Vera - 01.07.1986, Side 7

Vera - 01.07.1986, Side 7
því aö vera aðgerö, þaö var gíf- urlegurkrafturíöllu. Við vorum meira í að vekja athygli á stööu kvenna. Nú er kvennafram- boðið búið aö vera í borgar- stjórn í 4 ár og þess vegna hvíl- ir ákveðin upplýsingaskylda á okkur og við erum komnar með ákveðna reynslu og fortíð. Þetta veldur því að það getur verið erfiðara fyrir nýjar konur aö koma inn í hreyfinguna. Valddreifingin verður erfiðari íyrir vikið. Endurnýjun er mjög nauðsynleg en hún þarf að eiga sér aðdraganda, má ekki vera of snögg. Síðast vorum við allar nýjar. Hvað finnst þér um úrslitin? Ég er tiltölulega sátt við okk- ar hlut miðað við hvernig þetta {ór. Auðvitað heföi ég viljað sjá Sjálfstæðisflokkinn fá minna og okkur meira. Ég er ósátt viö að við skyldum uppskera minna eftir fjögur ár í borgar- stjórn heldur en til dæmis Al- þýðuflokkurinn, sem afskap- 'ega lítið hefur farið fyrir í borg- armálum undanfarin 4 ár. Það sýnir okkur hvað það er veik staða að hafa ekki málgagn og sérstaklega þegar ríkisfjölmiðl- ^rnir sinna borgarmálum eins 'itiö og raun ber vitni. Fólk fær ekki að vita hvað við erum að gera. Að lokum Sólrún, hvernig líst Þér á starfið framundan? Það er Ijóst að það verður erfiðara að vera bara ein, hafa eoga sér við hlið og þurfa að sinna öllum málum, stórum og smáum. Það hlýtur að gera þá ^röfu að borgarmálaráö Kvennalistans verði mjög virkt. bað hvað borgarfulltrúar minni hiutans eru orðnir fáir gæti þugsanlega haft í för meö sér að þeir verði að hafa með sér meira samstarf en áður. K. Bl. Ragnhildur Eggertsdóttir ,,Mið höldum ótrauöar áfram" Hafnarfjörður var einn af þeim stöðum sem Kvennalist- inn bauðframtil bæjarstjórnar- kosninga. Úrslit kosninganna þar kom mörgum á óvart, þó sérstaklega það að Alþýðu- flokkurinn bætti við sig þrem mönnum. Síðast liðið kjörtíma- bil mynduðu D-listi Sjálfstæð- isflokks og H-listi Félags óháðra borgara, meirihluta með 5 D-listamönnum og 2 H- listamönnum, Alþýöuflokkur- inn hafði 2 menn, Framsókn 1 mann og Alþýðubandalag 1 mann. Úrslit kosninganna nú urðu þessi. A-listi fékk 5 menn kjörna, D-listi 4 menn, F-listi (Frjálst framboð, klofningur úr D-lista) 1 mann. Hin fjögur framboðin sem komu frá Fram- sóknarflokki, Félagi óháðra borgara, Flokki mannsins og Kvennalista fengu engan mann kjörinn. Vera hafði tal af Ragnhildi Eggertsdóttur, en hún var efst á lista hjá Kvennalistan- um, og lagði fyrir hana nokkrar spurningar. Ragnhildur hvernig stóðuð þið að kosningabaráttunni? Við gáfum m.a. út tvö blöð, sem við dreifðum á hvert heimili í Hafnarfirði. í þessum blöðum var stefna Kvennalist- ans í bæjarmálum Hafnarfjarð- ar kynnt ýmist í greinum sem við skrifuðum, eða beint úr stefnuskránni okkar. En stefnuskráin okkar, sem við dreifðum á vinnustaðafund- um, vakti mikla athygli. Við lögðum mjög mikla vinnu í að gera ítarlega stefnuskrá og fólk virtist mjög ánægt með að fá slíkt plagg í hendurnar. Við héldum opinn kynningarfund í veitingahúsi A. Hansen í Hafn- arfirði, þar sem var húsfyllir og færri komust að en vildu. Á þessum fundi fengum við góð- ar undirtektir og margar fyrir- spurnir. Þarna héldum við fjór- ar framsöguerindi og ég held að ég fari rétt með að segja að hjá þremur af þessum fjórum var þetta prófraun, en sem sagt fólk tók okkur mjög vel. Við útbjuggum dreifirit þar sem stefnan okkar kom fram og stóöum við stórmarkaðina á föstudögum og dreifðum þeim. Nú og síðan sendum við yngstu kjósendunum póstkort með smá orðsendingu um hvort þeim fyndist ekki tíma- bært að konur tækju meiri þátt í stjórnun bæjarins. Hvernig var ykkur tekið á vinnustaðafundunum? Okkur var yfirleitt vel tekið, fólk virtist hafa áhuga á þvi sem við vorum að segja. Það tók stundum dálitla stund að koma umræðum í gang en oft urðu þær Ifflegar og hressileg- ar. Ykkur fannst sem sagt and- inn vera nokkuð með ykkur? Já, fólk virtist áhugasamt um hvað við vorum að segja og okkur var spáð einni konu inn. En við urðum strax mjög efins þegar tvö framboð komu á hælana á okkar, en með þvi voru framboðin i Hafnarfirði orðin átta og ég vil nú meina að^ við megum nokkuð vel við una ef við tökum mið af hinum sem ekki fengu neinn mann inn t.d. Framsókn sem er búin að vera í bæjarstjórn í áraraðir og Félag óháðra borgara sem hafa verið í bæjarstjórn síðast liðin 20 ár. Við fórum seint af stað í þessa kosningabaráttu, rúmum einum mánuði fyrir kosningar, og urðum strax varar við að Kvennalistinn var lítið þekktur sem þólitískt afl í Hafnarfirði. Með þessari kosn- ingabaráttu tókst okkur að kynna hann nokkuð vel. Per- sónulega er ég mjög ánægð með að hafa tekið þátt í þessu. Þetta var góður skóli þó hann væri oft á tíðum erfiður. Til dæmis það að halda opinber- lega ræðu, fara í útvarp og sjónvarp, þetta er allt alveg ný reynsla fyrir mig sem ég vildi ekki með nokkru móti hafa orð- ið af. Ég er í eðli mínu mjög hlé- dræg, en mér fannst svo áríð- andi að kynna stefnu Kvenna- listans að ég gleymdi sjálfri mér. Hvað gerið þið í Hafnarfirði nú? Við höldum að sjálfsögðu ótrauðar áfram. Ég held að okkur sé enn betur Ijóst nú en nokkru sinni fyrr hve mikilvægt það er að kynna málsstað Kvennalistans og nú þegar við höfum fengið þessa reynslu munum við nýta okkur hana eins og unnt er í starfi fyrir næstu Alþingiskosningar. K. Bl. 7

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.