auga leið að á undanförnum mán- uðum hafa Kvennaframboðskonur — sameigin- lega og hver fyrir sig — horft um öxl og reynt að meta starf sitt að borgarmálum á undanförnum fjórum árum. Við höfum m.a. spurt okkur þeirr- ar spurningar hverju við höfum fengið áorkað. Höfum við haft árangur sem erfiði af starfi okk- ar? Ég er ekki í nokkrum vafa um að framboð til borgar- stjórnar fyrir fjórum árum var rétt aðgerð á réttum tíma sem hefur þokað kvennabaráttunni talsvert áleiðis. Kvennaframboðin hrundu af stað mikilli hreyfingu með- al kvenna og gerðu það að verkum að mun fleiri konur en áðurtóku afstöðu til kvennabaráttunnarog urðu virk- ir þátttakendur í henni. í þessu sambandi nægir að nefna að konur í stjórnmálaflokkunum fengu aukið vægi, Kvennaathvarfi var komið á fót, Samtök kvenna á vinnumarkaðnum stofnuð, Kvennaráðgjöf komið á laggirnar, tímarit um kvenfrelsismál, Vera, fékk fastan sess á tímaritamarkaðnum, konur komu sér upp menn- ingarmiðstöð o.s.frv. Með þessari upptalningu er ég ekki að segja að Kvennaframboðið eigi heiðurinn af þessu öllu saman heldur aðeins að benda á þá hreyf- ingu sem skyndilega fékk byr undir báða vængi. Ef litið er á sjálf borgarmálin þá verður upptalningin ekki eins glæsileg því það má öllum Ijóst vera að Kvennaframboðið hefur ekki átt miklu fylgi að fagna innan veggja borgarstjórnar. Það gildir um okkur, eins og alla í minnihlutanum, að við getum talið þær tillögur á fingrum beggja handa, ef ekki annarar, sem við höf- um fengiö samþykktar i borgarstjórn. Það segir hins vegar mun meira um meirihluta Sjálfstæðismanna heldur en okkur. í borgarstjórn er bara einn vilji sem öllu ræður og hann er andstæður konum. Stefna Kvenna- framboðsins er í grundvallaratriðum ólík stefnu Sjálf- stæðisflokksins þannig að það er borin von að við kom- um mikilvægum málum í gegn. Þrátt fyrir þetta má benda á ýmis mál þar sem við höfum fengið einhverju áorkað, ef ekki beint þá óbeint. Þau mál sem vega þyngst í þessu sambandi eru dagvistarmálin og launa- mál kvenna. Dropinn sem holar steininn Á fjárhagsáætlun ársins 1983, sem var fyrsta fjár- hagsáætlun núverandi meirihluta, var framlagið til byggingar dagvistarstofnana aðeins 9 milljónir en á áætlun ársins 1986 er það komið upþ í 49.2 milljónir sem er 447% hækkun á kjörtímabilinu. Þessi mikla hækkun á m.a. rót sína að rekja til þess að eftir tilkomu Kvennaframboðsins hefur Sjálfstæðismönnum orðið Ijóst að það getur orðið þeim skeinuhætt að láta dag- vistarmálin sitja algerlega á hakanum. Krafan um næg og góð dagvistarheimili hefur fengið aukinn hljóm- grunn. Þrátt fyrir þessa hækkun hefur ekkert átak verið gert í þessum málaflokki sem á sér þá einföldu skýringu að Sjálfstæðismenn sveltu hann fyrstu tvö árin en hertu

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.